Fréttablaðið - 19.09.2009, Blaðsíða 59
LAUGARDAGUR 19. september 2009 31
➜ MANSTU EFTIR ÞESSUM Á SKJÁ EINUM?
ROKKSTJARNAN Þjóðin fylgdist með
þegar Magni geði það gott í Rockstar
Súpernóva.
GOTT GRÍN Þorsteinn Guðmundsson
með glens á Skjá einum.
Leyndardómar Skýrslumálastofnunar -
„Leikinn“ erótískur sjónvarpsþáttur gerður eftir
handriti Barða í Bang Gang.
Pétur og Páll - Sindri Kjartansson sýndi svip-
myndir af hinum ýmsu vinahópum.
Samfarir Báru Mahrens - Bjarni Haukur stýrði
spjallþætti í kjól og með hárkollu.
Rósa - Rósa „á Spotlight“ lá á gæruskinni og
hringdi í fólk. Samtölin heyrðust þó illa því Rósa
var alltaf að blanda eitthvað í blandara.
Skotsilfur - Helgi Eysteinsson með spjallþátt
um verðbréfaviðskipti. Þótti ægilega nýmóðins
og flott.
Nonni sprengja - Gunnar Helgason með leik-
inn Jerry Springer-þátt.
Djúpa laugin - Stefnumótaþáttur Skjás eins
gekk í nokkur ár með ýmsum þáttarstjórnend-
um, en Kristbjörg Karí og Laufey Brá Jónsdóttir
áttu hugmyndina og stjórnuðu þættinum í
upphafi.
Fréttir - metnaðarfull sjónvarpsstöð verður að
vera með fréttir. Alræmdasta augnablik Skjás-
frétta var þegar Hannes H. Gissurason strunsaði
í burtu frá Sigursteini Mássyni sem hafði spurt
hann út í krassandi kjaftasögur.
Íslensk kjötsúpa - Erpur Evyvindarson, sem
„Johnny National“, tók sér Ali G til fyrirmyndar
í vinsælum þætti.
Konfekt - Barði í Bang Gang og Henrik í
Singapore Sling með útúrflippaðan grínþátt. Er
vinsæll á Youtube í dag.
Sílikon - Fyrirsætan Anna Rakel og Börkur úr
Jagúar (og síðar Finnur Vilhjálmsson) með
tíðarandaþátt fyrir ungt fólk.
Teikni/leikni - Vilhjálmur Goði og Hannes í
Buffinu með „pictionary“ í einföldustu sviðs-
mynd sjónvarpssögunnar.
Axel, Gunni og loks Björn og félagar - Hér var
ameríska spjallþáttahugmyndin nýtt. Hljóm-
sveitin Buff varð til í þessum þætti.
Bingó - Villi naglbítur með bingó í beinni. Vinn-
ingar voru meðal annars baðker og bíldruslur.
Tantra - Guðjón Bergmann og fólk sem fljót-
lega varð þekkt sem „Tantrafólkið“ ræddi kynlíf.
Heiti potturinn - Hugmyndin var að Finnur
Vilhjálmsson væri með spjallþátt ofan í heitum
potti. Það gekk ekki upp tæknilega að hafa vatn
í pottinum sem dreginn var inn í stúdíóið. Því
var þátturinn alltaf frekar hallærislegur þegar
allir sátu kappklæddir ofan í tómum potti.
Íslenski Bachelorinn - Þjóðin fylgist agndofa
með Steingrími velja sér kærustu.
Fyrirgefðu - Felix Bergsson reyndi að finna fólk
til að biðjast afsökunar. Þetta gekk ekki vel í
góðærinu, en gengi kannski betur í dag.
Rockstar Supernova - Hér varð Magni þjóð-
hetja.
Sjáumst með Silvíu Nótt - Hér varð Silvía þjóð-
hetja. Og svo óvinur þjóðarinnar númer eitt.
Atvinnumaðurinn - Þorsteinn Guðmundsson
með snjalla grínþætti.
Sigtið - Sjónvarpsstjarnan Frímann Gunnarsson
slær í gegn.
2006, þar af var fyrri leiktíðin
sýnd órugluð. Stöð 2 hirti að lokum
sýningarréttinn á enska boltan-
um aftur með ævintýralegu yfir-
boði. Sigríður Margrét Oddsdóttir
tók við árið 2007 og er enn fram-
kvæmdastjóri Skjás eins.
Upprunalegi Skjás eins-fíl-
ingurinn er einstakur í íslenskri
sjónvarpssögu. Innlend dagskrár-
gerð hefur aldrei verið jafn flipp-
uð, framsækin og tilraunagjörn
og þegar „lánsféð“ frá Símanum
flaut um allt. Eftir á að hyggja
hefði verið hægt að eyða stolnu
almannafé á margan verri hátt,
eins og seinni tíma dæmi sanna.
Haldið verður upp á tíu ára
afmæli Skjásins með tveggja tíma
skemmtidagskrá á afmælinu,
þriðjudaginn 20. október. Fjögur
þriðjudagskvöld þar á undan verða
sýndir skemmtiþættir í umsjón
Dóru Takefusa þar sem stiklað
verður á stóru í sögu stöðvarinnar.
Eflaust verður boðið upp á margt
sem fyndið og skemmtilegt er að
rifja upp. Skjár einn er enn ókeyp-
is og í mjög góðu stuði miðað við
allt og allt.
N Ý R J Ó G Ú R T D R Y K K U RM S . I S
H
ÍV
T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
9
-
1
4
9
2
NÝR JÓ
GÚRT
DRYKK
UR
ENGIN
SÆTUEFNI
3%
HVÍTUR
SYKUR
AÐEINS
AÐEINS
1% FITA20%
ÁVEXTIR
HRESS Helgi Þór Arason og Gunnhildur
Helga Gunnarsdóttir stjórnuðu þættin-
um Djúpu lauginni um skeið.