Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 16

Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 16
16 19. september 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Örn Karlsson skrifar um verðtryggingu Það er erfitt að hrekja þá fullyrðingu fjöl- margra skuldara að eign í fasteign minnki iðulega eftir því sem lengur er greitt af verðtryggðum lánum sem á henni hvíla. Fólk hefur grunsemdir um að það sé maðkur í mysunni og upp vakna spurningar um eign- arréttinn sem á að vera varinn af Stjórnarskrá. Verðtrygging Verðtrygging fjárskuldbindinga var innleidd með svokölluðum Ólafslögum árið 1979. Verðtrygg- ingunni var ætlað það hlutverk að leiðrétta skekkju af völdum verð- bólgu. Skekkjan fólst í því að veru- leg tilfærsla eigna var til þeirra sem skulduðu frá þeim sem áttu sparifé eða veittu lán á vöxtum sem títt voru langt undir verð- bólgunni, sem æddi áfram óbeisl- uð. Við Ólafslögum tóku ný lög um vexti og verðtryggingu árið 2001. Sama meginforsenda er fyrir verðtryggingunni og áður, þ.e. að verja almennt sparifé og lánsfé landsmanna fyrir rýrnun af völd- um innlendrar verðbólgu eins og segir í greinargerð með frum- varpinu. Samkvæmt lögunum er vísitala neysluverðs lögð til grund- vallar mælingu á verðbólgu. Verðbólga Verðbólga er peningatengt fyrir- bæri. Verðbólga gefur til kynna hvernig peningalegt virði eigna breytist yfir tíma, þ.e. hvern- ig kaupmáttur peninga breytist (minnkar). Að meginstofni á verð- bólga sér því stað þegar peningar tapa verðgildi. Þessi skilgreining á verðbólgu er óumdeild og er verðtrygging- unni ætlað það hlutverk að leiðrétta fyrir verð- bólgu þannig að lántaki og lánveitandi séu jafn- settir yfir lánstímann. Jafnsettir að því leyti að ekki verði eignatilfærsla á milli þeirra önnur en markast af höfuðstól lánsins og vöxtum þess. Vísitala neysluverðs Vísitala neysluverðs telur allar verðbreytingar á öllum einingum sínum alltaf. Löggjafinn hefur metið það svo að þetta sé nægilega góð nálgun á verðbólgu til að hún dugi sem leiðréttingargrundvöllur í verðtryggingu. Atvikshækkanir einstakra eininga Alltaf gerist það jafnt og þétt að einstakar vörur hækka eða lækka í verði óháð kaupmætti peninga. Slíkar breytingar eiga ekkert skylt við verðbólgu og ættu eðli máls samkvæmt ekki að vera inn í verð- tryggingargrunni. Lánveitandi fer almennt ekki fram á að lántaki verji hann fyrir því að ekki rigni í Brasilíu þannig að hann fái bætur ef kaffiverð hækkar þess vegna. Lánveitandi fer almennt ekki fram á að lántaki verji hann fyrir stríði í Miðausturlöndum þannig að hann fái bætur ef olíuverð hækkar þess vegna o.s.frv. Verðtryggingunni er þvert á móti ætlað að tryggja hlutleysi og taka áhættu út úr lánaviðskiptum. Öll áhætta lánagjörninga á að end- urspeglast í vaxtastigi lánsins en ekki í verðtryggingunni. Verð- tryggingu er eingöngu ætlað að verja verðgildi þeirrar fjárhæðar sem er lánuð. Ef atviksbreyting á verði vöru fer inn í verðtrygg- ingarvísitölu leiðir það til óum- saminnar eignatilfærslu. Gefum okkur að um veðlán sé að ræða. Ef lánveitandinn fær bætur vegna hækkunar á vöru og hækkunin er ótengd kaupmætti peninga þá hækkar höfuðstóll veðlánsins og hrein eign í fasteigninni rýrnar að sama skapi. Rýrnunin á sér stað vegna þess að fasteignin hækkaði ekki í verði til samræmis vegna þess að það var ekki verðbólguá- stand. Kaupmáttur peninga hélst óbreyttur. Hamfarir Atviksbreytingar eru jafnan litlar samanborið við verðbólgubreyt- ingar og því hefur eflaust ekki þótt taka því að horfa til þeirra í verðtryggingargrunninum. Og þess vegna hefur sennilega engan órað fyrir þeim stórkost- legu atvikshækkunum á tveim- ur liðum neysluverðsvísitölunn- ar með afleiðingum sem líkja má við hamfarir. Allt samband milli skuldara og lánveitenda bren- glaðist á fjögurra ára tímabili frá miðju ári 2004 til ársbyrjun- ar 2008. Þessi brenglun hefur leitt til stórkostlegrar eignatil- færslu frá skuldurum til lánveit- enda. Átt er við hækkun fasteigna- verðs í kjölfar innkomu bankanna í ágúst 2004 ásamt hækkuðu láns- hlutfalli Íbúðalánasjóðs í kjölfar- ið og hækkun olíuverðs á heims- markaði. Í hvorugu tilfellinu voru verðhækkanirnar afleiðing minnkandi verðgildi peninga og þar með verðbólgu. Húsnæðisverð vegur allt að 17% vísitölunnar og olía og bensín allt að 5%. Þegar þessir liðir margfaldast í verði verður stórhækkun á vísitölunni. Hér er ekki tekið með í reikning- inn afleidda hækkun annarra liða í vísitölunni vegna áhrifa olíuverðs á verðmyndun þeirra. Hafa ber í huga í þessari umræðu að gengisvísitala íslensku krónunnar var mjög stöðug allt tímabilið sem þýðir að kaupmátt- ur íslensku krónunnar hélst stöð- ugur. Grunnforsenda fyrir verð- bólgu var því svo gott sem ekki til staðar allt tímabilið. Höfum jafn- framt í huga að verulega stór hluti neysluvara á íslenskum markaði er innfluttur og því er gengi íslensku krónunnar góður mælikvarði á forsendur verðbólgu. Það er því hægt að halda því fram að hækkun húsnæðisverðs og olíu og bensíns á íslenskum markaði hafi fyrst og fremst verið atvikshækkun og því hverfandi líkur á að hækkanir þessar stafi af verðbólgu, þ.e. að peningar hafi tapað verðgildi. Í því orsakasamhengi sem hér er fjallað um getur vara hækkað í verði af þremur ástæðum. Vara getur hækkað í verði vegna þess að kaupmáttur peninga rýrn- ar (verðbólguhækkun) og fylgja þá jafnan aðrar vörur og þjónusta með. Í öðru lagi getur vara hækk- að í verði þrátt fyrir að kaupmátt- ur peninga helst stöðugur, alltaf er hægt að rekja slíka hækkun til atviks eða aðstæðna (atviks- hækkun). Í þessu tilfelli hækka aðrar vörur ekki samhliða nema ef varan er partur af verðmynd- un þeirra. Í þriðja lagi geta vörur hækkað vegna blöndu af þessu tvennu. Heimsmarkaðsverð á olíu Frá hausti 2003 og fram í árs- byrjun 2008 hækkaði verð á olíu gífurlega, úr ca $25 tunnan í vel yfir $120. Um þessar mundir er olíuverðið í kringum $68. Það er óumdeilt að þessi hækkun er óháð gjaldmiðlum heimsins og stafar af aukinni eftirspurn m.a. Kínverja og spámennsku á mörkuðum. Þessi hækkun á heimsmarkaði leiddi beint til hækkunar á eldsneytis- verði á Íslandi. Verðhækkunin er þannig ekki verðbólgudrifin eða m.