Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Page 59
207
ig öðrum kaupfjelögum iandsins að vera það Ijúft, að
senda samskonar skýrslur í listaformi því, er þau hafa
fengið, og sem einnig er prentað í þessum árgangi tíma-
ritsins, bls. 92 — 94.
Frá rjómabúafjelögum og sláturfjelögum landsins væri
einnig fróðlegt og nauðsynlegt að fá skýrslur, fyrir árið
1909. Einkanlega ættu þessar skýrslur að sýna, hvað þessi
fjelög hafa haft með höndum af vörum á árinu, hvaða
verð hefir fengizt fyrir þær í útlöndum og aptur verið
hægt að skila í reikninga fjelagsmanna; enn fremur efna-
hagsyfirlit og fjelagsmannatal. F*á væri einnig nauðsyn-
legt að skýrt væri frá því, hversu mikill stofnunarkostn-
aðurinn varð ugphaflega, og hvað mikið var óborgað af
honum við lok reikningsársins.
A ýmsum stöðum, hjer á landi, eru nú hugir manna
að hneigjast að því, að stofna ný samvinnufjelög, til
smjörframleiðslu og kjötverkunar. Ef auðveldur aðgang-
ur er að áreiðanlegum skýrslum, er sýna starfsemi og
hag samskonar fjelaga, er þegar hafa fengið svo litla
reynslu, þá getur slíkt orðið til uppörvunar og leiðbein-
ingar á ýmsan hátt. Eldri fjelögunum ætti því að vera
Ijúft að rjetta fram hjálpandi hönd, með því að skýra frá
reynslu sinni. Pað kostar fjelögin svo lítið. I3að er því
ósk tímaritsins, að samvinnufjelögin víkist vel við þessu
niáli og heimili tímaritinu að birta útdrátt úr skýrslunum.
í þetta skipti flytur tímaritið, hjer á eptir, að eins skýrsl-
ur frá tveimur kaupfjelögum, og eru bæði þessi fjelög
með álitlegustu kaupfjelögum vorum, nú sem stendur.
Kaupfjelag Eyfirðinga hefir sniðið fyrirkomulag sitt, að
mestu, eptir almennnm reglum kaupfjelaga i útlöndum,
og hefir fjelagið, að svo gerðu, tekið miklum þroska á
fáum árum. þar er því liægt að sjá sýnishorn af yngra
skipulagi kaupfjelagsskaparins á þessu landi. — Kaupfje-
lag Norður-Pingeyinga hefir, aptur á móti, nær því ein-
göngu samið sig að gamla pöntunarfyrirkomulaginu. Fje-
lagsmenn hafa ekki vérið margir, nje viðskiptaveltan mik-