Spegillinn - 01.05.1983, Side 30
ATHVAFA MIÐSTOÐ
Eitt síöasta stórvirki Ingvars Gísla-
sonar menntamálaráöherra var að boða
til blaðamannafundar á Hótel Sögu
þann 1. maí s.l. Tilefnið var vinnu-
skýrsla nefndar um athvörf, sem skipuð
var að frumkvæði menntamálaráðherra.
Auk blaðamanna voru viðstaddir full-
trúar allra helstu hagsmunasamtaka í
landinu.
Menntamálaráðherra bauð gesti vel-
komna og sagði síðan: „Sumarið 1982
var mér orðið vel ljóst að athvarfagleði
hinna ýmsu félagasamtaka var úr hófi
hlaupin, og í því máli ríkti algjört
skipulagsleysi. Komin voru skólaat-
hvörf, kvennaathvörf, athvarf gang-
limafatlaðra, athvarf Samtakanna 78
og miklu fleiri. Ég taldi því einsýnt að
ábyrg stjórnvöld yrðu að grípa í taum-
ana, taka frumkvæðið og móta heildar-
stefnu í athvarfamálunum.
Ég beitti mér því fyrir skipun níu
manna nefndar eða starfshóps í júlí-
mánuði á síðasta ári. Skyldi nefndin
gera tillögur að skipan þessara mála og
jafnvel að semja drög að frumvarpi, er
ég gæti síðan lagt fyrir Alþingi. Nefnd-
ina skipuðu eftirtaldir aðilar:
Jónas Pálsson, sálfræðingur, til-
nefndur af Verslunarráði íslands,
Þorkell Bjamason, hrossaræktarráðu-
nautur, tilnefndur af samtökum stóð-
hesta eigenda,
Jónína Benediktsdóttir, íþróttafræð-
ingur og morgunleikfimistjóri, tilnefnd
af Mjólkurfélagi Reykjavíkur,
séra Ólafur Skúlason, dómprófastur,
tilnefndur af aukateknanefnd Presta-
félags íslands,
Bessý Jóhannesdóttir, sagnfræðingur
m.m. tilnefnd af Málfreyjufélaginu
Tunguhaft á Seltjarnarnesi og Iðju,
félagi verksmiðjufólks í Reykjavík,
Friðrik Sófusson, alþingismaður, til-
nefndur af Samtökum Silfurfermdra
(þ.e. þeirra sem eiga 25 ára fermingar-
afmæli),
Steinn Lárusson, forstjóri, tilnefnd-
ur af Félagi Ferðaskrifstofa,
Tómas Þorvaldsson, forstjóri, til-
nefndur af Hringormanefnd og SÍF.,
Stefán Ólafur Jónsson, starfsvals-
stjóri Menntamálaráðuneytisins og vænt-
anlegur ráðuneytisstjóri, tilnefndur af
Menntamálaráðherra. Var hann jafn-
framt formaður nefndarinnar.
Niðurstöður nefndarinnar liggja nú
fyrir og er mér mjög óhætt að segja að
nefndin hafi unnið frábært starf, rösk-
lega og mikið. Tel ég að niðurstöðurnar
séu tímamótamarkandi í menningar-
sögu þjóðarinnar. Niðurstöðunum hef-
ur verið deilt til ykkar og mun ég því
ekki hafa fleiri orð hér um. Stefán
Ólafur, formaður nefndarinnar, og aðr-
ir nefndarmenn munu síðan skýra nið-
urstöðurnar og svara fyrirspurnum.
Takk fyrir.“
Stefán Ólafur: „Já, í þessu 186 síðna
nefndaráliti er að finna heildarstefnu-
mörkun í athvarfsmálunum. Mun ég
nú draga saman helstu þættina. Nefnd-
in mælir með að sett verði á stofn
Allsherjarathvarf eða Athvarfamiðstöð
ríkisins á Stór-Reykjavíkursvæðinu og
Dreifbýlismiðstöðvar með landsbyggð-
arþjónustu í hverju kjördæmi. Yrði
fjöldi einstakra athvarfa í dreifbýlinu
að ráðast af framboði og eftirspurn á
hverjum stað.
Nefndin leggur til að farið verði afar
gætilega af stað. Þó er talið eðlilegt að
byrjað verði með eftirtalin athvörf:
IAthvarf fyrir þá sem ekki geta,
• eða fá ekki, að stunda kynlíf
heima hjá sér (kallað á útlend-
um tungum „massage centres"
eða ,,bróþel“). Gera verður
ráð fyrir að þörf verði fyrir slík
athvörf í öllum kjördæmum.
Hverfasamtökum í Reykjavík
verði falið frumkvæðið á höf-
uðborgarsvæðinu.
