Fréttablaðið - 19.09.2009, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 19.09.2009, Blaðsíða 62
34 19. september 2009 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is JÓHANN HAFSTEIN FORSÆTISRÁÐHERRA VAR FÆDDUR ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1915. „Frumskilyrðið til þess að styrkja heildina er að stæla og vernda persónuleika einstaklinganna.“ Jóhann Hafstein var lögfræðingur að mennt. Hann var bankastjóri Út- vegsbankans í ellefu ár, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins um tíma, dóms- og kirkjumála- og iðn- aðarráðherra um árabil og forsætis- ráðherra í eitt ár, frá júní 1970. MERKISATBURÐIR 1667 „Gullskipið“ Het Wapen van Amsterdam strand- ar á Skeiðarársandi með farm af gulli og dýrum steinum. 140 manna áhöfn ferst. 1802 Síamstvíburar, samvax- in stúlkubörn, fæðast í Rangárvallasýslu. 1874 Blaðið Ísafold hefur göngu sína. 1905 Vígð er 170 metra hengi- brú í Öxarfirði yfir Jökulsá á Fjöllum. 1981 Tungufoss sekkur á Erm- arsundi en áhöfninni var bjargað. 1985 Jarðskjálfti sem mælist 8,1 á Richter skekur Mexíkó- borg og 5.000 manns bíða bana. Jón L. Árnason vann það afrek að verða heims- meistari sveina í skák, þennan dag árið 1977, aðeins sextán ára gamall. Eini keppandinn sem sigraði Jón var Garrí Kasparov en hann hafnaði í þriðja sæti. Heimsmeistaramót unglinga í skák var haldið í Frakklandi þetta ár. Jón L. hlaut þar níu vinninga af ellefu mögulegum. Í öðru sæti var Bandaríkjamað- urinn Jay Whitehead með átta og hálfan vinning og þriðji varð Garrí Kasparov, eins og áður sagði. Hann var þá unglingameistari Sovétríkjanna og hlaut átta vinninga á heimsmeistaramótinu. Árangur Jóns á mótinu vakti að vonum eftirtekt og var honum vel tekið við heimkomuna. Aðstoðar- maður hans var Margeir Pétursson. Jón L. var nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð á þessum tíma. Hann byrjaði að tefla tólf ára gamall og rakti upphaf skákáhugans til heimsmeistaraeinvígis Fischers og Spasskys hér á landi. ÞETTA GERÐIST: 19. SEPTEMBER 1977 Jón L. sextán ára heimsmeistari HEIMSMEISTARINN Jón L. við komuna til landsins. Með honum eru Óli Tynes og Ólafur Ragnarsson. „Soroptimistaklúbbur Reykjavíkur hefur unnið hljóðlátt starf í fimmtíu ár og þegar ég fór að grúska í sögu hans kom mér á óvart hversu mikið hann hefur gefið þeim sem hafa verið hjálpar þurfi. Konur eru meira fyrir að láta verk- in tala en tala um verkin.“ Þetta segir Sigrún Klara Hann- esdóttir prófessor, ein þriggja kvenna í ritnefnd nýrrar bókar, Samtaka systur - Soroptimistaklúbbur Reykjavíkur fyrstu fimmtíu árin, 1959-2009. „Erla Björnsdóttir og Sig- urlín Gunnarsdóttir fóru í gegnum fundargerðarbækur og drógu saman það markverðasta í starfinu og ég bjó til texta utan um það en margar fleiri konur í okkar klúbbi hafa lagt hönd á plóg,“ lýsir Sigrún Klara. „Svo eru viðtöl í bókinni og hún er mikið myndskreytt. Við erum til dæmis með myndir af öllum klúbbsystrum, ásamt æviágripum þeirra.“ Sigrún Klara kveðst hafa gengið í klúbbinn 1984. „Ég hafði unnið með Halldóru Eggertsdóttur sem var eigin- lega Soroptimistakona númer eitt og hún dreif mig inn. Mér fannst þetta spennandi en hafði ekki mikinn tíma því ég var þá að skrifa doktorsritgerðina mína. Halldóra hlustaði ekki á neinar mótbárur og ég er henni þakklát fyrir það,“ segir Sigrún Klara og lýsir hefðum á fundum klúbbsins sem haldnir eru fyrsta mánudag í hverjum mánuði. „Við hitt- umst á veitingastað og borðum kvöldverð og fyrst á dag- skránni er hvatning og síðan nafnakall. Orð til umhugsun- ar eru líka fastur liður og síðan fáum við alltaf fyrirlesara sem miðlar okkur einhverjum fróðleik.