Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 38

Fréttablaðið - 19.09.2009, Síða 38
 19. 2 RAUÐI KROSSINN dreifir nú í samvinnu við Eimskip, Sorpu og Pósthúsið, sérmerktum fatapokum um allt land til að auðvelda lands- mönnum að taka til hjá sér og koma gömlum fatnaði í notkun að nýju eða í endurvinnslu. www.redcross.is „Ég tók þessar myndir í febrúar þegar ég var að safna mér efniviði í möppu þar sem ég hugðist sækja um skólavist í nokkrum skólum,“ segir Brynja Dögg Friðriksdótt- ir, sem heldur ljósmyndasýningu í Gallerí Verðandi í bókabúðinni Skuld á Laugavegi 51. Þar sýnir hún myndir sem hún tók af áhöfn Þóris SF 77. En af hverju þetta skip? „Það voru hæg heimatökin því skipið er gert út frá Höfn, sem er minn heimabær. Þeir voru á dagróðra- túrum á þessum tíma og ég fékk að fljóta með einn túr og mynda karl- ana í bak og fyrir,“ segir Brynja og þakkar fyrir að hafa sloppið alger- lega við sjóveiki. „Enda var þessi dagur yndislegur og lygnt í sjó- inn,“ segir hún dreymin. Brynja var einnig mjög ánægð með fyrirsæturnar. „Karlarn- ir voru alveg frábærir, stilltu sér upp þegar það átti við og hundsuðu myndavélina þess á milli,“ segir hún glaðlega. Sjóferðin góða var þó aldrei hugsuð sem eitthvað meira en lítið verkefni. „Svo fékk ég svo góð við- brögð við myndunum að ég ákvað að halda sýningu,“ segir Brynja. Hún hefur unnið á fjölmiðlum síðustu fjögur ár, meðal annars í Kompási, en var sagt upp þar í byrjun árs. Hún dvaldi um tíma á Höfn en hélt síðan utan til Noregs þar sem hún vann á hóteli í nokkra mánuði. Í næstu viku er stefnan sett út á ný, nú í nám í heimildar- myndagerð við Salford-háskólann í Manchester í Englandi. Sýning Brynju var opnuð í gær og stendur til 16. október. Bóka- búðin Skuld og Gallerí Verðandi eru opin virka daga frá 12-18 og á laugardögum 12-16 en lokað er á sunnudögum. solveig@frettabladid.is Svipmyndir af sjónum Brynja Dögg Friðriksdóttir áhugaljósmyndari hefur sett upp sýningu í Gallerí Verðandi í bókabúðinni Skuld. Þar sýnir hún myndir sem hún tók af áhöfn Þóris SF 77 sem gerður er út frá Höfn í Hornafirði. Þórir SF 77 er gerður út frá Höfn í Hornafirði. Sigurjón Steindórsson yfirvélstjóri að störfum. Brynja Dögg Friðriksdóttir hefur unnið á fjölmiðlum síðustu ár en er nú á leið í nám í heimildarmyndargerð í Manchester. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fé sem smalað var af afrétti Grindvíkinga í gær verð- ur dregið í dilka í Þórkötlustaðarétt í dag. Auk þess verð- ur fjölskylduratleikurinn Finna féð í nágrenni réttarinn- ar. Hann gengur út á að leita að vísbendingum og svara léttum spurningum um sauðkindina. Dregið verður úr réttum svörum og þrír ullarvinningar verða í verðlaun. Í tengslum við réttardaginn verður einnig markaður á svæðinu frá klukkan 13 þar sem fólk getur skoðað og keypt ýmsar handunnar vörur, skartgripi, sultur, áletruð kerti og fleira. Júdódeild UMFG verður með kjötsúpu á boðstólum og starfsfólk á leikskólanum Króki með kaffi- sölu. Einnig verður tónlistaratriði frá Harmóníkufélagi Suðurnesja. Hestar verða í reiðhöllinni í Grindavík og þar verður teymt undir börnum sem langar að fara á bak. - gun Réttir og ratleikur í Grindavík LÍF OG FJÖR VERÐUR VIÐ ÞÓRKÖTLUSTAÐARÉTT Í GRINDAVÍK Í DAG. Mannamál og jarmur blandast saman í réttunum. MYND/GRINDAVIK.IS NÁM Næstu fyrirlestrar og námskeið 22. sept. Erum við andleg og líkamleg eiturefna- úrgangs-ruslaskrímsli...?! Edda Björgvinsdóttir 01. okt. Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? Ebba Guðný Guðmundsdóttir 13. okt. Góð heilsa er auðveldari en þú heldur Matti Oswald 20. okt. Hvað er málið með aukakílóin Matti Oswald www.madurlifandi.is S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s • opnar orkuflæði • slökun • losar um spennu og kvíða • dregur úr verkjum • styrkir líkamann • o.fl. Ta i c h i f y r i r l í k a m a o g s á l
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.