Fréttablaðið - 19.09.2009, Blaðsíða 74
46 19. september 2009 LAUGARDAGUR
Það er í nógu að snúast hjá
Daníel Ágústi Haraldssyni.
Hann varð faðir í annað
sinn fyrir skemmstu en
þarf að taka sér frí frá
bleyjuskiptingum innan
tíðar til að spila á tónleikum
úti í heimi með teknóhljóm-
sveitinni sinni, GusGus.
Hljómsveitin GusGus hefur verið
starfrækt frá árinu 1995 og hefur
síðan þá gengið í gegnum þó
nokkrar breytingar. Sveitin, sem
í upphafi var tólf manna fjöllista-
hópur, er nú skipuð þeim Daníel
Ágústi Haraldssyni, Birgi Þórar-
inssyni og Stephan Stephensen,
en Daníel Ágúst gekk aftur til
liðs við hljómsveitina í lok ársins
2007 eftir brotthvarf söngkonunn-
ar Urðar Hákonardóttur. Auk þess
að hafa gengið til liðs á ný við Gus-
Gus sinnir Daníel Ágúst öðrum
tónlistarverkefnum ásamt því að
vera nýbakaður faðir.
Aðspurður segir Daníel Ágúst
að það hafi verið mjög auðveld
ákvörðun að ganga aftur til liðs
við hljómsveitina og að hann hafi
í raun aldrei alveg hætt. „Ég hef
alltaf átt lög á plötum GusGus
eftir að ég hætti og því var þetta
mjög eðlileg ákvörðun. GusGus
er fyrirbæri líkt og einfrumung-
ur sem breytist og mótast á ófyr-
irsjáanlegan hátt þannig að maður
er stanslaust að upplifa eitthvað
nýtt og fær því aldrei nóg,“ segir
söngvarinn. Hljómsveitin tók upp
sína sjöttu breiðskífu, sem ber
nafnið 24/7, í Tankinum við Flat-
eyri í vetur. Platan, sem þykir
nokkuð rólegri en fyrri plötur
hljómsveitarinnar, hefur hlot-
ið góða dóma gagnrýnenda. „Ég
held að það megi alveg kalla þetta
rólegra partí, en tónlistin er á
ágætum hraða fyrir mig því ég er
orðinn svo gamall,“ segir Daníel
Ágúst brosandi.
Erfitt að fara frá fjölskyldunni
Fyrir gerð plötunnar ákváðu
hljómsveitarmeðlimir að breyta
ímynd sinni með aðstoð hárdokt-
orsins Jóns Atla Helgasonar og
segir Daníel Ágúst að útlitsbreyt-
ingin hafi komið í kjölfar manna-
breytinganna innan sveitarinnar.
„Eftir að við ákváðum að vera bara
þrír strákar í strákabandi ákváð-
um við að hafa snyrtimennskuna í
fyrirrúmi og vera svolítið stráks-
legir þrátt fyrir að vera komn-
ir á miðjan aldur og fengum Jón
Atla til að aðstoða okkur við þá
umbreytingu,“ útskýrir hann.
GusGus mun fylgja nýrri plötu
eftir með ströngu tónleikahaldi
og segist Daníel Ágúst bæði kvíða
fyrir ferðalaginu og hlakka til.
„Þetta verður þriggja vikna ferða-
lag og sextán tónleikar þannig að
þetta verður mikið álag bæði á sál
og líkama. Það verður líka erfitt
að vera frá fjölskyldunni í þenn-
an tíma, en ég treysti á félagana
til að gera þetta skemmtilegt,“
segir Daníel Ágúst, sem eignað-
ist sitt annað barn hinn 11. sept-
ember síðastliðinn með sambýlis-
konu sinni, listakonunni Kitty von
Sometime. Fyrir á hann dóttur úr
fyrra hjónabandi og á sú tveggja
ára gamla dóttur. „Fæðingin
gekk mjög vel og allir eru ánægð-
ir og hamingjusamir. Eldri dóttir
mín og barnabarn búa hjá okkur
þannig að ég sem karlmaður er í
miklum minnihluta á heimilinu.“
Aðspurður segir hann vissulega
skrýtið að hugsa til þess að hann
sé nú afi í teknóhljómsveit. „Það er
fyndið að hugsa til þess að maður
sé teknóafi, en fólk sem er komið
yfir miðjan aldur hættir ekki að
skapa fyrir það og tónlistin er það
sem ég geri,“ segir Daníel Ágúst.
