Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Side 29

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Side 29
177 hefir verið gerður, og birtur almenningi, er fyrir árið 1905, gagnvart verzlunum á Húsavík og kemur þessi samanburður fram í 1. árgangi þessa tímarits í ritgerð- inni Verzlunarskýrslur«. Sjest þar ljóslega að verðmun- urinn var þá mjög mikill, þó að um þær mundir væri hin mesta samkeppni í verzlunarmálum. Síðan hefir verð- munurinn naumast minnkað, öllu heldur aukizt, þó tíma- ritið hafi eigi nægileg föng til að sýna fram á það i greinilegu yfirliti að svo sje í raun og sannleika. Árið 1905 voru níju starfandi verzlanir á Húsavík, nú eru þær eigi teljandi fleiri en þrjár. Það sýnist því hægurinn hjá fyrir þá tvo kaupmenn, sem nú standa þar and- spænis Kaupfjelaginu, að verða samtaka um vöruverðið bæði á aðflúttu og útfluttu. Sem ofurlítið sýnishorn má benda á rúgmjölið. Verðmunur á þessari þýðingarmiklu nauðsynjavöru var langa lengi eigi sjerlega mikill í kaup- fjelaginu og hjá kaupmönnum. Á síðast liðnu sumri kostaði rúgmjölstunnan (200 pund) kr. 18.60 í kaupfje- laginu, en hjá aðalkaupmannsverzluninni á Húsavík kost- aði hún kr. 22.50, móti peningum eða f skuldlausa reikn- iuga við árslok, annars 10 % meira. Á hina hliðina sýnist auðsætt, að það verður æ óálit- legra með hverju árinu sem líður að fela kaupmönnum útbúnað og verzlun með aðalgjaldeyrisvörur landsmanna. Það ætti að vera hverjum þeim manni Ijóst, sem hefir opin augu sín og nokkuð hirðir um eigin hagsmuni. Þessum ummælum til stuðnings má benda á það, að í haust sem leið, var verðlag á mör og algengustu kjöt- Úokkum hjá kaupmönnunum á Húsavík 10 — 20% lægra en algengt var á Akureyri, en þar mun það aðallega hafa verið Kaupfjelag Eyfirðinga, sem rjeði verðlagi á sláturfjárafurðum. Þegar athugaðar eru verðlagsskýrslur þær, sem tíma- ritið hefir flutt, fyrir árin 1906—1909, er það fljótsjeð að útlendar vörur hafa hækkað mjög að verði, einkum allar kornvörur, og er sú verðhækkun um 20 % til jafn-

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.