Fálkinn


Fálkinn - 16.11.1960, Side 11

Fálkinn - 16.11.1960, Side 11
kallaði til hennar, sneri hún sér að hon um. Hún var hávaxnari en flestar konur á eynni. Kjóllinn hennar var hvítur, óhreinn og rifinn. Flestar aðrar stúlkur þarna voru svartar eða brúnar, margar súkkulaðibrúnar, en þessi var ljós á hörund og freknótt. „Hver ert þú?“ spurði hann. „Ég heiti Zatte,“ svaraði hún dræmt, næstum ókurteislega, — en þegar hann brosti til hennar, brosti hún á móti. . . „Þaðan í frá,“ sagði Hardy, „kom hún svo til mín á hverju kvöldi. Hún var synd eins og selur, en það var óvenju- legt um stúlkur þarna. Við syntum við ströndina og lágum síðan í volgum sand- inum. Hún var hvorki læs né skrifandi, en eins og margt frumstætt fólk talaði hún mikið og hiklaust. Einu sinni spurði hann hana, hvar hún ætti heima. „Þarna upp frá,“ svaraði hún og benti til fjalla. Hann vissi ekki, að þar byggi nokkur maður. „Það búa þar heldur engir,“ sagði hún, „bara við.“ „Við?“ sagði hann. „Já, pabbi og ég.“ „Hvað heitir faðir þinn?“ „Bagot.“ Rödd hennar var undarlega hljómlaus, er hún sagði þetta. Hún starði á hann, en þegar henni varð ljóst, að nafnið sagði honum ekki neitt, bætti hún við. „Hann er gamall maður.“ Hardy þagnaði skyndilega og það leið löng stund áður en hann hélt sögu sinni áfram. „Dag nokkurn spurði ég ráðs- konuna mína, hver Bagot væri. Hún starði á mig ofsahrædd. „Þann mann máttu aldrei minnast á,“ sagði hún hik- andi. „Þú mátt aldrei nefna nafn hans, aldrei, aldrei aldrei!“ Hún var venjulega stillt og skynsöm kona, ég hafði aldrei vitað hana verða svona vanstillta áður. Ég vildi ekki gera hana hrædda og minntist aldrei á þetta framar. En seinna spurðist ég fyrir um Bagot niðri í þorpinu og komst að því, að hann væri ,,gris-gris“, en það er varla Þýðanlegt nema með öðru dularfullu orði, „voodoo“, ■—- það þýðir einhvers konar svartagaldur. Enginn þeirra, sem ég ræddi um þetta við, — og lét sig engu skipta um hör- undslit eða menntun, — vildi tala um þetta. Þeir vöruðust að minnast á hann og kölluðu hann „manninn þarna uppi“ og bentu til fjalla, ÞAÐ var orðið áliðið og við sátum á svölunum með glös okkar. Rétt hjá voru nokkrir kókóspálmar, og öldurnar sleiktu ströndina, þúsund mílum hand- an þessa hafs var eyjan hans Hardys. Hann var óframfærinn og talaði hægt. Hann var mjög feiminn, er hann ræddi um þessa stúlku og samband sitt við hana. Hann leit ekki á mig er hann tók aftur til máls, — augun hvörfluðu frá trjánum til hafsins, — frá hafinu til trjánna. „Á endanum kynntist ég henni mjög vel,“ sagði hann, „en hún kom aldrei í kofann minn, og ég gat ekki fengið hana til þess að vera hjá mér á strönd- inni eftir að fór að dimma. Hún vildi ekki segja mér ástæðuna — en einu sinni spurði hún mig, hve lengi ég ætlaði að vera á eynni. „Ég veit ekki,“ svaraði ég. „Kannski alltaf.“ Þá stóð hún upp, setti á sig stóra hatt- inn, sem hún sífellt var með en setti sjaldan upp, og sagði alvarleg í bragði: „Þegar þú hefur ákveðið að vera, þá kemur þú til mín. Ég bíð eftir þér.“ Hún lagði af stað upp stíginn, og ég bærði ekki á mér. Er hún hafði skammt farið, sneri hún sér við og sagði: „Ég' held ég þurfi ekki að bíða lengi.“ „Hvernig var hún í hátt?“ spurði ég, — ég vildi gera mér einhverja hugmynd um hana, þessa undarlegu veru. „Var hún falleg?“ „Ég veit það ekki,“ svaraði Hardy. Hann leit enn ekki á mig. Mínútur liðu áður en hann hélt áfram. „Hún var eins og köttur, sem ég átti, þegar ég var lítill. Þér vitið, hvernig kettir eru, — mjúkir, stroknir, liðugir og léttir. En þrátt fyrir Frh. á bls. 28 FÁLKINN 11

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.