Tónlistin er eins og leikvöllur
Auk þess að starfa með GusGus er
Daníel Ágúst að sinna sólóverkefn-
um og syngur einnig með hljóm-
sveitunum Nýdönsk og Esju. Hann
segist ekki eiga í vandræðum með
að skipta svo ört á milli tónlistar-
stefna, heldur sé það orðið honum
eðlislægt. „Tónlistin er eins og
leikvöllur fyrir mér, maður hefur
ekki gaman af því að hanga allt-
af í sama leiktækinu. Það sem ég
fæ til dæmis út úr því að spila
með Nýdönsk er að þar syng ég á
íslensku, sem er allt öðruvísi en að
syngja á ensku eins og ég geri með
Esju og GusGus,“ útskýrir Daníel
Ágúst.
Þrátt fyrir að vera þaulvanur
söngvari segist Daníel Ágúst enn
finna fyrir örlitlum sviðsskrekk
fyrir tónleikahald. „Ég kann vel
við mig á sviðinu. Það sem ger-
ist er að það eiga sér stað ein-
hver hamskipti og maður hverfur
algjörlega inn í tónlistina og það
myndast orka sem verður aðeins
til þegar maður er uppi á sviði. Það
er eins og áhorfandinn taki þátt í
því hvernig tónlistarflutningur-
inn þróast. En ég neita því ekki að
ég fæ enn smá sviðsskjálfta fyrir
tónleika,“ segir Daníel Ágúst að
lokum.
Útgáfutónleikar GusGus fara
fram laugardaginn 26. september
næstkomandi í bakgarði verslun-
arinnar Nikita við Laugaveg 56.
Aðgangur er ókeypis og hefjast
tónleikarnir klukkan 21.00.
sara@frettabladid.is
Auðvitað er fyndið að syngja með
GusGus þegar maður er orðinn afi
MEÐ MÖRG JÁRN Í ELDINUM Auk þess að syngja með nokkrum hljómsveitum er Daníel Ágúst orðinn faðir á ný. Hann segir mikið
líf og fjör ríkja á heimilinu þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Bandaríski leikstjórinn Kimberly
Reed tekur þátt í málþingi í kjöl-
far sýningar á mynd sinni Efnis-
piltar í Norræna húsinu á morg-
un. Myndin fjallar á einstakan
hátt um kyngervi og sjálfsmynd
og hefur hvarvetna vakið mikla
athygli. Kemur upp úr kafinu að
ættleiddur bróðir Kimberly er
barnabarn Orsons Welles og Ritu
Hayworth. Myndin er sýnd kl.
14 í tilefni af Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð. Sigursteinn Másson,
formaður Geðhjálpar, og Anna
Jonna Kristjánsdóttir, formað-
ur Trans Íslands, taka þátt í mál-
þinginu. Ítalska myndin Hádeg-
isverður um miðjan ágúst verður
einnig sýnd í Norræna húsinu
á morgun og í beinu framhaldi
verður í boði málsverður á Dill.
Kyngervi og
sjálfsmynd
Robbie Williams snýr aftur í
sviðsljósið í næsta mánuði þegar
hann treður upp sem gestur í X-
Factor þættinum breska. Þetta
verður í fyrsta sinn síðan 2006
sem Robbie syngur opinberlega
í Bretlandi. Robbie mun syngja
glænýtt lag, Bodies. Áttunda
sólóplata hans er svo væntanleg í
nóvember og heitir Reality Kill-
ed the Video Star. Platan er unnin
af Trevor Horn og titillinn er til-
vitnun í lagið Video Killed the
Radio Star, sem Trevor flutti með
hljómsveit sinni The Buggles
árið 1979.
Robbie snýr
aftur í X-Factor
Ryan Seacrest, fíngerði kynnir-
inn í American Idol, varð fyrir
óskemmtilegri reynslu á dög-
unum. Hann var að koma út af
spítala í Kali-
forníu þegar
ókunnugur
maður bað
hann um eig-
inhandarárit-
un. Ryan varð
við bóninni en
þá færði mað-
urinn sig upp
á skaftið og
elti Ryan að
bíl hans og var
með skæting. Lífvörður Ryans
gekk á milli og kom til slags-
mála. Þegar fjaðurhnífur fannst
á aðdáandanum æsta þótti ástæða
til að kalla á lögguna sem mætti
á svæðið og fjarlægði þann óða.
Ryan var brugðið en hann verð-
ur örugglega búinn að jafna sig
þegar American Idol hefst að
nýju í janúar.
Átök hjá Ryan
RYAN SEACREST
ROBBIE WILLIAMS Syngur opinberlega í
fyrsta skipti í þrjú ár í Bretlandi.
ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR Formaður
Trans Íslands tekur þátt í málþinginu á
morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN