Fálkinn


Fálkinn - 16.11.1960, Blaðsíða 4

Fálkinn - 16.11.1960, Blaðsíða 4
VDK-FÚAVERJANDI LÖGUR Grænn — Dökkbrúnn. 1 lítra, 2 lítra, 3 lítra brúsar. Heildsölubirgðir: fyrir hendumar: það er gott að bera NIVEA-smyrsl á hendurnar að loknum þvotti eða uppþvotti, en þó er enn betra að nota þau áður en verkið er hafið. það er þyðingarmest að veita höndunum vernd gegn sápu og þvottaefni. Með því móti verða þær jafnan fallegar. þá má með sanni segja: PIPAR „Ég hef rekið mig á það hvað eftir annað, þegar ég hef svipazt um í þessari blessuðu veröld,“ sagði Errol Flynn eitt sinn í blaðavið- tali, „að það er reginmunur á viðhorfi karls og konu til þess mikilvæga kapítula i lífssögunni, sem heitir hjóna- band. Sérhver kona er á- hyggjufull út af framtíðinni, þar til hún hefur náð sér í mann, og ef hún skilur við hann, endurtekur þetta sig. En karlmaður hefur ekki minnstu áhyggjur af framtíðinni, fyrr en hann hefur eignazt konu.“ Judy Garland, sem ekki hefur leikið í kvikmyndum um fimm ára skeið, hefur nú í hyggju að gera kvik- mynd um eigin ævi. Dóttir hennar, Liza, á að leika hina ungu Judy, en Judy leikur sjálfa sig sem fullvaxta. Það er aðeins einn hængur á þess- ari ráðagerð. Til þess að geta leikið aftur, þarf Judy Gar- land að megra sig meira en hollt er fyrir heilbrigði einnar manneskju. Gárungarnir í París eru farnir að gera gys að de Gaulle vegna þess, að hann hefur fitnað í seinni tíð og er kominn með myndarlega ístru. Blöðin hafa í gaman- dálkum sínum gert góðlát- legt grín að þessu, en eitt blaðanna gekk feti lengra: Þaðsagðisthafa hleraðáskot- spónum, að forsetinn fengi fötin sín saumuð hjá einum af þessum fyrir- tækjum, sem framleiða föt fyrir verðandi mæður! Þegar þetta er ritað, hefur fyrsta kvikmynd Rodgers Vadims með Annette Ströy- berg, enn ekki verið leyfð til útflutnings af frönskum stjórnarvöldum. Myndin nefnist „Hættuleg sambönd 1960“, og var frumsýnd þeg- ar á síðastliðnu ári. Vonandi verða ekki sömu erfiðleik- arnir með aðra kvikmynd Vadims, þar sem hin fagra og umtalaða kona hans leikur aðalhlutverk. Töku henn- ar er nú lokið. Hún heitir á frönsku „Et mourier de plaisir“ (Og dey úr gleði). Va- dim hefur sjálfur gert handritið, sem byggt er á sögu eftir Sheridan le Fanu.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.