Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 32

Stúdentablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 32
26 STÚDENTABLAÐ Ákademiskur annáll Stúdentaráðskosningarnar. Að þessu sinni fóru kosningar til stúcientaráðs fram laugardaginn 1. nóvember. Á kjörskrá voru 499, en af þeim greiddu atkvæði 414. Úrslit urðu þessi: A-listi, frá Stúdentafélagi lýð- ræðissinnaðra sósíalista, hlaut 60 atkv. og 1 mann kjörinn, Jón P. Emils, stud. jur. B-listi, frá Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta, hlaut 185 atkv. og 5 menn kjöma, Tómas Tómasson, stud. jur., Vík- ing H. Arnórsson, stud. med., Braga Guðmundsson, stud. polyt., Jónas Gíslason, stud. theol. og Pál Lín- dal, stud. jur. C-listi, frá Félagi frjálslyndra stú- denta, hlaut 57 atkvæði og 1 fulltrúa kjörinn, Jón Hjaitason, stud. jur. D-listi, frá Félagi róttækra stúd- enta, hlaut 106 atkvæði og 2 fulltrúa kjörna, þá Hjálmar Ólafsson, stud. philol., og Árna Halldórs- son, stud. jur. Stjórn stúdentaráða er þannig skipuð: Tómas Tóm- asson formaður, Jón P. Emils ritari og Víkingur H. Arnórsson gjaldkeri. Háskólahátíðin. Laugardaginn 25. okt. var Háskólinn settur með virðulegri athöfn í hátiðasal skólans. Voru þar mættir margir tignir gestir, svo sem forseti Islands, ráðherrar og sendiherrar erlendra ríkja. Rektor há- skólans, próf. Ólafur Lárusson, flutti setningarræð- una. Bauð hann hina nýju stúdentavelkomnaískélann og afhenti þeim háskólaborgarabréf. Innritazt hefðu 136 nýir stúdentar, og alls væru því 556 stúdentar skráðir við nám í skóianum. Rakti hann breytingar á kennaraliðinu og minntist á sjóði skólans, sem hart hefðu orðið úti vegna verðbólgunnar. Einnig ræddi hann heimsóknir erlendra gesta og aukin tengsl við nágrannaþjóðirnar. Breytingar á kennaraliði. 1 guðfræðideild hafa þeir prófessor Magnús Jóns- son og Sigurbjörn Einarsson dósent fengið um stund- arsakir lausn frá kennsluskyldu. 1 stað þeirra komasr. Magnús Már Lárusson og sr. Jóhann Hannesson. t iælrnadeild hefur prófessorsembættið i lyflæknis- fræði verið veitt Jóhanni Sæmundssyni. Prófessor Jón Hjaltalin Sigurðsson lætur af embættinu fyrir aldurs sakir. 1 lagadeild kennir prófessor Ólafur Jó- hanneoson í stað Gunnars Thoroddsen eins og á síð- ara misseri kennsluársins 1946—1947. Nýr kennari er í þjóðarétti, Hans Andersen. 1 norrænudeild hefur di'. Björn Guðfinnsson fengið frí frá kennslu, og ann- ast þeir dr. Björn K. Þórólfsson og Ólafur Ólafsson, cand. mag., hana í stað hans. Enskukennsluna í öll- um skólanum mun Jóhann Hannesson taka að sér. Hefur hann stundað enskunám vestra. Nýr sænskur sendikennari, Holger Öberg, er kominn í stað Peter Hallberg. Nýir kennarar við verkfræðideildina eru þeir Eiríkur Einarsson, ai'kitekt, Guðmundur Arn- laugsson, cand. mag., og Þorbjöm Sigurgeirsson, magister. Rússagildi. Mánudagskvöldið 27. okt. s.l. var hið árlega rússa- gildi haldið í Sjálfstæðishúsinu til þess að fagna komu nýstúdenta í Háskólann. Magister bibendi var prófessor Níels Dungal, og aðalræðu kvöldsinsi flutti Tómas skáld Guðmundsson. Mæltist honurn vel. Geir Hallgrímsson, stud. jur., bauð níssana velkomna í hóp akademiskra borgara, og Bjarni Bragi Jónsson, stud. oecon., varð fyrir svörum af rússa hálfu. Pét- ur Jónsson, söngvari, sat hófið og skemmti sem mest hann mátti, og var það vel séð. Undirleik ann- aðist Gunnar Möller, og var þeim Pétri báðum fagn- að ákaft. Undir boröum var glaðværð mikil, og þreyttu menn óspart söng lengi kvölds. Sungið var meðal annars nýtt rússagildisljóð eftir Svein Berg- sveinsson. Stundu fyrir miðnætti var salurinn rudd- ur og dansinn hófst. Var haldið áfram til kl. 2 um nóttina, en þá voru skemmtunarslit, samkvæmt fyr- irmælum frá hærri stöðum. Fór þá hver heim til sín og undi glaður við sitt. Frú Guðrún Brunborfí hefur nú stofnað sjóð við Háskóla Islands til minn- ingar um son sinn, Olav, sem lézt í þýzkum fanga- búðum. Verða veittir úr honum styrkir til norskra stúdenta, er stunda nám við Háskólann. Eins og kunnugt er, afiaði frúin fjár til sjóðs þessa með því að sýna hina áhrifamiklu kvikmynd, „Englandsfar- ana“, í flestum kaupstöðunr og kauptúnum hér á landi. Einnig hefur frú Guðrún Brunborg stofnað myndarlegan sjóð við háskólann í Osló, og skal fé úr honum varið til styrktar íslenzkum stúdentum, sem nám stunda þar.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.