Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Page 18

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Page 18
166 ílytja smjör til Englands keppa eptir því, að nálgast sem mest smjörgerð Dana, og það verð, sem þeir fá fyrir smjörið. Er nú Dönum eigi farið að lítast á þessa bliku, eða jaað, að geta haldið velli á smjörmarkaðnum. Telja þeir það eina ráðið fyrir sjg, að vanda smjörgerð sina enn þá meira en áður. Samkeppnin í smjörgerðinni fer allt af vaxandi, og vjer hljótum að vera henni háðir. Undan því er ómögulegt að skjóta sjer. Það er því alveg ómissandi fyrir oss að vita, jafnharðan, um allar veru- legar endurbætur á erlendri smjörgerð og heimfæra þær til vor, annars skjóta keppinautarnir oss enn lengra aptur fyrir sig en nú á sjer stað. Það væri fróðlegt að gera tilraunir með það, að senda, fáein ár, nokkur kvartil af óblönduðu, íslenzku sauða- snrjöri til Englands, sem sjersending, með svo lítið frá- brugðnu merki, og fá svo áreiðanlega skýrslu unr það, hvernig kaupendum geðjaðist að þessu smjöri. Líti frem- ur vel út með sölu á hreinu og óblönduðu sauðasmjöri, gætu menn mjög vel staðið við það, á sumurn rjórna- búunum að halda sauðasmjörinu alveg sjerskildu. Fengi sauðasmjör vort viðurkenning og nafn á Englandi gæt- um vjer, líklega, orðið einir um hituna með framboð á þeirri vörutegund. Eins og nú er ástatt vitum vjer eigin- lega ekkert um það, hvaða áhrif þetta sambland vort af sauðasmjöri og kúasmjöri hefir á dónr kaúpendanna um íslenzkt smjör í heild sinni, og er það óheppilegt. , Gagnvart smjörgerðinni og vöruvöndun yfir höfuð, þurfum vjer alvarlega að gjalda varhuga við því alclar- einkenni, sem nú blasir við hjá oss: að þykjast fullkom- inn og fær í allan sjó, þegar búið er að tileinka sjer svo lítið hrafl af þekkingu og láta svo þar við sitja en bæta ekki við, fullgera aldrei neitt. »Mönnunum miðar annaðhvort aptur á bak ellegar nokkuð á leið. Vjer komumst opt góðan kipp áfram í fyrsta sprettinum, ná- um fyrsta leytinu og höldum að þá sje brautin búin. Pá kemur staðnæmingin (»Stagnation«), sjervizkan og

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.