Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 74

Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 74
46 19. september 2009 LAUGARDAGUR Það er í nógu að snúast hjá Daníel Ágústi Haraldssyni. Hann varð faðir í annað sinn fyrir skemmstu en þarf að taka sér frí frá bleyjuskiptingum innan tíðar til að spila á tónleikum úti í heimi með teknóhljóm- sveitinni sinni, GusGus. Hljómsveitin GusGus hefur verið starfrækt frá árinu 1995 og hefur síðan þá gengið í gegnum þó nokkrar breytingar. Sveitin, sem í upphafi var tólf manna fjöllista- hópur, er nú skipuð þeim Daníel Ágústi Haraldssyni, Birgi Þórar- inssyni og Stephan Stephensen, en Daníel Ágúst gekk aftur til liðs við hljómsveitina í lok ársins 2007 eftir brotthvarf söngkonunn- ar Urðar Hákonardóttur. Auk þess að hafa gengið til liðs á ný við Gus- Gus sinnir Daníel Ágúst öðrum tónlistarverkefnum ásamt því að vera nýbakaður faðir. Aðspurður segir Daníel Ágúst að það hafi verið mjög auðveld ákvörðun að ganga aftur til liðs við hljómsveitina og að hann hafi í raun aldrei alveg hætt. „Ég hef alltaf átt lög á plötum GusGus eftir að ég hætti og því var þetta mjög eðlileg ákvörðun. GusGus er fyrirbæri líkt og einfrumung- ur sem breytist og mótast á ófyr- irsjáanlegan hátt þannig að maður er stanslaust að upplifa eitthvað nýtt og fær því aldrei nóg,“ segir söngvarinn. Hljómsveitin tók upp sína sjöttu breiðskífu, sem ber nafnið 24/7, í Tankinum við Flat- eyri í vetur. Platan, sem þykir nokkuð rólegri en fyrri plötur hljómsveitarinnar, hefur hlot- ið góða dóma gagnrýnenda. „Ég held að það megi alveg kalla þetta rólegra partí, en tónlistin er á ágætum hraða fyrir mig því ég er orðinn svo gamall,“ segir Daníel Ágúst brosandi. Erfitt að fara frá fjölskyldunni Fyrir gerð plötunnar ákváðu hljómsveitarmeðlimir að breyta ímynd sinni með aðstoð hárdokt- orsins Jóns Atla Helgasonar og segir Daníel Ágúst að útlitsbreyt- ingin hafi komið í kjölfar manna- breytinganna innan sveitarinnar. „Eftir að við ákváðum að vera bara þrír strákar í strákabandi ákváð- um við að hafa snyrtimennskuna í fyrirrúmi og vera svolítið stráks- legir þrátt fyrir að vera komn- ir á miðjan aldur og fengum Jón Atla til að aðstoða okkur við þá umbreytingu,“ útskýrir hann. GusGus mun fylgja nýrri plötu eftir með ströngu tónleikahaldi og segist Daníel Ágúst bæði kvíða fyrir ferðalaginu og hlakka til. „Þetta verður þriggja vikna ferða- lag og sextán tónleikar þannig að þetta verður mikið álag bæði á sál og líkama. Það verður líka erfitt að vera frá fjölskyldunni í þenn- an tíma, en ég treysti á félagana til að gera þetta skemmtilegt,“ segir Daníel Ágúst, sem eignað- ist sitt annað barn hinn 11. sept- ember síðastliðinn með sambýlis- konu sinni, listakonunni Kitty von Sometime. Fyrir á hann dóttur úr fyrra hjónabandi og á sú tveggja ára gamla dóttur. „Fæðingin gekk mjög vel og allir eru ánægð- ir og hamingjusamir. Eldri dóttir mín og barnabarn búa hjá okkur þannig að ég sem karlmaður er í miklum minnihluta á heimilinu.