Fréttablaðið - 19.09.2009, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 19. september 2009 73
Viltu vera í okkar liði?
Actavis Group Dalshrauni 1 220 Hafnarfirði s 535 2300 f 535 2301 @ actavis@actavis.com w www.actavis.com
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Hjá Actavis
starfa um 10 þúsund einstaklingar í 40 löndum, sem eru reiðubúnir að taka áskorunum með það að markmiði
að koma Actavis í fremstu röð samheitalyfjafyrirtækja.
Actavis leitar að metnaðarfullum einstaklingum til starfa sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni.
Sérfræðingur í fjárstýringu
Fjárstýring Actavis Group hefur yfirumsjón með greiðsluflæði fyrirtækisins
og dótturfélaga þess. Einnig hefur deildin umsjón með lánum, gjaldeyris-
og vaxtaáhættum, tryggingum og bankasamskiptum svo eitthvað sé nefnt.
Starfið felur m.a. í sér þátttöku í áhættu- og fjárstýringu, greiðsluflæði,
aðstoð í tryggingamálum, skýrslugerð til framkvæmdastjórnar og samstarf
við bókhald Actavis Group.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf á sviði viðskiptafræði,
hagfræði, verkfræði eða sambærilega menntun. Gerð er krafa um góða
enskukunnáttu, þekkingu á reikningshaldi, mjög góða Excel-kunnáttu,
nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. Viðkomandi þarf að vera skipulagður og
talnaglöggur.
Sérfræðingur innlendra skráninga
Starfið tilheyrir markaðssviði Actavis Group og eru helstu verkefni
sviðsins skilgreining markaðsstefnu, markaðssetning og kynning á vörum
fyrirtækisins, gerð sölu- og kynningaráætlana, birgðastýring og skráning
lyfja á innlendan markað.
Starfið felur í sér umsjón með innlendum skráningarumsóknum og
þýðingum á þeim, umsjón með vinnslu breytingarumsókna vegna íslenskra
markaðsleyfa, upplýsingagjöf vegna framvindu skráningamála og annarra
skráningartengdra mála. Sérfræðingurinn er í miklum samskiptum við
yfirvöld, samstarfsaðila og aðrar deildir Actavis.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf í raunvísindum, lyfjafræði eða
sambærilega menntun, háskólapróf í ensku kemur einnig til greina. Gerð er
krafa um góða íslensku- og enskukunnáttu, góða almenna tölvukunnáttu,
hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæð, öguð og nákvæm vinnubrögð.
Fulltrúi lyfjaupplýsinga
Lyfjaupplýsingadeild tilheyrir skráningasviði Actavis Group og ber ábyrgð
á gerð lyfjaupplýsinga (Product Information) þegar verið er að sækja um
markaðsleyfi fyrir lyf sem og viðhald á lyfjaupplýsingum eftir veitingu
markaðsleyfa.
Starfið felur í sér aðstoð við gerð upplýsingatexta um lyf ásamt aðstoð við
öflun gagna og frágang á gögnum á tölvutæku formi. Fulltrúi er í miklum
samskiptum við starfsmenn skráningarsviðs Actavis samsteypunnar bæði
hérlendis og erlendis.
Við leitum að einstaklingi með stúdentspróf eða lyfjatæknimenntun. Gerð er
krafa um færni í textagerð auk nákvæmni, sjálfstæði og mjög góða ensku-
og tölvukunnáttu.
Sérfræðingur í þróunardeild lyfjaforma
Þróunardeild lyfjaforma tilheyrir þróunarsviði Actavis Group og sér
um þróun á lyfjum, framleiðslu á tilraunalotum, uppskölun lota í
framleiðslustærð og gildingu framleiðsluferla.
Starfið felur í sér gerð mastera fyrir framleiðslu á þróunarlotum, yfirferð
framleiðslu- og pökkunarskráa á vegum þróunar, gerð tæknipakka
til að styðja flutning verkefna frá þróun til framleiðslu. Jafnframt sér
sérfræðingurinn um gerð skriflegra leiðbeininga og þjálfun.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf í lyfjafræði eða sambærilega
menntun. Gerð er krafa um mjög góða ensku- og tölvukunnáttu. Reynsla
af lyfjagerð er kostur. Gerð er krafa um nákvæm, sjálfstæð og öguð
vinnubrögð.
Fulltrúi breytingaumsókna
Breytingar og tæknisamningar er ein af fjórum deildum skráningarsviðs
Actavis Group. Hlutverk deildarinnar er tvíþætt, annars vegar sér deildin
um tæknisamningagerð við alla viðskiptavini Actavis og hins vegar sér
deildin um að taka saman breytingapakka og tilkynna viðskiptavinum um
fyrirhugaðar breytingar á lyfjum.
Starfið felur m.a. í sér aðstoð við almenna skipulagningu breytingaumsókna,
uppfærslur í gagnagrunna ásamt öðrum verkefnum er varða
breytingaumsóknir. Um er að ræða mikla tölvuvinnu og aðstoð við
upplýsingagjöf og ráðgjöf.
Við leitum að einstaklingi með stúdentspróf, kostur ef það er í
heilbrigðisvísindum. Gerð er krafa um mjög góða ensku- og tölvukunnáttu,
nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Medis er eitt af dótturfyrirtækjum Actavis Group og annast sölu á lyfjum og lyfjahugviti fyrir
samstæðuna til annarra lyfjafyrirtækja sem selja lyf undir eigin vörumerkjum.
Á meðal viðskiptavina Medis eru öll stærstu samheitalyfjafyrirtæki í Evrópu. Medis er með starfsemi
í átta löndum og rúmlega 70 starfsmenn. Hjá Medis er stefnt að því að vera fyrst á markað með ný
samheitalyf um leið og einkaleyfi falla úr gildi.