O Athvarf fyrir fólk, sem ekki
"■ hefur burði til að berja maka
sína heima. Slíku fólki gæfist
kostur á að berja minna fólk í
athvarfi. Verði sett í öllum
kjördæmum.
Q Athvarf fyrir foreldri, sem ekki
fá að berja börn sín í friði fyrir
hinu foreldrinu. Ekki talin þörf
á þessu athvarfi á Austurlandi.
4Athvarf fyrir foreldra, sem ó-
■ fermd börn henda út af heimil-
unum. Fjöldi ekki fullljós.
C Athvarf fyrir fordekruð ferm-
ingarbörn á öllum aldri, þ.e.
nýfermd, 10 ára fermd, silfur-
fermd, gullfermd. Fermingar-
bömin gætu þar stundað hrossa-
prang, skipst á stereógræjum,
farseðlum til útlanda o.s.frv.
6Athvarfsskrifstoía (umboðs-
■ skrifstofa) fyrir manndóms-
vígslu athafnir fermingardrengja
í Bankok á Tailandi. Ferða-
skrifstofur sæju um skipulagn-
ingu.
«7 Athvarf fyrir örbjarga þjón-
' * andi presta. Eingöngu er gert
ráð fyrir þessum athvörfum í
Reykjavík og Kópavoei. Þar
mætti hafa ókeypis Bingó og^
spilakassa, og deila út gratis
strætómiðum.
8Athvarf fyrir fallna alþingis-
* menn og alþingisframbjóðend-
ur svo og fyrrverandi ráðherra.
Eingöngu í Reykjavík, sem næst
Austurvelli. Þarna mætti veita
tilsögn í rökhyggju og kennslu
í færeysku.
9.
10.
11.
12.
13.
Athvarf fyrir mislukkuð skáld
og listamenn, þ.e. þá sem ekki
hljóta heiðurslaun frá Alþingi.
Indriði G. fengi einnig aðgang.
Athvarf fyrir afreksmenn í út-
gerð og fiskverkun. Einkum
voru Drangsnes, Þórshöfn og
Suðurnes höfð í huga. Gætu
nefnst Hring(orma)ver.
Athvarf fyrir alkóhólista, sem
ekki vilja hætta að drekka.
Allsherjarathvarf fyrir fatlaða.
Þar gætu blindir spilað borð-
tennis, flokkað bækur,, hlust-
að á tónlist og lesið Alþýðu-
blaðið á blindraletri. Heyrnar-
lausir gætu horft á klassískar,
þöglar myndir. Psoriasisfatlað-
ir gætu þar fengið gróft sand-
nudd. Þar gætu fótalausir spil-
að handbolta og handalausir
fótbolta, sköllóttir gætu stund-
að hársnyrtingar á öðmm, templ-
arar gætu þar drukkið í Iaumi.
Þar geta og Jafnaðarmenn setið
þegar þeir vita ekki hvar þeir
standa.
Jafnréttisathvarf, þar sem karl-
ar gætu sinnt kvennamálum og
konur gætu verið kvenlegar og
jafnréttar og kynnt sér utan-
ríkismál.
1^1 Athvarf fyrir þjóðlega menn-
ingarsérvitringa. Þar mætti rækta
íslenskar hænur, geitur og ber-
serkjasveppi, halda námskeið
í selormagreiningu, kynna sér
stefnu Framsóknarflokksins af
fornum skinnhandritum, halda
námskeið í verðskynseflingu,
leita að nýjum og glötuðum
leiðum fyrir Alþýðubandalag-
ið, vinna að tölvuforritum fyrir
ættfræðinga, hanna tannbursta
og fleiri verkfæri fyrir örvhenta.
Þarna gætu húsgagnaframleið-
endur skoðað útlend mynda-
blöð og fengið fyrirgreiðslu og
aðstoð við pantanir og innflutn-
ing á erlendum húsgögnum.
Einnig kom til álita athvarf
fyrir vfdeófatlaða í Breiðholti
og í Ólafsvík.“
Að loknu þessu yfirliti Stefáns Ólafs
voru veitingar ráðuneytisins teknar að
svífa á blaðamenn. Fyrirspurnir urðu
því ekki margar. Ráðherra var þó
spurður nokkuð um stjórn og starfs-
mannahald í athvörfunum. Ráðherra
taldi brýnt að hleypa starfseminni af
rokkunum meðan hann starfaði enn við
Hverfisgötuna, því engum væri betur
treystandi að skipa í embætti athvarfa
með þjóðlegar, framsæknar, frænd-
ræknar og flokkslegar hugsjónir í fyrir-
rúmi. Mæltist ráðherra vel að vanda.