Spegillinn - 01.05.1983, Side 24

Spegillinn - 01.05.1983, Side 24
Spegillinn bak við fermingartjöldin! Afleiðingar altarisgöngunnar: „Ofbeldi, rán, glæpir ogmorð<c „Þetta er hvort tveggja lögbrot og regin hneyksli. Að hugsa sér að það skuli hafa verið látið átölulaust hingað til að þjónar Guðs freisti barna með áfengi, sem leiðir til ofdrykkju, glæpa,, rána, morða og alkóhólisma. Og það í kirkjum landsins. Eg gat ekki horft uppá þetta lengur. Þess vegna kærði ég,“ sgði Ema Guðmundsdóttir, sanntrúuð kona og bindindis- söm, er Spegillinn hitti hana að heimili hennar í Njarðvíkunum á dögunum. „Hér hef ég myndir af Ola bróður mínum, sem segja meira en mörg orð um nauðsyn þess að stöðva þegar brennivínsgjafir prestanna.“ sagði Ema að lokum og krafðist þess að við birtum myndimar. Til vinstri Ólafur á fermingardaginn. Til hœgri Ólafur 12 árum eftir altarisgönguna. Myndina tók Ema er hún loks hafdi upp á bróöur sínum en hann „býr“ í Harlemhverfinu sem svo er nefnt. Hún fierði honum ýmsan prentaðan fróðleik um áfengisbölið og reyndi með fortölum að fá hann til að snúa úr því spori, sem altarisgangan hafði beint líft hans í. Þjóðhagslega hagkvæmt Eins og lesendur Spegilsins muna, þá sagði Alþýðublaðið frá því í frétt skömmu fyrir kosningar að þingflokkur Alþýðuflokksins ef einhver yrði, ætlaði að leggja fram á Alþingi næsta haust fmmvarp til laga um stóreflingu ferminga á Islandi. Sagði í fréttinni að frumvarpið gerði ráð fyrir því að þjóðhagsstofnun yrði falið að gera 10 ára áædun er miðaði að því að auknar fermingar veittu um 15000 manns atvinnu á næstu 10 ámm. Betri leiðir bjóðast Spegillinn hitti Jón Baldvin Hannibalsson á Broadway s.l. laugardagsmorgunn þar sem þau hjónin vom að vaska upp frammi í eldhúsi, og sagði hann það rétt vera að Alþýðu- flokkurinn hyggðist leggja þetta fram á næsta þingi. „Eins og fram kom í kosningabaráttunni, þá erum við Alþýðuflokksmenn þeirrar skoðunar að landbúnaður sé mikill baggi á þjóðinni og að brýna nauðsyn beri til að fækka bændum með hinni svokallaðri styttingaraðferð. Við höfum einnig barist gegn sjávarútvegi í nokkur ár eins og kunnugt er og teljum hann undirrót efnahagsöngþveitísins. Við höfum talið að íslenskur átöppunariðnaður komi ekki til með að leysa atvinnumál Islendinga o.s.frv. Við bjóðum nýjar og betri leiðir, Fmmvarpið um stóreflingu ferminga á Islandi er liður í því. Að minni ósk er þjóðhagsstofnun um þessar mundir að reikna út áhrif stóraukinna ferminga á atvinnumál framtíðarinnar“. Hugmyndin mjög góð að áliti þjóðhagsstjóra „Við emm aovinna að þessu máli núna,“ sagði Jón Sigurðsson, þjóðhagsstjóri, þegar fréttamaður Spegilsins hitti hann í skrúðgöngunni á sumardaginn fyrsta. „Það gefur auga leið að hinir hefðbundnu atvinnuvegir Islendinga taka ekki við auknum mannafla á næstu áratugum. Við höfum oft velt því fyrir okkur á Þjóðhagsstofnun að finna emhverja sniðuga lausn á þessu vandamáli, þess vegna var það mjög kærkomið þegar okkur barst bréf í pósti frá Jóni Baldvin Hannibalssyni um daginn með þessari ágætu tillögu. Það sem kæmi helst til greina í þessu efni er eftirfarandi: Fermingasjóður — Fermingabætur IAð allar fermingar standi yfir a.m.k. eina viku. Gjafir verði auknar um 17,5% á ársgmndvelli og að stofnaður verði • fermingasjóður Islands sem deild í byggðasjóði, sem hafði það hlutverk að greiða niður fermingagjafir a.m.k. í ýmsum 24

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.