Fálkinn - 16.11.1960, Page 34
— Nú veiztu þá um tilfinningar
mínar, Kata, sagði hann.
Hún kinkaði kolli.
— Vertu sæll, Bern.
Hún flýtti sér svo mikið írá hon-
um, að það var líkast því að hún
væri að flýja. Og hana langaði til
að flýja — hún vildi vera ein. Það
var svo margt, sem hún þurfti að
hugsa um. Nú var hún viss um að
Frank væri á lífi, og það var dásam-
legt — svo dásamlegt að það lá við
að hún dansaði um sjúkrahúsgarðinn.
En það var svo margt, sem hún
ekki vissi. Hvernig og hvers vegna
hafði hann horfið? Hafði hann gert
það sjálfviljugur? Mundi hann hafa
gert það án þess að láta sir Alex-
ander vita? Sir Alexander, sem taldi
hann vera einn af duglegustu og
hollustu mönnum öryggislögreglunn-
ar. Það var ótrúlegt að Frank gerði
slíkt án þess að láta sir Alexander
vita. Og ef sir Alexander hefði vitað
eitthvað, mundi hann hafa sagt henni
það áður en hún fór.
Og nú ráku áhyggjurnar gleðina
á burt. Ef Frank var lifandi — og
það þóttist hún viss um — var hann
kannske í stórhættuog þurfti á hjálp
að halda. En hvernig gat hún hjálpað
honum — þegar hún vissi ekki meira?
Hvað gat hún gert? Helga vissi eitt-
hvað, miklu meira en hún vildi segja.
En hvernig gat hún fengið út úr
Helgu það sem hún vissi, allra sízt
núna, er hún var veik, og auk þess
hrædd við eitthvað?
Kata gekk framhjá tennisbrautun-
um og stóra gistihúsinu. Og svo
þvert yfir aðalgötuna og beygði nið-
ur í hliðargötuna að Dennisonshús-
inu.
Opni Jaguarbíllinn hans Adrians
stóð fyrir utan hliðið. Hún staðnæmd-
ist snögglega. Adrian var þama. Til
að hitta Fredu? Það hlaut að vera
ástæðan, því að á þessum tíma dags
var Dodney jafnan á flugvellinum, og
báðar stúlkumar voru farnar í dag.
Var hugsanlegt að Freda og Adrian
hefðu stefnumót á laun? Þau gerðu
vitanlega ráð fyrir að Kata væri í
skrifstoíunni.
Kata hugsaði sig um augnablik,
svo gekk hún hiklaust upp dyraþrep-
in. Hún hafði enga ástæðu til að vera
nærgætin gagnvart Adrian og Fredu.
Hún átti bágt með að þola þá til-
hugsun, að eitthvað væri milli þeirra,
en hún var staðráðin 1 að komast að
hvað þau vissu um Frank, þó að hún
stofnaði lífi sinu I voða með því.
Hún gekk inn í anddyrið, læddist
og gægðist inn um hálfopnar dyrnar
að dagstofunni. Hún hrökk við. Adri-
an stóð hálfboginn við skrifborð
Fredu úti í horninu. Hann hafði
dregið út sumar skúffurnar og var
að gramsa i skjölunum, sem þar
voru.
— Hvað ertu að gera, Adrian?
spurði hún hvasst.
Hann leit snöggt við, en virtist
ekkert skömmustulegur.
— Halló, Kata! Nú stóðstu mig að
óleyfilegu athæfi! sagði hann og
brosti.
Henni þótti þetta kynlegt. — Já,
hvaða erindi átt þú eiginlega í skrif-
borð frú Dennison? spurði hún.
— Ég er að leita að leyniskjölum
— kannske ástarbréfum — kannske
er ég afbrýðisamur gagnvart Fredu
og gruna hana um að fá ástarbréf
frá öðrum aðdáanda. Það ætti að
vera auðskilið mál, finnst þér það
ekki?
Hann brosti og það var glampi í
augunum.
— Og ef ég segi frú Dennison að
þú hafir verið að gramsa í skrif-
borðsskúffunum hennar?
Hann kinkaði kolli hugsandi og
hnyklaði brúnirnar.
— Ja, það væri vitanlega ekki
heppilegt. En ég mundi geta fundið
einhverja nýtilega skýringu. Og lík-
lega mundi hún trúa því, sem ég
segði. Ástfangnar konur trúa oftast-
nær því, sem maður segir þeim.
Hún vissi að hann var að gantast
að henni, en orðin hittu samt við-
kvæman blett á henni.
— Þú heldur að þú kunnir tökin á
kvenfólkinu, Adrian. Og þú heldur
auðsjáanlega, að þú sért ómótstæði-
legur!
— Geri ég það? Magurt andlitiö
varð allt í einu alvarlegt. — Nei, það
held ég ekki. Ég var bara að erta þig,
Kata. Hér fyrr meir erti ég þig tals-
vert oft, en þú styggðist aldrei við
það. Manstu það ekki?
Hún mundi það vei. En henni
fannst hundrað ár siðan þau hjálp-
uðust að því að breyta kránni í Surr-
ey í mannabústað. Þá gerðu þau oft
að gamni sínu og hlógu og ertu hvert
annað, öll þrjú. Hún og Frank og
Adrian.
— Þú hefur ekki sagt mér enn
hvað þú ert að vilja í skrifborðs-
skúffu Fredu, sagði hún kuldalega.
-— Og hvað þú ætlar að segja, ef ég
segi henni frá að ég hafi komið að
þér.
— Þú segir henni það ekki, sagði
hann. — Þú ert ekki sérlega hrifin
af Fredu, held ég. Kannske ertu af-
brýðisöm gagnvart henni? Hann leit
til hennar og ertnin skein úr augun-
um og hann brosti.
Kata sagði gröm: — Vertu ekki að
gera þig að athlægi, Adrian. Hvers
vegna ætti ég að vera afbrýðisöm.
— Nei, hvers vegna ættir þú að
vera afbrýðisöm? sagði hann ertandi.
— En hvernig stendur á að þú ert
heima á þessum tíma dags?
— Bern fannst ég hefði þörf á
hvíld eftir það sem skeði í nótt.
— Hvað skeði í nótt? Ég var ekki
heima — ég var í Adelaide í erind-
um fyrir Rod.
(Framh.)
HriAtjáh (juílauqAAcw
hæstaréttarlögmaður.
Hafnarstræti 11. — Sími 13400.
Reykjavík.
NEO tip
hafa öðlast miklar vinsældir
hjá dömum sem hafa reynt
þau. Þau leyfa óþvingaðar
hreyfingar, eru fyrirferðar-
lítil og þola steypiböð. —
Einnig hafa hentugar um-
búðir orðið vinsælar i með-
ferð.
3
NEO
SKILAR
HVITASTA ÞVOTTI I HEIMI
X-OMO 1Þ0/EN-244S
34 FÁLKLNN