“ Það fyrsta sem klúbburinn beitti sér fyrir var að gleðja Breiðavíkurdrengina með gjöfum og heimsóknum að sögn Sigrúnar Klöru. „Þetta stóð hjarta Soroptimista næst fyrir fimmtíu árum og þess vegna hefur verið sárt að heyra að undanförnu hvað drengirnir máttu líða. Í okkar klúbbi eru konur alls staðar úr samfélaginu, með fingur á púlsi og á uppgangstímum hjá þjóðinni beindust sjónir að konum er- lendis. Ein félagskonan vann á vegum þróunarstofnunar í Malaví. Við sendum þangað gáma með hjálpargögnum sem var dreift á sjúkrahús og barnaheimili og endaði með að gámurinn var gerður að bókasafni. Við höfum styrkt Konu- kot og veitt konum námsstyrki sem þær hefur munað um þó ekki væru þeir stórir.“ Servíettusala og framleiðsla ferðafatapoka eru dæmi um fjáröflun klúbbsins gegnum tíðina. Nú er fyrirhugað að halda opið kvenna-golfmót 5. júní 2010 í Golfklúbbnum Oddi og Sigrún Klara hvetur golfkonur til að taka daginn frá. „Allur ágóði af mótinu rennur til styrktar málefnum barna á Íslandi,“ tekur hún fram. Soroptimistaklúbbur Reykjavíkur er elsti klúbburinn af sextán á landinu. Auk hins veglega rits hefur verið haldið upp á hálfrar aldar afmæli hans með haustfundi og blóm- sveigur verið lagður á leiði Halldóru Eggertsdóttur, „gúrú klúbbsins“ eins og Sigrún Klara orðar það. Í dag verður svo hátíð í Súlnasal Hótels Sögu. gun@frettabladid.is SOROPTIMISTAKLÚBBUR REYKJAVÍKUR: FAGNAR 50 ÁRA AFMÆLI MEÐ BÓK Glöddu Breiða- víkurdrengi SIGRÚN KLARA Bókartitillinn Samtaka systur er að hluta sóttur í þýð- ingu á orðinu soroptimist. Það kemur úr latnesku orðunum tveimur soror sem þýðir systir og optimae sem þýðir bestur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Skilti á krossa og legsteina skilti.123.is - 588 9960 100 ára afmæli Klara Vemundsdóttir Í tilefni af 100 ára afmæli mínu þann 21. september langar mig að bjóða vinum og ætting jum mínum í kaffi , sunnudaginn 20. september frá kl. 15.00-18.00 á Café Easy sem er í húsi ÍSÍ að Eng javegi 6, nánar tiltekið í Lottóhúsinu í Laugardal. Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengda- móðir, amma og langamma, Guðrún Guðmundsdóttir Hrafnistu í Reykjavík, lést fimmtudaginn 17. september. Guðmundur I. Kristófersson Ósk Davíðsdóttir Guðríður Kristófersdóttir Hallgrímur Jónasson Sigurður Kristófersson Hjördís Árnadóttir Ingveldur Þ. Kristófersdóttir Helgi Már Guðjónsson Hannes Kristófersson Guðríður Ólafsdóttir Helgi Kristófersson Guðrún Eysteinsdóttir Valgerður Eygló Kristófersdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Áslaug Kristín Sigurðardóttir Nesvegi 45 í Reykjavík, lést á Landakotspítala þriðjudaginn 15. september. Jón Eiríksson Björn Baldursson Hrafnhildur Baldursdóttir Sigurður Kristjánsson Bergljót Baldursdóttir Stefán Jökulsson Kolbrún Baldursdóttir Jón Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson MOSAIK Innilegar þakkir til allra sem sýndu elskulegum manninum mínum, föður og afa, Einari Strand Hraunbæ 49, Reykjavík, hjálpsemi í veikindum og fjölskyldunni samúð og hlý- hug við andlát hans og útför. Virðing ykkar við Einar helgar minninguna um hann. Erla Strand Einar Þór Strand Ágúst Níls Einarsson Strand Ásgerður Erla Einarsdóttir Strand Ingibjörg Helga Ágústsdóttir. Ástkær sonur minn og faðir okkar, Svanberg Teitur Ingimundarson vélstjóri, Klappastíg 5, Keflavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans hinn 14. sept- ember. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 23. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir hönd aðstandenda, Jóna Hjaltadóttir Hafþór Ingi og Sóley Ingunn Svanbergsbörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Guðmundsdóttir frá Leiðólfsstöðum, Laxárdal, Dalasýslu, áður til heimilis í Hraunbæ 87, Reykjavík, verður jarðsungin frá Langholtskirkju 22. september kl. 15.00. Svanur Ingvason Rán Einarsdóttir Sigmar Hlynur Sigurðsson Anna Guðný Guðjónsdóttir Eygló Björk Sigurðardóttir Elfa Brynja Sigurðardóttir Sigfús Haraldsson Margrét Ögn Rafnsdóttir Hrund Rafnsdóttir Berglind Sigmarsdóttir Harpa Rut Svansdóttir Sigurður Grétar Sigmarsson Brynjar Örn Þorleifsson Sóley Sigmarsdóttir makar og langömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.