Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Síða 50

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.08.1909, Síða 50
108 ábyrgð. En vörurnar, sem þeir fengu svo út á þessi lán, voru svo aptur hóflaust lánaðar út til hinna efnaminni bænda eða þorpsbúa, sem var sýnu verra. Annar vegur hefir ekki verið fær, til að ná nokkurri verulegri verzlun, og fyrsta boðorðið í þeirra verzíunarfræðum hefir verið: að koma einhvernveginn út sem mestu af vörunum. Petta hefir stundum gengið vel, nokkur ár, þar til allt, einn góðan veðurdag, hefir setið fast. Kaupmaðurinn hefir ekki fengið neinar vörur frá útlöndum. Skuldin hefir verið orðin of há. Hann hefir sett eigur sínar fastar í hús, eða annað, til að reka stóra verzlun. Hann er bú- inn að setja enn meira fje fast í lánum, út um allt, hjá efnalitlum mönnum, og enn er töluvert í óþörfum og lítt seljanlegum vörum í búð hans. Verzlunarmenn hans verða að flýja annað, en skilja eptir skuldirnar. Hann getur því ekki staðið í skilum við bankann, eða hina er- lendu Iánardrottna. Allt er tekið hjá honum sem til er. Síðan er gengið að ábyrgðarniönnunum, ef til eru. Pá er ýmist: að ábyrgðarmennirnir eru rúnir eða lánardrottn- arnir tapa fje. Lánstraust vort og tiltrú í útlöndum er eyðilögð. Bankarnir heima eru settir á heljarþröm: geta ekki hjálpað neinum, eða stutt neitt þarflegt fyrirtæki. Kaupmennirnir sjálfir sem mjög opt eru nýtir menn og efnilegir, fara eigi sjaldan á vonarvöl, ef þeir hafa fjöl- skyldu, að minnsta kosti eiga ekki viðreisnarvon um langan tíma. Gjaldþrot eru sár, sem sjaldan gróa til fulls. Með kaupmönnunum fylgjast optast nokkurir menn, sem á þeim hafa lifað, hafa haft atvinnu af brölti þeirra og byltingum í þorpinu, en standa nú uppi auðum hönd- um. Petta fargan hefir rúið sveitirnar nauðsynlegum vinnukrapti, til að ofhlaða kaupstaðina; unnið um leið að botnlausu skuldabasli í báðum stöðunum. Svo hefir sagt mjer kunnugur maðúr, úr einni beztu sýslu landsins, sem talin hefir verið, að allur þorri bænda væri í stórum skuldum við kaupmenn, en hinir efna- meiri væru aptur í ábyrgðum fyrir þá, er helzt liti út

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.