Spegillinn - 01.12.1954, Síða 50
222
SPEGILLINN
MARK TWAIN:
Kærastinn hennar Árelíu
Efni þessarar sögu barst mér í bréfi frá ungri stúlku, sem á heima
í hinni fögru borg San José. Eg þekki kvenmanninn alls ekki neitt, en
hún undirskrifar bréfið „Árelía María“ — sem getur eins vel verið dul-
nefni. En hvað sem um það er, þá er stúlkuskepnan næstum orðin viti
sínu fjær af öllu því mótlæti, sem yfir hana hefur dunið, og ennfremur
svo rugluð af hinum margvíslegu ráðum aðstandenda sinna, að hún veit
ekki upp né niður um, hvernig hún eigi að losa sig úr þessum vef af
erfiðleikum, sem hún virðist flækt í um alla eilífð. í þessum vanda sín-
um snýr hún sér til mín, til þess að beiðast hjálpar, og grátbænir mig
um leiðbeiningar og ráðleggingar, og það með svo hrærandi mælsku, að
hún gæti fengið steinstyttu til að komast við. En komum að sögunni:
Þegar hún var sextán ára gömul, kynntist hún ungum manni, og varð
svo dauðskotin í honum, að slíks munu fá dæmi. Maðurinn var frá New
Jersey, og hét Williamson Breckinridge Carruthers. Hann var eitthvað
sex árum eldri en hún. Þau trúlofuðust, með samþykki vina og vanda-
manna, og um nokkurt skeið virtist svo, sem æviferill þeirra myndi
verða rósum stráður og lausari við hverskyns sorgir og áhyggjur en
almennt gerist. En þá snéri gæfan við blaðinu: Carruthers hinn ungi
fékk bóluna, og hana vonda, og þegar hann loks reis upp af sjúkrabeði
sínum var andlitið á honum holótt eins og vöflujárn, og öll fegurð hans
farin út í veður og vind. Fyrst datt Árelíu í hug að segja honum upp,
en meðaumkunin með veslings manninum kom því þó til leiðar, að hún
samþykkti að fresta giftingardeginum um nokkurn tíma, „ef ske
kynni . . .“.
Daginn áður en brúðkaupið skyldi standa var Breckinridge að horfa
á loftbelg, sem var á flugi. Gætti hann ekki nægilega að sér og datt ofan
í brunn, með þeim árangri, að hann fótbrotnaði, og varð að taka af hon-
um fótinn fyrir ofan hné. Aftur ætlaði Árelía að segja honum upp, og
aftur hrósaði ástin sigri, og aftur var brúðkaupinu frestað um nokkum
tima.
En þið skuluð ekki halda, að ógæfan hafi verið hætt að liggja í leyni
fyrir veslings unga manninum. Næst missti hann annan handlegginn,
þannig, að of snemma var skotið einni fallbyssunni, þjóðhátíðardaginn
4. júlí. Og áður en þrír mánuðir voru liðnir lenti hann í kembingarvél,
sem reif hinn handlegginn af honum. Eins og geta má nærri, ætlaði
hjarta Árelíu að springa, þegar ólánið elti þau svona grimmilega. Hún
var frá sér af hryggð, er hún sá kærastann yfirgefa sig þannig smátt
og smátt, þvi hún sá eins og var, að ekki gat hann enzt lengi með þessu
móti, ef alltaf væri klipið af honum meira og meira. Samt yissi hún ekk-
ert ráð til að stöðva þetta, og í örvæntingu sinni fór henni eins og
manni, sem hefur keypt meingallaðan hest, að hún fór að óska þess, að
hún hefði aldrei tekið manninum meðan hann var í heilu líki. Samt
stillti, hún sig, og ásetti sér að þola þessa óeðlilegu tilhneigingu kær-
asta síns dálítið lengur.
Enn nálgaðist brúðkaupsdagurinn, og enn komu vonbrigði: Car-
ruthers fékk heimakomu, og missti sjónina fyrir fullt og allt. Vinir og
vandamenn brúðurinnar álitu nú, að hún hefði þegar sýnt alla þá þolin-
mæði, sem sanngjarnt væri að heimta, og ákváðu, að trúlofuninni skyldi
slitið, en eftir að Árelía hafði verið í vafa nokkra stund, skal það sagt
henni til maklegs hróss, að hún kvaðst ekki sjá, að þetta væri neitt
manninum að kenna, og vildi halda trúlofuninni áfram, eins og ekkert
hefði í skorizt.
Eftirtaldar vörur
CTVEGUM VIÐ M.A.
V efnaðarvörur GirSingarefni
Útgerðarvörur SmíSaverkfæri
Iðnaðarvörur J árnvörur
Búsáhöld SkófatnaS
Lyfjavörur Tilbúinn fatnaS
Sportvörur Garn
Sjófatnaður Kol
Vélareimar Vélar
Slöngur og varahluti
Byggingarvörur í Victor Dieselvélar
Margskonar vefnaðarvörur fyrirliggjandi.
ÁSGEIROLAFSSON
Reyhjavík . Sími 3849 . Símnefni AVO