Fréttablaðið - 19.09.2009, Blaðsíða 37
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
„Ég er að fara í smalamennsku
austur í Þingvallasveit. Byrja á
að heilsa upp á fólkið mitt á Heið-
arbæ I. Þar búa Jóhannes bróðir
og Björg kona hans og ég vona að
Jóhannes verði búinn að finna ein-
hvern góðan hest handa mér í smöl-
unina. Það mál var í vinnslu síðast
þegar ég vissi. En þetta eru ekkert
langar göngur, það er bara verið að
smala Mosfellsheiðina.“ Þetta segir
Margrét og hlakkar greinilega til
dagsins enda segir hún eftirsókn-
arvert að taka þátt í haustsmölun
á heiðinni. „Ég veit dæmi þess að
erfiðlega gengur að fá fólk í smala-
mennsku en það er ekki vandamál
hjá okkur því mikið einvalalið af
frændum, frænkum, vinum og
vandamönnum hefur boðað komu
sína. Það liggur við að fólk verði að
taka númer,“ segir hún hlæjandi.
Um miðjan dag á Margrét von
á að féð verði komið í rétt og þá
verði tekið til óspilltra málanna við
að handsama það og draga í dilka.
Sonur Margrétar, Oddur Auðuns-
son, á fimmta ári, ætlar ekki að
láta sig vanta við þá athöfn. Hann
er spenntur að sjá hvort hann
heimti kindina sína, hana Margréti
Þórhildi. Móðir hans á hins vegar
enga kind – ekki lengur. „En ég átti
fé í gamla daga,“ segir hún og man
vel fjármarkið sem hún fékk í arf
frá móður sinni og gekk til bróður-
dóttur hennar, Svanborgar Signýj-
ar, heimasætu á Heiðarbæ. „Það er
jaðrað framan hægra og biti aftan
vinstra.“ Þegar hváð er eftir „jaðr-
að“ segir hún það kallað „hálftaf“ í
sumum sveitum.
Á morgun halda flestir smala-
menn fjárleitum áfram. Þá verð-
ur farið í Botnssúlur, Búrfell og
Ármannsfell en hún gerir ráð
fyrir að nýta sunnudaginn í lest-
ur. „Ég er komin í nám aftur og
enn,“ útskýrir hún. „Það er meist-
aranám í hagnýtri menningarmiðl-
un í Háskóla Íslands og ég er í því
meðfram starfi svo ég verð að nota
hverja stund til að lesa.“
gun@frettabladid.is
Smölun og lærdómur
Annasöm en vonandi ánægjuleg helgi bíður Margrétar Sveinbjörnsdóttur almannatengslaráðgjafa. Hún
ætlar að taka þátt í fjársmölun og réttarstússi í sinni sveit í dag og leggjast svo yfir lexíur á morgun.
Oddur og Margrét hlakka til að fara í sveitina í dag og hitta fólk og fénað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BLIKSMIÐJA er barna- og fjölskyldusýning á Kjarvalsstöðum. Í dag klukk-
an 14 tekur fræðslufulltrúi Listasafns Reykjavíkur á móti fjölskyldufólki. Farið
verður um sýninguna Blik en á eftir bíður gesta skemmtileg glíma í Bliksmiðj-
unni þar sem hægt er að spreyta sig á ýmsum verkefnum sem tengjast sjón-
blekkingum og vísindum. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
STIGAR
Allar mögulegar gerðir og stærðir
smíðað eftir óskum hvers og eins
Beygjanlegir Handlistar & Gólflistar
Loftastigar, Innihurðir, Gerefti
Gólflistar, Franskir gluggar í hurðir
Smíðum Harmonikkuhurðir eftir máli
Bílkerrur úr Áli frá Anssems í Hollandi
Mex - byggingavörur
Sími 567 1300 og 848 3215
www.byggingavorur.com
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Meirapróf
Upplýsingar og innritun
í síma 5670300
NÝTT NÁMSKEIÐ HEFST 23. SEPTEMBER
pplýsingar og innritun í
síma 567 0300 / 894-2737
Tungumál
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
Áhersla á talmál
Kennt er í byrjenda -
framhalds –
og talæfi ngafl okkum
ENSKA
Enska I - II
Enska III
Enska V
Enska tal og les
Enska fyrir útlendinga
DANSKA
Danska I – II
NORSKA
Norska I – II
Norska III
SÆNSKA
Sænska I – II
Sænska tal og les
FRANSKA
Franska I
Franska III
ÍTALSKA
Ítalska I
Ítalska II
Ítalska III
Innritun og upplýsingar: http:// kvoldskoli.kopavogur.is
eða á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla við Furugrund í síma 564 1507- Nánari upplýsingar eru einnig á vefsíðu skólans
Tungumála
námskeið
SPÆNSKA
Spænska I
Spænska II
Spænska III
Spænska IV
Spænska tal og les
ÞÝSKA
Þýska I
Þýska II
Icelandic
for foreigners I-V
10 weeks courses
60 class hours
Kurs jezyka
Islandzkiego dla
obcokrajowcow I-V
Kurs 10-tygodniowy
60 godzin lekcyjnych
Verklegar greinar
Frístundamálun
Glerbrennsla
Skrautritun
Prjónanámskeið
Grunnnámskeið í að prjóna
Peysuprjón
Saumanámskeið
Að breyta fötum og endur-
sauma
Crazy quilt
Fatasaumur
Skrautsaumur
Þjóðbúningur -saumaður
Tölvunámskeið
Fingrasetning
Tölvugrunnur
Word
Excel
Matreiðslunámskeið
Hráfæði
Matarmiklar súpur
og heimabakað brauð
Matargerð fyrir karlmenn
Garðyrkjunámskeið
Garðurinn allt árið
Trjáklippingar
Förðunarnámskeið
Að farða sig og aðra
Fjöldi annarra
námskeiða eru í boði.
Verkleg
námskeið