Fálkinn - 16.11.1960, Side 27
FfLAQ FUÖT BAKHLUTI VINHU STRANDL' SÍSLA HLJÓM TÍMA- BIL FFLAGA- SAMBANO (JMl 'OKOST 8LÓM 8'0K- SFAFUR SAMKIHU- LA6J m
VEX y — ■ •
A KORNi |(M
ÞRASL
SÓL- UNDAk vexí AUGUM 5 T> FISKUR BArO
ANGAN FJÆR
vwtn#- nniKi LJÖN MATUR
FFLA6 DýRUNUH
STFIM- CFNI LOKA FLJÓT KÆN ÍR
SÓLGUÖ VALDS- MANN
PFN. LTTIL N S s s s t ? r L 0 K K A 8 L D U R
NAGLA kÁT LÁS ROFNA RAOU6 UTAN LOFT-
TCGUND Ahaldid
HÖMÓ- PATAR A HfSTl LrNGOAR- RFIOMAOm
AND- M£LA SPAMMUR BUMDIO HXL VOPNtfT.) MYNNIS SÉR- HLJÖ6AR
KVÍDA
MIKIÐ MAON ÞRFyiU 'OSAMSl AO. K k HLAUP
/* VÖKVl 8 y l 6 L 0 F T T i
VAN- EFNDIR F L J 0 T AKURrym
— Já, það var gaman, sagði Irena og Valerie þótti
skrítið hve fálát hún var.
— Það var leitt að Hugh gat ekki farið með þér, eins
og hann hafði talað um, sagði hún. — Leiðinlegt fyrir
ykkur bæði.
Irena lagði frá sér farðadúskinn og sneri sér frá spegl-
inum. — Hugh virtist ekki taka sér það nærri, sagði hún
rólega. — Ég held að hann hafi ekki langað til að fara
með mér.
Hún sagði þetta svo kuldalega að Valerie leit á hana.
Þessar ensku stúlkur, hugsaði hún með sér. Það er ó-
mögulegt að átta sig á þeim. Henni fannst hún vera
úti á hálum ís, og það lagðist í hana að bón um hjálp
lægi í orðum Irenu.
— Hversvegna heldurðu það?
Irena hikaði. Hún hafði ekki ætlað sér að segja eins
mikið og hún gerði. En augun í Valerie voru vinaleg og
spyrjandi... og Valerie hafði þekkt Hugh miklu lengur
en hún sjálf. Áður en hún vissi af hafði hún sagt henni
allt, sem henni var niðri fyrir — vonbrigðin, andstreymið
og kvíðann. -— Hann hefur verið öðru vísi en áður, síðan
við fórum frá Englandi, Valerie. Það er líkast og hann
kæri sig ekkert um mig lengur. Honum var alveg sama
þó hann yrði að vinna í dag, og þegar ég kom aftur var
hann önugur og þumbaralegur.
Valerie flýtti sér að hugsa sig um. Gremjan gegn Hugh
kom upp í henni — en það varð að bíða. Nú var það
Irena, sem skipti máli — hún varð að hugga Irenu og
sannfæra hana áður en þær færu í matinn og kæmu inn-
an um fólkið. Svo gat Valerie talað yfir hausamótunum
á Hugh síðar.
Hún hagaði orðum sínum með gætni. — Þú misskilur
Hugh algerlega, Irena. Þú stekkur upp á nef þér og vor-
kennir sjálfri þér, af því að hann er áhyggjufullur og
hræddur um að geta ekki fullnægt kröfunum, sem nýja
starfið gerir til hans. Og af því að hann var ekki leiður
yfir að komast ekki í land með þér. Hugh er þannig
gerður, að hann lætur ekki á því bera þó hann taki sér
eitthvað nærri. Ég man einu sinni... (Framh.)
VERÐLAUNAKROSSGÁTA
FÁLKINN mun birta í hverju blaði hálfsiðu verðlaunakrossgátu
og eru verðlaunin 100 krónur. Þegar gátan hefur verið leyst ber
að senda hana ásamt eyðublaðinu hér að neðan, þar sem tilgreint
er nafn og heimilisfang. Frestur til að skila lausnum er þrjár
vikur. Utanáskriftin er: Vikublaðið FÁLKINN, Vesturgögu 3,
Box 1411, Reykjavík.
N AFN:
HEIMILI:
FÁLKtNN 27