Fréttablaðið - 19.09.2009, Blaðsíða 34
Fjögurra sýninga leikhúskort
kostar aðeins kr. 9.900
FÁÐU ÞÉR KORT!
Hringdu í síma 551 1200 eða
smelltu þér á leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Fös 18/9 kl. 20:00 U
Lau 19/9 kl. 20:00 U
Fös 25/9 kl. 20:00 U
Lau 26/9 kl. 20:00 U
Fös 2/10 kl. 20:00 U
Lau 3/10 kl. 20:00 Ö
Fim 8/10 kl. 20:00 U
Fös 9/10 kl. 20:00 Ö
Lau 10/10 kl. 20:00 Ö
Ákaflega myndræn og flott leiksýning ...
get mælt með henni.
Felix Bergsson, Rás2
Sýningin var leikhús eins og það á að vera.
Skemmtileg, lífleg og töfrandi.
Karl Pétur Jónsson, Pressan.is
Sölu áskriftarkorta lýkur 30. september!
annig segja til-
kynningar
frá LR
að þar
á bæ
verði
sölumet
síðasta
árs slegið:
áskrifenda-
fjöldi frá vetr-
inum 20 07-
2008 átjánfaldist,
stefni nú í ríflega níu
þúsund áskrifendur.
Leikhúsiðnaðurinn í landinu
sendir í lok hvers leikárs aðsókn-
artölur til Hagstofunnar og þar
er haldið utan um sýningafjölda,
hversu margar sviðsetningar
komu upp og hvernig þær deilast
niður eftir greinum. Þessar tölur
eru ekki greindar eftir verkefn-
um, nema í tilviki Þjóðleikhússins.
Hvorki Borgarleikhús né Leikfé-
lag Akureyrar vildu við undirbún-
ing þessarar greinar leggja fram
sundurgreindar tölur um aðsókn á
verkefni. Bæði félögin þiggja stóra
styrki frá opinberum aðilum, bæði
sveitarfélagi og ríki, en samt telja
forráðamenn þeirra ekki ástæðu
til upplýsingagjafar um einstök
verk.
207.576 gestir
LR hefur gert mikið með gesta-
fjölda á síðasta ári, en þeir voru
taldir rúmlega 207 þúsund. Hafði
heildarfjöldi gesta í Borgarleik-
húsið milli ára aukist um tíu pró-
sent frá síðasta starfsári Guðjóns
Pedersen. Við nánari eftirgrennsl-
an fengust þær tölur hjá LR að
gestafjöldi á leiksýningar og
danssýningar Íd í Borgarleikhúsi
á liðnu ári næmi 169.502 en gest-
ir á leikferðir væru 9.150. Önnur
starfsemi í leikhúsinu hefði dregið
til sín 28.924 gesti.
Leiksýningar í Borgarleikhúsi
á því ári voru ýmist verkefni sett
á svið af Leikfélagi Reykjavíkur
eða samstarfsverkefni við aðra
leikhópa og fyrirtæki.
Vinsælasta sýning ársins var
Fló á skinni en hana sóttu bæði
norður á Akureyri og í Reykjavík
yfir 54 þúsund gestir, þar af um
þrjátíu þúsund gestir á Akureyri
leikárið 2007-2008. Önnur sýning
kom að norðan á fjalir Borgarleik-
húss: Ökutímar. Þá eru ótaldar
samstarfssýningar eins og Sann-
leikurinn sem um fimmtán þús-
und gestir sáu og sýning Ladda, en
hana sáu á liðnum vetri nær 4.000
gestir eftir því sem næst verður
komist.
Þagnargildi
Forráðamenn LR hafa ekki fengist
til að greina sundur þær tölur um
aðsókn sem birtast hér og verður
því að fá þær eftir öðrum leiðum.
Þannig hefur fengist staðfest að
nær tíu þúsund gestir á leikferð-
um félagsins eru útlendingar sem
sáu samstarfsverkefni Vesturports
og LR.
Samkvæmt gögnum virðist allt
benda til að gestir á leiksýning-
ar LR í húsinu hafi verið á bilinu
120 til 125 þúsund. Er það mesta
aðsókn í sögu LR og er helst að
jafna við toppa Þjóðleikhússins á
sjötta og áttunda áratug síðustu
aldar þegar LR var í Iðnó með
útibú í Austurbæjarbíói.
Því er þetta til skoðunar að sjálf-
stæðir leikhópar hafa verið gagn-
rýnir á að LR – og Þjóðleikhúsið
– telji samstarfsverkefni sem hluta
af sínum gestafjölda. Eða er það
kannski öfugt? Og þegar lengra er
lesið skýrist af hverju.
Sjálfstæður rekstur
Yfirlit frá sjálfstæðu leikhúsunum
leiðir í ljós að þeirra verkefni njóta
mikilla vinsælda: Heildaráhorf-
endafjöldi á sýningar þeirra var
147.856. Af því komu 70.740 gest-
ir á sýningar þeirra innanlands en
gestir erlendis voru 80.866. Ef frá
eru taldir gestaleikir eru áhorf-
endur innanlands á 66 sviðsetning-
ar og 681 sýningu 68.589 alls.
Þessi breyting sætir tíðind-
um en útflutningur á leiksýning-
um til fjarlægra staða er orðinn
staðreynd og virðist ekki vera
tímabundið fyrirbæri; lungann
af þessum gestum eiga sýningar
Vesturports, bæði í samstarfi við
LR og Þjóðleikhús. Aftur vakna
spurningar hvort tvítalið er; stór
hluti gestahópsins er talinn með í
heildartölum LR, LA og Þjóðleik-
hússins.
Og á Hverfisgötu …
Tölur frá Þjóðleikhúsinu liggja
skýrar fyrir en tölur frá Borgar-
leikhúsi: þar er ekki legið á sund-
urgreindum tölum. Áhorfendur
á sviðsetningar Þjóðleikhússins
voru á liðnu leikári 81.330. Þar af
sóttu gestaleiki 2.883 gestir. Flest-
ir voru gestir á Kardemommubæ-
inn, ríflega 24 þúsund. Inni í tölum
Þjóðleikhússins eru ekki tölur frá
sýningum á samstarfsverkefnum
erlendis en Þjóðleikhúsið átti hlut
í Hamskiptunum í samstarfi við
AÐSÓKN HEFUR
ALDREI VERIÐ MEIRI...
Aðsókn að leiksýningum leikhúsa og leikfl okka jókst á síðasta leikári ef marka
má útgefnar tölur frá leikhúsunum fyrir leikárið. Þá hafa undanfarna daga borist
þær fréttir að sala á áskriftarkortum taki nú afar vel við sér. En hvað er að marka
stórar tölur um aðsókn á liðnu ári?
LEIKLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON