Fréttablaðið - 19.09.2009, Page 78

Fréttablaðið - 19.09.2009, Page 78
50 19. september 2009 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Landsliðsframherjinn Eiður Smári Guðjohnsen fær kjörið tækifæri til þess að vinna hug og hjörtu stuðningsmanna Mónakó þegar liðið mætir Nice í grannaslag á frönsku Rivíer- unni í dag en leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst kl. 17. Leikurinn fer fram á heima- velli Nice, Stade du Ray-leik- vanginum, en tilefnið er sér í lagi sögulegt að þessu sinni þar sem þetta verður í hundraðasta skipti sem félögin mætast, ef allar keppnir eru taldar til. Mónakó hefur haft yfir- höndina til þessa og unnið 40 af 99 leikjum á móti 29 sigurleikjum hjá Nice. Þegar liðin mættust í deildarkeppninni fyrra unnust báðir leikirn- ir á útivelli og von- ast Mónakó-menn væntanlega eftir því að það mynst- ur haldi áfram. Mónakó hefur farið betur af stað á þessu t ímabi l i en Nice og er fyrir leiki helgar- innar í sjöunda sæti eftir þrjá sigurleiki og tvo tapleiki á meðan Nice er í þriðja neðsta sæti deildarinnar eftir einn sigur og fjögur töp eftir fimm umferðir. Eiður Smári náði ekki að sýna sitt rétta andlit í fyrsta leik sínum fyrir Mónakó í 2-0 sigur- leik gegn Paris St. Germain um síðustu helgi og kvaðst í viðtölum í leikslok þurfa smá tíma til þess að aðlagast nýjum liðsfélögum og frönsku deildinni. „Ég er ánægður af því að liðið vann. Ég á enn eftir að venjast öllu og læra inn á samherj- ana, leikkerfið og allt sem tengist þessu. Ég er viss um að hinn sanni Guðjohnsen kemur í ljós á næstu vikum. Það er samt ekki mikil- vægt hvernig ég spila held- ur skiptir öllu hvernig liðið spilar,“ sagði Eiður Smári í við- tali sem birtist á opinberri heima- síðu Mónakófé- lagsins. - óþ, óój Mónakó og Nice mætast í alvöru í grannaslag: Hundraðasti leikur Mónakó og Nice EIÐUR SMÁRI Verður í eldlínunni með Mónakó í dag. MYND/WWW.ASM-FC.COM Landsliðskonan Bryndís Guðmundsdóttir fór út til Belgíu í haust til að spila með liði Charleroi en hefur nú ákveðið að snúa aftur heim og spila með Keflavík í vetur. „Eftir að móðir mín lést í desember á síðasta ári hef ég átt mjög erfitt, ég hélt ég væri tilbúin að takast á við þetta verkefni og fara út og spila körfubolta en raunin var bara sú að ég var ekki tilbúin,“ segir Bryndís hreinskilin og bætir við: „Ég var hugsa á hverjum degi hvað mig langaði að vera heima. Ég hringdi í pabba á hverjum degi og oftar en einu sinni á dag. Í hvert sinn sem ég skellti á fór ég að gráta því mig langaði svo heim. Ég vildi ekki vera að pína mig lengur,“ segir Bryndís, sem er aðeins 21 árs gömul. Hún er systir knattspyrnumannsins Haraldar Guðmundssonar. Bryndís spilaði ekki nema einn leik með liðinu en hún meiddist á ökkla á síðustu æfingu fyrir leik tvö. Hún segir liðið ekki hafa verið jafn sterkt og í fyrra. „Kan- inn sem er hjá þeim er ekki nægilega góður en stelpurnar í liðinu eru frábærar og mjög skemmtilegar,“ segir Bryndís en borgin Charleroi í frönskumælandi hluta Belgíu. „Körfuboltinn í Belgíu er ekkert mikið öðruvísi nema að það er spilaður aðeins hraðari bolti hér og dómararnir flauta mun minna en heima,“ segir Bryndís. Belgarnir tóku ekki allt of vel í að missa íslensku landsliðs- konuna og umboðsmaðurinn hennar hefur heldur ekki verið að standa sig. Hún hafði smá áhyggjur af því að fá ekki leikheimildina aftur til Íslands en segist fá góða hjálp við að leysa það, þar á meðal frá þjálfara Keflavíkur, Jóni Halldóri Eðvaldssyni. „Jonni er minn maður og hann er alveg með þetta,“ segir Bryndís. Bryndís ætlar að spila með Keflavík í vetur og hjálpa til við að brúa kynslóðabilið hjá félaginu. „Það kom aldrei annað til greina en að fara aftur í Keflavík því það er mitt lið. Þetta verður mjög spennandi í vetur. Við erum að fá mikið af yngri leikmönnum inn í liðið sem eru ekkert nema frábærir leikmenn. Stefnan er sett á að berjast um toppsætið, er það ekki alltaf þannig?“ segir Bryndís. BRYNDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR LANDSLIÐSKONA Í KÖRFU: ER Á HEIMLEIÐ EFTIR STUTTA DVÖL Í BELGÍU Ég var ekki tilbúin og vildi ekki pína mig lengur > Katrín var fyrirliði í þrítugasta sinn Katrín Jónsdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins, spilaði ekki bara sinn 90. landsleik í 12-0 stórsigri á Eistlend- ingum í fyrrakvöld heldur bar hún einnig fyrirliðaband- ið í þrítugasta sinn. Katrín tók við fyrirliðabandinu af Ásthildi Helgadóttur, sem er enn sá leikmaður kvenna- landsliðsins sem hefur oftast borið fyrirliðabandið. Ásthildur var fyrirliði landsliðsins í 34 af 69 landsleikjum sínum. Katrín hefur hins vegar verið fyrirliði landsliðsins í 24 leikjum í röð, sem er met, en Vanda Sigurgeirsdóttir átti gamla metið þegar hún var fyrirliði kvennalandsliðsins í 19 leikjum í röð frá 1992 til 1996. KOMI NN Í ELKO 10. HVERVINNUR! BESTI NE ED FOR S PEED LE IKUR ALLRA T ÍMA ER M ÆTTUR! Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. FÓTBOLTI Steven Gerrard, fyr- irliði Liverpool, trúir því að Afríkukeppni landsliða muni hjálpa Liverpool til að vinna enska titilinn í fyrsta sinn í 20 ár. Liverpool er með enga afríska leikmenn innan sinna raða en Chelsea, Manchester City og Ars- enal munu öll missa lykilmenn í að minnsta kosti þrjár vikur í upphafi næsta árs. Afríkukeppn- in fer fram 10. til 31. janúar 2010. „Öll lið munu lenda í lægðum á löngu tímabili og sum lið munu missa mikilvæga hlekki á meðan Afríkukeppninni stendur. Chel- sea, Tottenham og Manchest- er City hafa öll byrjað tímabil- ið vel en við eigum eftir að spila marga leiki til viðbótar áður en við sjáum hvaða lið koma til með að berjast um titilinn,“ sagði Gerrard. - óój Steven Gerrard hjá Liverpool: Afríkukeppnin hjálpar okkur BJARTSÝNN Steven Gerrard lætur ekki slæma byrjun Liverpool draga sig niður. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Geir Þorsteinsson, for- maður Knattspyrnusambands Íslands, segir aðeins formsat- riði að ganga frá nýjum samningi sambandsins við Ólaf Jóhann- esson, landsliðsþjálfara. Sjálf- ur hefur Ólafur mikinn hug á að halda áfram en undir hans stjórn varð liðið í neðsta sæti síns riðils í undankeppni HM 2010. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að liðið sé á réttri leið undir stjórn Ólafs,“ sagði Geir. „Það eru marg- ir ungir leikmenn að stíga fram á sjónarsviðið og þá fannst mér einnig jákvætt að Eiður Smári Guðjohnsen lýsti því yfir fyrir stuttu að hann ætli að halda áfram að spila með landsliðinu. Það skipt- ir miklu máli.“ Ólafur hefur stýrt landsliðinu í um 20 leikjum og segir stefnuna hafa verið markaða strax í upp- hafi. „Við höfum lagt áherslu á að notast alltaf við sömu leikaðferð með ákveðnum áherslubreytingum þó. Ég viðurkenni að þetta hefur allt tekið sinn tíma en síðustu leik- ir hafa verið betri. Í þeim þorðum við að halda boltanum meira innan liðsins og tel ég það nauðsynlegt til að ná lengra á þessum vettvangi. Ef við gerum það ekki stöndum við alltaf í stað.“ Ólafur hefur notast við marga leikmenn á þessum tveimur árum og var það með ráðum gert. „Í dag tel ég mig vita nánast allt það sem ég vil og þarf að vita um þá leik- menn sem koma til greina í lands- liðið. Auðvitað koma alltaf nýir leikmenn fram á sjónarsviðið og það er enginn útilokaður frá lands- liðinu. En við vitum mikið um leik- mennina í dag,“ sagði Ólafur. „Ég er því ekki viss um að það verði miklar breytingar á landsliðinu á næstunni og lítið um tilraunastarf- semi með leikmenn.“ Þátttöku Íslands í undankeppni HM 2010 er lokið en framundan eru tveir vináttulandsleikir. Ísland mætir Suður-Afríku á Laugardals- velli þann 13. október næstkom- andi og svo Lúxemborg ytra þann 14. nóvember. Dregið verður svo í riðla í und- ankeppni EM 2012 í byrjun febrú- ar á næsta ári. eirikur@frettabladid.is Formsatriði að skrifa undir Allt útlit er fyrir að Ólafur Jóhannesson verði áfram landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, er í engum vafa um að landsliðið sé á réttri braut undir stjórn Ólafs og hann horfir björtum augum á framhaldið. HELDUR ÁFRAM Allar líkur eru á að Ólafur Jóhannesson verði áfram þjálfari A-lands- liðs karla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Manchester City ætlar að berjast á móti því að Emm- anuel Adebayor fái leikbann hjá enska knattspyrnusambandinu, fyrir að hlaupa allan völlinn til þess að fagna fyrir framan stuðn- ingsmenn Arsenal þegar hann skoraði á móti sínu gamla félagi um síðustu helgi. „Við fáum tíma til að koma fram með okkar hlið á mál- inu,” sagði Mark Hughes, stjóri Manchester City og bætti við: „Hann yfirgaf aldrei völlinn og lagðist bara á hnén. Þetta voru venjuleg fagnaðarlæti og það er ekki góð þróun ef að menn ætla að taka tilfinningarnar úr fótbolt- anum,” sagði Hughes. „Kringumstæðurnar og það sem Ade mátti þola fyrir leik- inn var honum mjög erfitt og átti sinn þátt í að hann réð ekki við tilfinningar sínar,” sagði Hug- hes. City áfrýjaði ekki þegar Adebayor var dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að traðka á and- liti Robin van Persie. - óój Fagn Emmanuel Adebayor: City mun berj- ast gegn banni FAGNIÐ Emmanuel Adebayor eftir mark- ið sitt á móti Arsenal. NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI Íslendingaliðið Rhein- Neckar Löwen tapaði í gær fyrir Hamburg á heimavelli, 34-30, í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Lið Rhein-Neckar Löwen er skipað þremur fastamönnum úr íslenska landsliðinu en þeir, frekar en liðsfélagar sínar, náðu ekki að fylgja eftir góðri byrj- un liðsins í leiknum. Löwen var með yfirhöndina í hálfleik, 16-15, en gestirnir sneru leiknum á sitt band strax í upphafi síðari hálf- leiksins. Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Löwen og þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Guðjón Valur Sigurðsson tvö hvor. - esá Rhein-Neckar Löwen tapaði: Íslenski kraftur- inn dugði ekki ÓLAFUR STEFÁNSSON Skoraði þrjú mörk í gær. NORDIC PHOTOS/BONGARTS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.