Fálkinn


Fálkinn - 16.11.1960, Blaðsíða 8

Fálkinn - 16.11.1960, Blaðsíða 8
„Gæðingana hefur hann Höskuldur í lagi..." — Jú, ég er fluttur í bæinn, til allr- ar bölvunar, liggur mér við að segja. Mér líkar illa, hvernig það er í þess- um bæ. Það er eins og ekkert lifandi dýr megi vera kringum mann. Og mér finnst þetta stinga mjög í stúf við það, sem ég sá 'í Þýzkalandi, þegar ég var þar á hestamannamótinu í sumar. Þar þótti sá mestur, sem flest húsdýrin gat haft hjá sér. Við erum staddir í kjallaraherbergi innarlega á Miklubraut, og erum í heim- sókn hjá einum mesta og kunnasta hesta- manni hér á landi, Höskuldi Eyjólfssyni frá Hofsstöðum. — Hvenær ertu fæddur, Höskuldur? — 1893, að Hofsstöðum í Hálsasveit, fæddur þar og uppalinn. 13 ára fluttist ég í Flóann, en síðustu tuttugu og tvö árin hef ég verið uppfrá. — Heldurðu ekki að þú kunnir illa við þig á mölinni? — Ég er andskoti hræddur um það. Það er nú eitthvað annað að vera í frjálsræðinu — upp til dala. — En áttu ekki hross ennþá? — Jú, svo er guði fyrir að þakka. En það er nú lítið, og þau eru enn uppfrá, en það stendur til að maður fái þau til sín. Manni er fróun í að lifa í tilhugalífi með þeim, þegar maður getur. — Þú hefur alla tíð haft yndi af hrossum? — Já, frá blautu barnsbeini. Snemma beygðist krókurinn til þess sem verða vildi í þeim efnum. Ég var smárolling- ur, þegar ég þóttist vera farinn að temja. Eitt sinn kom ég skeiðandi á brúnsokk- óttum hesti. Þá var kveðið: Höski ríður sokk að sjá, sviptur kvíða og trega. Tjörguhlíða-týrinn sá, temur prýðilega. Og víst er það deginum sannara, sem segir í vísunni: „sviptur kvíða og trega“. Ekki voru áhyggjurnar eða kvíðinn á ferðinni þá. Það kom ekki fyrr en seinna. — Hefurðu lent í lífsháska? — Nei, það getur ekki heitið. Kannski einu sinni. Ég lagði í vana minn þann gapaskap að ríða Hvítá hvar sem var og hvort sem var á dimmri nóttu eða björtum degi. í eitt skipti sá ég í tvo heimana. Það kom nefnilega í ljós, að hesturinn kunni ekki að synda. En einhvern veginn skolaði ég honum i flæðarmálið. Ég iðkaði það lengi að ríða Hvítá, Þar til eitt sinn að Magnús And- résson á Gilsbakka tók mig tali. Hann efaðist ekkert um að ég kynni þetta, en taldi óráðlegt að ég hefði svona lag- að fyrir öðrum ungum mönnum. Upp frá því varð minna um að ég riði Hvítá. — Hvað segirðu okkur frá bannár- unum? — Ja, bannárunum. Þá gerðust flest ævintýri. Þá var fjörið. Þá voru ýms- ar skrýtnar brellur hafðar í frammi. — Eina sögu höfum við heyrt af þér. — Jæja. Blessaðir lofið mér að heyra. En varast skylduð þig að trúa henni eins og nýju neti. Það er mörgu logið. Það er ekki allt sannleikur sem sagt er frá bannárunum. En lofið mér að heyra. — Sagan er á þá lund, að einhverju sinni hafir þú haft gagnleg tól grafin í jörðu niður, og það hafi sézt, því að moldin hafi verið ný ofan á. Dag nokk- urn fréttir þú, að yfirvaldið væri á leiðinni. Þá segir sagan, að þú hafir gert þér lítið fyrir, skotið hundinn þinn og grafið hann ofan á tólin. Þegar yfir- valdið kom á staðinn, tók það að grafa, en hætti í skyndi, þegar komið var niður á hundinn. — Nei, segir Höskuldur og hlær. •— Þessu hafa þeir logið. — Þú getur kannske sagt okkur eitt- hvað skemmtilegt frá bannárunum? — Minnið er nú farið að þverra. Það eru helzt stökur, sem ég man og eitt- hvert lítilræði í sambandi við þær. Það var hér einhverntíma á bannöld- inni. Þá komu ýmsir menn við hjá mér, enda hart um góða hluti. Kjartan Ólafs- son, hagyrðingurinn þjóðkunni, var á leið að heimsækja bróður sinn, og fleiri með honum. Hann kemur á hlaðið til mín og segir að þeir hafi lagt taumana upp á flötunum og látið hestana ráða Rætt við Höskuld Eyjólfsson frá Hofsstöðum

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.