Spegillinn


Spegillinn - 07.12.1945, Page 4

Spegillinn - 07.12.1945, Page 4
SPEGILLINN XX. 22.—24. iiiiniiiiiiiiiíníiiíiiiii111111111iiim11■ in1111ii1111111:1111iiiMinii111:11111;11:1111111111111111111ii1111iiiiiniiiiiiitiiiiiiiitiiitiiiimn: /iiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiMiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii (I6URBAR OMWONAR SHEII/ ^jírixácirinn lygyir upp lanJið 'JJHkk- og íiallþiífunna verksm ‘fyM.fíiumotm 1 síðasta mánuði fór fram hátíðleg' athöfn, að við- stöddum ráðherrum og fínum mönnum í úníformi, er hin nýju varðskip vor, sem vér höfum losað brezka flotann við, voru afhent Islendingum, og' birtist m. a. mynd af athöfninni í Vísi, þar sem fáni vor biaktir einkar smekklega í hálfa stöng. Þá mund- um vér eftir því, að samskonar athöfn hlýtur að hafa farið fram, þegar fyrsti kanajeppinn var mál- aður hvítur á rassinum, sem merki þess, að nú væri hann orðinn íslenzk eign, og birtum vér nú mynd af þeirri athöfn, þótt seint sé. Borgarstjórirm í hinni g-óðkunnu mormónaborg Salt Lake City í Utah hefur fyrir skemmstu gefið út tilkynningu um það, að hann letH að setja tvö hraðamet á næstunni, sem sé að aka jeppa sínurn 640 km. á klukkustund og i öðru Tagi komast 6400 km. á einuni sólarhring. Er svo að sjá sem annað- tveggja eigi borgarstjórinn margar konur og geð- illar, sem hann ætli nú að losna frá með þessu klók- indabragði, eða þá hitt, að hann hafi heyrt um hraðamet kollega síns í Reykjavík, er ekið var franr hjá biöggunum, daginn sem ,,skrautsýningin“ var haldin. Sennilega eru kosningar i aðsigi þar eins og hér. Gort lávarður, hinn fræg'i hershöfðingi Breta, hef- ur nýleg'a verið skorinn upp. Er þess getið til, að þetta sé einskonar kurteisissvar til Ameríkumanna við því, að þeir skáru Patton hershöfðingja sinn niður, ekki alls fyrir löngu. Iíona ein hefur lcært til lögreglunnar yfir því, að brennivínsflösku var kastað inn um glugga hjá henni eina nóttina. Standa margir gapandi af undrun yfir konunni, að amast við slíkum hvalreka, en til skýr- ingar má geta þess, að flaskan var tóm, og fer þá málið að verða skiijanlegra. íslcnzkir knattspyi'numenn hafa undanfarið legið í samningum við danska stéttarbræður sína um kapp- leiki á sumri komanda, og munu samningar hafa tekizt. Sagt er að báðir aðilar búi sig nú sem óðast að vopnum og verjum, m. a. ku danirnir ætla að hafa með sér bárufleyga með lýsinu, sem þeim var sent í fyrra, ef svo fæi'i, að „bylgjurnar geng'ju hátt“. Gai ðyrkjumaður einn hér á landi, eða nánar til- tekið í Moskó, hefur ræktað sérstaka nellíkutegund og nefnt hana „Elsu Sigfúss“, sem þakkarvott til hinnar ágætu listakonu. Svo g'leðilegt sem þetta er, getur það orðið hættuleg't fordæmi. Hugsum oss t. d., að Framsóknarbændur kalli þá kartöflutegund, sem helzt vill skemmast hjú þeim, „Óiaf Thors“! Ríkisstjórn vor hefur nú gefið Bretum sinn hluta af gjafafé því, er safnaðist á fiugvellinum í septem- ber síðastl. Eru útgerðarmenn nú afskaplega spennt- ir að vita, hvaða höfn i Bretlandi verður lokað fyrir fiski vorum, í tilefni af þessu fiottheitabrag'ði voru. Danskt blað hefur stungið upp á því, að danir taki sig nú til og skili Islendingum aftur handritum þeim, er Arni heitinn Magnússon reif upp úr skóm landa sinna og exporteraði til danmerkur, forðum dag'a. Á þeim óróatímum, er nú ganga yfir, hefur borið allmjög á geðveiki meðal frændþjóðai' vorrai', og' oss finnst eng'in von, að blaðamenn sleppi við þann faraldur, öðrum stéttum fremur. í bluði einu lesum vér, að Gasprari sé orðinn for- sætisráðherra í Italiu. Ekki var þess g'etið, hvenær hann fari héðan til þess að taka við embættinu. Salazar, sem nú stjórnar Portúg'al, eftir austræn- um lýðræðisreglum, hefur nýlega slengt sér i heilagt hjónaband, en áður en athöfnin fói' fram lét hann handtaka nokkra gamla meðbiðla — sennilega einn úr hverjum flokki — sem hann bjóst helzt við, að myndu vilja gera sér rúmrusk á brúðkaupsnóttina. Ekkert hefur heyrzt um, að hann ætli að sleppa þeim, þegar hveitibrauðsdagarnir eru liðnir. Vísir birtir fyrir nokkru mynd af amerískum bónda, sem er að g'efa svinunum sínum kol að éta, og ku þetta bæta meltinguna hjá þeim og' gera ketið bragðbetra. Þessi mynd mun korna spánskt fyrir í þeim löndum þar sem kol eru af svo skornum skammti, að menn myndu brenna svínunum sínum heldur en engu — væru þau nokkur til. 196

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.