Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Síða 15
163
Vissulega er oss (slendingum í mörgu ábótavant, og
meðal þess má eigi sízt telja það, hvað vöruvöndun vor
er úrelt, óalmenn og samræmislítil, því þar er um eitt
þýðingarmesta atriðið að ræða í viðreisnaráttina. Vörur
vorar eru fáar og þurfa ekki stórt rúm á heimsmarkaðn-
um. það er þvf svo afaráríðandi að þetta litla rúm sje
sæmilega skipað, til þess eptir því verði tekið, og fram-
koma vor þar verði oss til gagns og sóma.
Menn virðast hafa talsverðan áhuga, víða hvar, á jarð-
rækt, kvikfjárrækt og verzlunarumbótum, en því er mið-
ur að síðasti hiekkurinn í þessari umbótafesti, sem ætti
að tengja oss einna bezt við menningarjjjóðirnar og
hefja oss upp á móts við þær, hann er vanhiríur og
með háskalegum ryðblettum; þessi hlekkur er vöruvönd-
unin.
A þjóðfjelagsbúi voru er ótal margt sem lagfæra þarf,
en margt af því verður að bíða ógert, ef til vill langa
lengi, af því gjaldþolið er svo Iítið og tekjur búsins svo
rýrar. Almenn vöruvöndun, í sambandi við rjetta og
holla verzlun er ómissandi til þess að auka gjaldþolið
og tekjur búsins. Þegar menn, með almennri vöruvönd-
un, eru búnir að koma afurðum landsins í gott og
verðskuldað álit, þá fyrst verður, af alefli, lögð stund á
framleiðsluna; fólkið unir í landinu, elskar það og legg-
ur kapp á að varðveita frelsi sitt.
Almenn vöruvöndun eflir siðferðisþrek þjóðarinnar og
sanna menningu, álit hennar og þýðingu gagnvart öðr-
um þjóðum. Almenn vöruvöndun er bráðnauðsynleg, frá
hvaða hlið sem á hana er litið, til þess aó framfaravið-
leitni þjóðarinnar nái því takmarki, sem hún þarf að ná,
og getur náð, ef vel og einlæglega er á haldið.
* *
*
'Víst væri það æskilegt, og á rjettan stað sett, ef tíma-
rit þetta, gæti við og við, flutt bendingar og fræðslu