Stúdentablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 12
6
STÚDENTABLAÐ
Ásmundur Guðmundsson, prófessor:
Framhaldsnám
stúdenta.
Eins og mönnum er kunnugt, miðar
fræðslulöggjöfin nýja m. a. að því, að mennta-
skólar verði greiðari inngöngu en verið hefur.
Er með því bætt úr ófremdarástandi, sem
ríkti mörg síðustu árin við Menntaskólann
í Reykjavík. Þar fékk ekki inngöngu nema
lítill hluti barna þeirra og unglinga, sem stóð-
ust inntökupróf í skólann. Réðu ekki alltaf
hæfileikar um það, hverjir hlutskarpastir
urðu, heldur ósjaldan fjárráð foreldra til að
kaupa börnum sínum næga tímakennslu og
láta troða í þau þeim þekkingarskammti, sem
þarf til þess að ná háu prófi. Nú er þessu
breytt svo, að árspróf 3. bekkjar í bóknáms-
deild gagnfræðaskóla, eða miðskólapróf öðru
nafni, veitir rétt til inngöngu í menntaskóla,
ef ákveðinni lágmarkseinkunn er náð. Próf
þetta er þegar orðið landspróf, svo að nem-
endur úti um byggðirnar til sjávar og sveita
þurfa ekki lengur að taka sér ferð á hendur
til að þreyta það við menntaskólana. Jafn-
framt styttist menntaskólanámið úr 6 vetr-
um í 4, og léttist kostnaður, sem ýmsum hef-
ur hingað til orðið um megn.
Þessar breytingar eru líklegar til að valda
því, að tala stúdenta fari enn vaxandi ár frá
ári.
Sumir telja það áhyggjuefni. En allur sá
uggur og kvíði er ástæðulaus. I Noregi eru
stúdentar hlutfallslega miklu fleiri en hér,
og er það talinn gróði landi og þjóð að eiga
svo stóran flokk menntamanna. Þannig mun
einnig fara hjá oss.
Nokkur hluti stúdenta vorra mun hyggja
á alls konar atvinnustörf þegar að loknu
stúdentsprófi, og má ætla, að menntun þeirra
komi þeim yfirleitt að góðu gagni og svo
þeirri stétt, er þeir skipa. En flestir þeirra
munu þó stunda framhaldsnám.
Það er eitt hið mesta velferðarmál, að þetta
framhaldsnám komi bæði þeim og öðrum að
sem beztum notum.
Ástæðan til þess, að framhaldsnám fer út
um þúfur, er stundum sú, að það er óheppi-
lega válið. Hæfileikar stúdenta og áhugi eru
meiri á öðrum sviðum. Þeir finna það því betur
sem lengra líður, og fer svo að lokum, að
þeir gefast upp. Til þess að koma í veg fyrir
þetta eru til með sumum menningarþjóðum
vísindastofnanir, er veita mikilsverðar leið-
beiningar um hæfi manna og stöðuval í
lífinu. Svo skyldi einnig hér í sambandi við
kennarastofnunina, er nú mun rísa við há-
skóla vorn, og þangað ættu nýir stúdentar
jafnan að leita sér leiðbeininga og hafa til
nokkurrar hliðsjónar áður en þeir ákveða
framhaldsnám sitt. Myndi þeim oft styrkur
að og ýmsum síður fatast valið.
Ríkið veitir að sjálfsögðu styrk til stúdenta,
er stunda framhaldsnám í öðrum löndum, og
eignast þannig sérfróða menn, er geta unnið
að ýmsum framförum hér á landi. En mikil