“ Aðspurður segir hann vissulega skrýtið að hugsa til þess að hann sé nú afi í teknóhljómsveit. „Það er fyndið að hugsa til þess að maður sé teknóafi, en fólk sem er komið yfir miðjan aldur hættir ekki að skapa fyrir það og tónlistin er það sem ég geri,“ segir Daníel Ágúst. Tónlistin er eins og leikvöllur Auk þess að starfa með GusGus er Daníel Ágúst að sinna sólóverkefn- um og syngur einnig með hljóm- sveitunum Nýdönsk og Esju. Hann segist ekki eiga í vandræðum með að skipta svo ört á milli tónlistar- stefna, heldur sé það orðið honum eðlislægt. „Tónlistin er eins og leikvöllur fyrir mér, maður hefur ekki gaman af því að hanga allt- af í sama leiktækinu. Það sem ég fæ til dæmis út úr því að spila með Nýdönsk er að þar syng ég á íslensku, sem er allt öðruvísi en að syngja á ensku eins og ég geri með Esju og GusGus,“ útskýrir Daníel Ágúst. Þrátt fyrir að vera þaulvanur söngvari segist Daníel Ágúst enn finna fyrir örlitlum sviðsskrekk fyrir tónleikahald. „Ég kann vel við mig á sviðinu. Það sem ger- ist er að það eiga sér stað ein- hver hamskipti og maður hverfur algjörlega inn í tónlistina og það myndast orka sem verður aðeins til þegar maður er uppi á sviði. Það er eins og áhorfandinn taki þátt í því hvernig tónlistarflutningur- inn þróast. En ég neita því ekki að ég fæ enn smá sviðsskjálfta fyrir tónleika,“ segir Daníel Ágúst að lokum. Útgáfutónleikar GusGus fara fram laugardaginn 26. september næstkomandi í bakgarði verslun- arinnar Nikita við Laugaveg 56. Aðgangur er ókeypis og hefjast tónleikarnir klukkan 21.00. sara@frettabladid.is Auðvitað er fyndið að syngja með GusGus þegar maður er orðinn afi MEÐ MÖRG JÁRN Í ELDINUM Auk þess að syngja með nokkrum hljómsveitum er Daníel Ágúst orðinn faðir á ný. Hann segir mikið líf og fjör ríkja á heimilinu þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Bandaríski leikstjórinn Kimberly Reed tekur þátt í málþingi í kjöl- far sýningar á mynd sinni Efnis- piltar í Norræna húsinu á morg- un. Myndin fjallar á einstakan hátt um kyngervi og sjálfsmynd og hefur hvarvetna vakið mikla athygli. Kemur upp úr kafinu að ættleiddur bróðir Kimberly er barnabarn Orsons Welles og Ritu Hayworth. Myndin er sýnd kl. 14 í tilefni af Alþjóðlegri kvik- myndahátíð. Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar, og Anna Jonna Kristjánsdóttir, formað- ur Trans Íslands, taka þátt í mál- þinginu. Ítalska myndin Hádeg- isverður um miðjan ágúst verður einnig sýnd í Norræna húsinu á morgun og í beinu framhaldi verður í boði málsverður á Dill. Kyngervi og sjálfsmynd Robbie Williams snýr aftur í sviðsljósið í næsta mánuði þegar hann treður upp sem gestur í X- Factor þættinum breska. Þetta verður í fyrsta sinn síðan 2006 sem Robbie syngur opinberlega í Bretlandi. Robbie mun syngja glænýtt lag, Bodies. Áttunda sólóplata hans er svo væntanleg í nóvember og heitir Reality Kill- ed the Video Star. Platan er unnin af Trevor Horn og titillinn er til- vitnun í lagið Video Killed the Radio Star, sem Trevor flutti með hljómsveit sinni The Buggles árið 1979. Robbie snýr aftur í X-Factor Ryan Seacrest, fíngerði kynnir- inn í American Idol, varð fyrir óskemmtilegri reynslu á dög- unum. Hann var að koma út af spítala í Kali- forníu þegar ókunnugur maður bað hann um eig- inhandarárit- un. Ryan varð við bóninni en þá færði mað- urinn sig upp á skaftið og elti Ryan að bíl hans og var með skæting. Lífvörður Ryans gekk á milli og kom til slags- mála. Þegar fjaðurhnífur fannst á aðdáandanum æsta þótti ástæða til að kalla á lögguna sem mætti á svæðið og fjarlægði þann óða. Ryan var brugðið en hann verð- ur örugglega búinn að jafna sig þegar American Idol hefst að nýju í janúar. Átök hjá Ryan RYAN SEACREST ROBBIE WILLIAMS Syngur opinberlega í fyrsta skipti í þrjú ár í Bretlandi. ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR Formaður Trans Íslands tekur þátt í málþinginu á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.