ö.o. ekki tilkomin vegna þess að peningar hafa tapað verðgildi sínu. Það sem síðan gerist í verð- tryggingarkerfi Íslendinga við þessar aðstæður er að verðhækk- unin mælist í vísitölu neysluverðs og þar sem hún er notuð beint til verðtryggingar verður ósamnings- bundin eignatilfærsla staðreynd t.d. með hækkun höfuðstóla veð- lána. Lánveitandinn fær hreinan arð líkt og hann væri í olíubrans- anum. Arðurinn kemur hins vegar úr vasa lántakandans, hrein eign hans í fasteigninni rýrnar. Fasteignaverð Fasteignaverð hefur mikið vægi í vísitölu neysluverðs, um 17% og því er hún mjög næm fyrir fast- eignaverði. Innkoma banka og sparisjóða á fasteignalánamark- aðinn ásamt hækkun lánshlutfalls Íbúðalánasjóðs er óumdeild megin- ástæða fyrir hinu risavaxna stökki á verði fasteigna í kjölfarið. Hærri veðhlutföll, betri vaxtakjör og hækkun hámarkslána settu kipp í eftirspurn eftir húsnæði sem leiddi til snarprar hækkunar á verði þeirra. Því er ekki til að dreifa að hækkun fasteignaverðs á þessu tímabili hafi verið verðbólgudrif- in. Í fyrsta lagi vegna þess að fast- eignaverð hækkaði langt umfram verðbólgu, en á árinu 2005 hækk- aði fasteignaverð um 32% á meðan vísitala neysluverðs hækkaði tæp- lega 6%. Í annan stað má benda á að gengisvísitalan fór stöðugt lækkandi frá hausti 2004 og út árið 2005, sem þýðir að gengi íslensku krónunnar var að styrkjast gagn- vart gengi helstu viðskiptaland- anna á tímabilinu og því í raun engin forsenda fyrir verðbólgu. Færa má rök fyrir því að mesti áhrifavaldur á breytingu vísitöl- unnar hafi einmitt verið fasteigna- verðið og þannig hafi lánveitendur fengið sinn skerf af fasteignagróð- anum með hækkun höfuðstóls fast- eignaveðlána. Verðbólga var engin eins og áður sagði í þeirri merk- ingu að peningar töpuðu almennt ekki verðgildi sínu heldur þvert á móti gátu Íslendingar fengið meira fyrir krónuna í helstu viðskipta- löndunum. Óumsamin eignatil- færsla átti sér stað. Það er einsýnt að frá hausti 2004 og fram til ársbyrjunar 2008 eru viðvarandi óumsamdar eigna- tilfærslur frá skuldurum til lán- veitenda vegna mistaka í fram- kvæmd verðtryggingarkerfisins. Höfuðstóll veðlána hækkaði langt umfram verðbólgu og verðbóta- þáttur greiðslna af veðlánum var langt umfram það sem raunveru- leg verðbólga gat gefið. Sú við- leitni löggjafans að verja sparifé almennings með verðtryggingunni hefur snúist í höndum hans vegna þess að engin tilraun er gerð til að meta verðbreytingar óháðar kaupmætti peninga, þ.e. breyting- ar sem ekki tengjast verðbólgu og taka þær út úr neysluverðsvísitöl- unni. Það eru meginmistök í fram- kvæmd verðtryggingar á Íslandi að skilgreina allar breytingar á vöru og þjónustu sem verðbólgu- breytingar, m.ö.o. að allar verð- breytingar stafi af því að pening- ar hafi tapað verðgildi. Allir sem vilja geta séð að það er fræðilega ómögulegt að allar verðbreytingar hverju nafni sem nefnist stafi af verðbólgu (stafi af því að verðgildi peninga rýrnar) því ef svo væri er jafnframt verið að segja að heimurinn sé óbreytan- legur. Þess vegna er líka fræðilega ómögulegt að vísitala neysluverðs sé sanngjarn grunnur til leiðrétt- ingar á verðbólgu því hún tekur til allra verðbreytinga. Álykta má að það sé með öllu ólöglegt að verðtrygging sé trygg- ing fyrir öðru en áhrifum verð- bólgu. Í fyrsta lagi vegna þess að í lögum um verðtryggingu (grein- argerð með frumvarpi) er tekið á því að verðtryggingunni sé ætlað að leiðrétta fyrir verðbólgu án þess að annað sé nefnt. Í öðru lagi vegna þess að ef hún er trygging fyrir öðru verður óhjákvæmilega raunveruleg og óumsamin eigna- tilfærsla milli