Sérfræðingur - Customer Service
Customer Service sér um samskipti við erlenda viðskiptavini vegna vörusölu, í því felst móttaka,
afgreiðsla og eftirfylgni pantana ásamt samskiptum við viðskiptavini, söluskrifstofur Medis erlendis
og framleiðslueiningar Actavis. Deildin ber jafnframt ábyrgð á reikningagerð vegna vörusölu og
kostnaðareftirliti.
Starfið felur í sér samskipti við erlenda viðskiptavini vegna vörusölu, þ.e. móttaka og afgreiðsla
pantana, ásamt tilheyrandi eftirfylgni og stuðningi við viðskiptavini Medis og
framleiðslueiningar Actavis.
Við leitum að háskólamenntuðum einstaklingi með góða enskukunnáttu, bæði í töluðu og rituðu
máli, þekking á fleiri tungumálum er kostur. Gerð er krafa um nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Góð tölvukunnátta og samskiptahæfni er einnig mikilvæg.
Útflutningssérfræðingur – Customer Service
Starfið felur í sér reikningagerð vegna vörusölu, eftirlit með að verð sé í samræmi við samninga og
að útflutningspappírar vöru séu tiltækir. Jafnframt sinnir viðkomandi kostnaðareftirliti sem felst í því
að sannreyna að reikningar frá birgjum og framleiðendum séu í samræmi við gildandi verðskrár. Í
starfinu felst einnig utanumhald um samninga- og umboðslaunakerfi Medis, útskrift ýmissa reikninga
tengdum vörusölu, afstemmingar og öflun ýmissa gagna t.d. vegna virðisaukaskattsskila.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf, reynslu af reikningagerð og afstemmingum. Gerð er krafa
um nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð, auk mjög góðrar enskukunnáttu, bæði í töluðu og rituðu
máli. Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði, samstarfshæfni og þjónustulund.
Sérfræðingur – Business Development
Business Development ber ábyrgð á markaðssetningu og sölu á lyfjatengdu hugviti og lyfjum
Actavis til annarra lyfjafyrirtækja. Megin þungi verkefnanna er samningagerð ásamt stuðningi við
söluskrifstofur Medis erlendis með því að veita þeim m.a. ráðleggingar um verð á vörum og stöðu
þróunarverkefna.
Starfið felur í sér samningagerð og sölu á lyfjum og lyfjahugviti til viðskiptavina Medis, samskipti
við umboðsmenn og dótturfélög erlendis, tilboðsgerð og samskipti við viðskiptavini sem og leit að
nýjum viðskiptatækifærum, auk þess að taka virkan þátt í áætlanagerð.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf í lyfjafræði eða hliðstæða menntun. Starfsreynsla á sviði
samningagerðar og krefjandi samskipta er kostur. Mjög góð ensku- og tölvukunnátta er skilyrði.
Viðkomandi þarf að geta unnið vel undir álagi, fylgt verkefnum eftir sem og búa yfir samstarfs- og
skipulagshæfni.
Verkefnastjóri – Launch Coordination
Helstu verkefni deildarinnar er verkefnastjórnun á „patent launch“ fyrir Medis auk þess að halda utan
um tilfærslur á framleiðsluvörum á milli framleiðslustaða. Deildin vinnur einnig að stýringu vöruflæðis
frá framleiðslustöðum öðrum en þeim sem eru í eigu Actavis.
Starfið er fjölbreytt og felst aðallega í að stýra innkaupum og flæði framleiðsluvara frá verksmiðjum
til viðskiptavina, að hafa yfirsýn yfir stöðu mála og eftirfylgni verkefna. Verkefnastjóri sér um
stýringu vara á markað þegar einkaleyfi rennur út ásamt samræmingu og samskipti við erlenda
viðskiptavini, framleiðslueiningar innan og utan Actavis og aðrar deildir innan fyrirtækisins. Úrbóta- og
hagræðingarverkefni er mikilvægur þáttur starfsins.
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun á sviði vörustjórnunar eða hliðstæða menntun og/
eða reynslu af verkefnastjórnun. Viðkomandi þarf að vera mjög skipulagður og góður í mannlegum
samskiptum. Gerð er krafa um nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð. Enska, töluð og rituð, er
skilyrði.
Fulltrúi – Finance & Administration
Finance & Administration hefur umsjón með fjármálum Medis ásamt tengdum félögum þess, þar
undir falla m.a. uppgjör, greiningar, innheimtur, reikningagerð og almenn skrifstofuumsjón.
Starfið felur m.a. í sér skipulag og utanumhald vegna samninga við viðskiptavini Medis, DHL sendinga
og útsendinga á fréttabréfi Medis til viðskiptavina. Jafnframt aðstoðar fulltrúinn við útgáfu á prentefni,
uppfærslu á heimasíðu og viðskiptamannagagnagrunni Medis. Fulltrúinn er í miklum samskiptum við
alla starfsmenn Medis, bæði hérlendis og erlendis, viðskiptavini, hótel, prentsmiðjur, auglýsingastofur
og aðra starfsmenn Actavis.
Við leitum að einstaklingi með stúdentspróf og reynslu af skrifstofustörfum. Viðkomandi þarf að vera
með mjög góða ensku- og tölvukunnáttu, hæfni til að fylgja eftir verkefnum, mjög góða samskipta-
og skipulagshæfni og getu til að sýna sjálfstæði í starfi.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ragnheiður Dögg Ísaksdóttir, risaksdottir@actavis.com
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 27. september nk.
Actavis Group auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar