Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 31

Stúdentablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 31
STÚDENTABLAÐ 25 Með því vinnum vér íslandi allt. Á þann eina hátt getum vér goldið móðurmold vorri fóst- urgjöldin og þeirri þjóð, sem ól oss. Víðsvegar frá í veröldinni berast oss fregn- ir af ókyrrð og óeirðum, þótt friður ríki að nafni til. — Vér verðum því stöðugt að vera á varðbergi til verndar hagsmunum vorum. Islenzkir stúdentar hafa jafnan staðið í fylkingarbrjósti þeirra manna, sem af mest- um móði hafa barizt fyrir sjálfstæði Islend- inga. Þeir gera það enn í dag. Þeir hafa oftar en einu sinni staðið upp og sagt einum rómi: „Vér mótmælum allir Þeir munu ekki hætta að mótmæia. Þeir munu sjá um, að öllum þeim samningum, sem hættulegir geta talizt málstað Islands í fram- tíðinni, verði sagt upp svo fljótt sem auðiö er. Og þeir munu vissulega hafa aðhald og eftirlit með, að þessum samningum sé frarn- fylgt út í yztu æsar, og mótmæla, ef svo er eigi gert. En þetta munu þeir gera með festu og stillingu, en engum öfgum og æs- ingum. Vér eigum um þessar mundir setu á al- þjóðafundum, og Island á þar sitt atkvæði. Á þeim vettvangi gefst oss gott tækifæri til að vinna Islandi allt, til að tryggja það, að lög séu virt og réttur vor óskertur látinn. Vér vinnum tvímælalaust Islandi mest gagn með hógværri framkomu, en engri frekju, svo sem og sæmir þeirri þjóð, sem kallast menn- ingarþjóð og er það. Vér skulum reyna að vera heilir í öllu því, sem vér tökum oss fyrir hendur, láta aðrar þjóðir læra að meta oss fyrir réttsýni og hóg- værð, en í engu að brigzla oss um öfgar og einstrengingshátt. Það er gæfa íslenzku þjóðarinnar, að hún hefur á öllum öldum átt sonu, sem skildu þetta. Þeir börðust með hreinan skjöld gagn- vart fósturjörðinni og öðrum þjóðum, hvort sem þær sýndu henni vináttu sína eða reyndu að véla undan henni réttmætar kröfur og eignir. — 1. desember hefur jafnan verið minninga- dagur um sjálfstæði og fullveldi íslenzku þjóðarinnar síðustu áratugina. Þá hefur þjóð- in strengt þess heit að duga og duga vel. — Islenzkir stúdentar! Látum oss enn í dag strengja þess heit að reynast sannir Islend- ingar og sýna það í orði og verki, að við vilj- um í öllu vinna Islandi allt. „Lög og létt hjal“.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.