lántaka og lánveit- anda. Í fljótu bragði reiknast mér að ólögleg höfuðstólshækkun veðlána sé a.m.k. 10% á umræddu tímabili vegna atvikshækkana fasteigna- verðs og olíu og bensíns. Áður en Ólafslög tóku gildi var hrikaleg eignatilfærsla í gangi til skuldara frá sparifjáreigendum og lánendum. Þó er ekki hægt að segja lög hafi beinlínis verið brot- in. Stjórnvöldum mistókst einfald- lega hagstjórnin og virði peninga þvarr með miklum hraða. Í stað þess að bæta hagstjórnina ákváðu stjórnvöld að innleiða verðtrygg- ingu fjárskuldbindinga. Hér hefur verið bent á að við framkvæmd verðtryggingarinnar hefur dæmið snúist við. Nú er í gangi hrikaleg eignatilfærsla frá skuldaranum til lánveitandans. En nú ættu hins vegar þolendur að geta varið sig því framkvæmdin byggir á lögum sem augljóslega standast þá ekki sterkara lagaákvæði Stjórnar- skrárinnar sem varðar friðhelgi eignarréttarins. Þannig er hægt að vinda ofan af þessum hörmungum ef lögum er fylgt. Aðal meinið felst í því að vísitala neysluverðs er notuð óbrengluð til verðtryggingar. Vísitalan er ágæt til síns brúks: að miðla upplýsing- um um breytingar á verði vöru og þjónustu, en hún er ósanngjarn og ólöglegur grunnur til verðtrygg- ingar. Skorað er á stjórnvöld að leita leiða til að leiðrétta ólögmætar eignatilfærslur sem eru afleiðing af ónákvæmri framkvæmd verð- tryggingarinnar. Höfundur er vélaverkfræðingur. Ólögmæt aðför að eignum skuldara ÖRN KARLSSON Aðal meinið felst í því að vísitala neysluverðs er notuð óbrengl- uð til verðtryggingar. Vísitalan er ágæt til síns brúks: að miðla upplýsingum um breytingar á verði vöru og þjónustu, en hún er ósanngjarn og ólöglegur grunnur til verðtryggingar. VITA er í eigu Icelandair Group. VITA er lífið VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 Dublin í haust GROUP Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is ÍS L E N S K A S IA .I S V IT 4 73 29 0 9 /0 9 Við vildum að farþegum liði eins og þeir væru heima hjá sér þegar við settum ný sæti og nýtt afþreyingarkerfi í flugflota Icelandair. Hver farþegi hefur sinn eigin skjá þar sem er í boði án endurgjalds fjölbreytt úrval af kvikmyndum, vinsælum sjónvarpsþáttum, tónlist og tölvuleikjum. Hver og einn velur sína eigin dagskrá og getur auk þess sótt upplýsingar um flugferðina sjálfa og margt fleira. Beint morgunflug, glæsilegur flugkostur. Hjá VITA eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar keyptar ferðir í leiguflugi með VITA. Þannig öðlast þú stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins. Auk þess getur þú lækkað verðið á ferðinni þinni um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum. Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur 22. – 26. okt. Bjóðum upp á gistingu á besta stað í Dublin. Nóttin frá 8.900 kr. á mann í tvíbýli á Maldron Hotel Parnell Square. Fjölmörg önnur hótel eru einnig í boði. Sjá nánar á www.VITA.is Verð frá 19.900 kr.* og 15.000 Vildarpunktar á mann m.v. flug fram og til baka með flugvallarsköttum 22.-26. okt. *Almennt verð: 29.900 kr. VITA býður upp á fjögurra nátta haustferð til Dublin á frábæru verði. Dublin er einstök borg sem iðar af lífi og stemningu. Gistimöguleikar frá 8.900 kr. nóttin
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.