Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1907, Qupperneq 27
27
Flutt . . . kr. 2,184,715.91
4. Abyrgðargjaldsreikn-
ingur i/i ’05.........kr. 15,000.00
þar við bætist !/i ’06 — 10,000.00
--------------= - 25,000.00
5. í geymslu til n. á..................... — 17,700.17
kr. 2,227,416.08
Innskrifaðir fjelagshiutir............ — 478,000.00
Áhættuhöfuðstóll er.................. kr. 2,705,416.08
Á fundinum var lögð fram skrá, er sýndi töiu með-
lima fjeiagsins, umsetning þess, árságóða og skipting
hans þau 10 ár, sem sambandsfjelagið hefur staðið.
Kom þar í Ijós, að umsetningin hefur sexfaldast og
hreinn ágóði tífaldast; ágóðaúthlutun hækkað úr 3% upp
í 5 %. Petta bendir til þess, að vaxandi umsetning veitir
aukinn hagnað.
í tilefni af reikningnum komu fram örfáar fyrirspurnir.
Reikninguríinn og tillagan um skipting ágóðans því næst
samþykkt einu hljóði.
Rar næst urðu nokkrar umræður um lög fjeiagsins.
Tillögur til breytinga höfðu áður verið umtalsefni í
vikublaði fjeiagsins. Rær tiliögur, sem komu frá stjórn
fjelagsins, náðu fram að ganga á fundinum. Merkasta
atriðið, sem til breytinga kom var það, að nú heimila
lögin það, að hinir einstöku meðlimir (fjelögin), þurfa
ekki að greiða varasjóðsgjald, þegar til tekið fjárframlag
er komið af hálfu meðlimsins, þó eigi fyr en eptir tíu
starfsár í fjelaginu.
Samþykkt var að halda næstu aðalsamkomu í Álaborg
á Jótlandi.
Nokkrir útlendir gestir fluttu kveðjur og heillaóskir frá
sínum löndum. Næsta dag á eptir ferðuðust um 600 fundar-
menn tii Helsingjaeyrar og Helsingjaborgar. Við borðhald
í Helsingjaborg voru skörulegar ræður fluttar um hið sam-
eiginlega áhugamál gestanna. c .