Stúdentablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 37
STÚDENTABLAÐ
31
fundarmenn nú fljótir til að spretta upp og' lýsa
fylgi sínu við mál Nordals, og rifjuðust þá upp
gamlar minningar. Var nú lagt að öllum að gofa
upp óskir sínar, svo að samkomulag gaeli náðst.
Flestir urðu fljótir til, þótt þæfa yrði lengi dags
við suma. Síðan fór fram atkvæðagreiðsla að við-
höfðu nafnakalli, og samþykktu allir tillögu Nordals
nema Trausti Einarsson sat hjá. Tótti. málalyktir
hinar beztu, og var brugðið við skjótt og Drottni
allsherjar tjáð, hver úrslit hefðu orðið. Það fannst á,
að Drottni líkaði roiður — „og hetir aldrei neitt
slíkt komið fyrir i Himnariki. Hafa íslendingar löng-
um erfiðir viðfangs verið. þótt nú lteyri um þverbak.
Á morgun flyt ég ykkur boðskap minn,“ — og
skundaði burt. — — Það kom svo á daginn, að
gerðir fundarins voru ónýttar með öllu og því bor-
ið við, að samþykki állra hefði ekki komið fram,
þar sem einn sat hjá. „Aldrei var tekið neitt tillit
til hjásetumannanna á Alþingi," sagði Gylfi Þ. Gísla-
son, „og er lítt farið eftir réttum lögum hér.“ En
ekki tjóar að deila við dómarann, og setti löglærð-
um mönnum mjög niður, að þeir sltyldu ekki sjá
við þessari smugu, er Drottinn hengdi hatt sinn á.
— En enginn bar þykkju til Trausta, þótt svona
tækist til, því að ekki var vilji til þessa gerður. Átti
nú margur um sárt að binda, og þótti hér sannast
sem mælt er, að lengi lifir Loki meðal Islendinga.
Rlalakoff.
Kaupmenn! —- Kaupfélög!
Höfum ávallt fyrirliggjandi:
Neftóbak í 250 gr. glerkrukkum
do. í 50 gr. smádósum.
fobakseinkasala ríkisins.
Ilmvötn
Hárvötn
Böltunardropar
Kjarnar (Essensar)
Einkasala til verzlana
og iðjufyrirtækja.
Áfengisverzlun ríkisins.