Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Síða 20
168
brögð að þessu, að sumar sendingar eru gersamlega ó-
nýtar; borga ekki einu sinni flutningskostnaðinn. Aptur
á móti getur verðið stundum orðið allhátt, þegar rjúp-
urnar eru skotnar á hentugum tíma og vel stendur á
markaðnum. Síðast liðinn vetur fjekkst t. d. nálægt þvi
ein króna fyrir rjúpnaparið á Englandi um tima. Verkun
og útbúnaður á rjúpum er ekki sjerlegt vandaverk. Það
er því, optast nær, eingöngu að kenna athugaleysi og ó-
vandvirkni íslendinga, þegar eitthvað fer forgörðum eða
fyrir sára lítið verð af þessari vöru þeirra. þegar á mark-
aðinn kemur eru rjúpurnar opt maðkaðar, sem sendar
eru snemma að haustinu til, eða þá svo úldnar, að þær
eru ekki boðleg vara. Ylduskemmdirnar geta einnig átt
sjer stað, þó komið sje langt fram á vetur, einkum þeg-
ar tíðarfarið er á þann veg, að rjúpurnar ýmist frjósa
eða þiðna upp aptur.
Vanalegur útbúnaður rjúpna til útskipunar er á þessa
leið: Utan um hverja rjúpu er vafið loptþjettum pappír
(»Rjúpnapappír«), því næst er rjúpunum vandlega raðað
i kassa og talsverðu af algengu salti stráð á milli laganna.
Kassarnir eru opt misstórir, hinir stærstu vigta um 100
pund, fullbúnir. Við móttökuna er það algeng regla
að skoða hverja einustu rjúpu, og kasta þeim úr, sem
þykja verulega óálitlegar: of gamlar frá því þær voru
skotnar, úldnar, mjög blóðugar, eða með stórum holsár-
um, o. s. frv. Þessi skoðun er samt svo mikið vanda-
verk, að eigi er unnt að vera viss um að allt sje fellt
og fágað, enda mun hún stundum hroðvirknislega af
hendi leyst. Maðkalirfur geta leynst í rjúpunum, ýlda
verið í byrjun og fl. athugavert, þó skoðunarmaður verði
þess eigi var. Til þess að koma í veg fyrir skemmdir á
rjúpum, eða sjá svo um að skemmdirnar bitni á þeim,
sem hafa látið af hendi gallaðar rjúpur, eru nóg ráð, ef
menn vilja almennt aðhyllast þau og fylgja þeim. Rað
sem liggur beinast við í þessu efni er í stuttu máli
þetta: