Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Qupperneq 38
186
Haustið 1908 var veturgamalt slaturfje 1<aupfjelagsins
um 800, meðalþyngd þess þá: 38.73 pd. Dilkar voru þá
um 970 og meðalþyngd þeirra: 29.90 pd. Veturgamla
fjenu fækkaði til innleggs nú í haust. Fjölgun sláturfjár-
ins lenti eingöngu á rýrara fjenu: dilkum og mylkum
ám. Vorið 1909 var óvanalega mikið um tvílembdar ær,
miklu meira en 1908 og verður að taka tillit til þess við
samanburðinn. Þess ber einnig að gæta, að haustið 1908
var inndælistíð allan fjártökutímann, en í haust, sem leið,
voru að eins fyrstu dagana góð veður, en úr því látlaus
hrakviðri og snjókoma til dala, svo fje tepptist víða á
göngu, og hefir hlotið að Ijettast til muna. Síðast liðið
haust töldu menn dilka rýrari en haustinu áður, vetur-
gamalt fje aptur vænna. F*að skar sig greinilega úr, 1
haust, að fje af lágafrjettum — næst sjó — reyndist venju
lakar, móts við fje af hálendisafrjettum. Að slíku eru
beinlínis áraskipti í Þingeyjarsýslu. það er almennt álit
rnanna, að tvö síðast liðin haust hafi sauðfje reynzt með
bezta móti. Menn voru vel heybirgir veturna á undan,
vortíminn ekki áfellasamur og sumartíðin hagstæð.
í haust sem leið sendi Kaupfjelag Pingeyinga um
2000 sauði, á fæti, til Belgíu. Peir fjelagsmenn sem áttu
talsvert af sauðum ljetu fátt sláturfje, og sumir alls ekk-
ert. Samtals voru það um 220 fjelagsmenn 'sem Ijetu
sláturfje til kaupfjelagsins, en það verða um 13 kindur,
til jafnaðar, á hvern innleggsmann.
Frá þessum búum var innleggsfje 50 að tölu og þaryíir:
1. Kasthvammi.................................79
2. Hjeðinshöfða............v..................78
3. Hólum í Laxárdal.............................71
4. Húsavík (prestssetrinu) .....................59
5. Stóru-Laugum.................................55
6. Torfunesi....................................50
Milli 30 og 49 innleggskindur höfðu 9 fjelagsmenn en
20 voru þeir, sem höfðu eina til tvær kindur hver.