Fálkinn


Fálkinn - 30.08.1961, Síða 6

Fálkinn - 30.08.1961, Síða 6
25. ÁGÚST 1758 var Schwerin greifi, aðstoðarforingi Prússa- Konungs, tekinn til fanga í orrustunni við Zorndorf og flutt- ur til St. Pétursborgar. í varðliðinu var rússneskur foringi, sem hafði getið sér frægð í orrustunni. Hann var fífldjarfur og harðleikinn kappi, rammur að afli. Höfuðið á þessum vöðva- stælta líkama var fagurt svo að af bar og andlitið eins og á engli. En það var líka hið eina sem var englum líkt með Gregor Orloff. Kvenfólkið var gagntekið af honum og Katrín stórfursta- frú þóttist sjá fullkomnun mannlegrar fegurðar þar sem hann var. Gregor Orloff var ekki heimskur, en hann hafði ekkert lært og eyddi öllum tíma sínum í herbúðunum í spil, drykkju og svall. Hann var landeyða, sem ekkert átti, siðlaus svelgur, sem kunni ekki nokkra mannasiði. En fyrir þessum manni átti það eftir að liggja að skipa öndvegissessinn í hjarta Katrínar tólf næstu ár, ekki af því að hann væri ljúfur og ástleitinn, ekki af því að hann væri dugandi ráðunautur, ekki af því að hann væri aðlaðandi í framkomu, heldur eingöngu af því að hann var vöðvamikill og karlmannlegur. Hann var persónugervingur þeirra eiginleika, sem Katrín mat mest: krafta og ruddaskapar. Katrín var frilla Orloffs. En jafnvel þar gleymdi hún ekki stjórnmálunum. Jafnvel í ástarvímunni skorti hana ekki und- irhyggjuna, því að Orloff og bræður hans fjórir voru liðs- foringjar í herdeildunum fjórum, sem höfðu völdin í St. Gregor Orloff. Pétursborg. Það gat komið sér vel ef í hart færi. Og ýmislegt benti til þess, að til stórtíðinda drægi í Rússlandi um þessar mundir. Elísabet drottning sálaðist og nú varð Pétur, maður Kat- rínar, keisari. Hann var bæði heimskur og brjálaður og því hættulegur maður, sérstaklega af því, að hann var einvalds- herra yfir milljónum Rússlands. Hann hataði konu sína, og einu sinni þegar hann vildi sýna fyndni sína og kallaði konu sina gæs — en hirðin hló að sjálfsögðu dátt að — fann Katrín að til úrslita yrði að draga í sambúð þeirra. Og nú hófst sú bylting, sem minnst hefur verið undirbúin allra byltinga. Hún kom jafnvel þeim, sem að henni stóðu, á óvart, en ýmis samverkandi atvik urðu til þess að Katrín og undirtyllur hennar, Orloff-bræðurnir, náðu völdunum, en Pétur keisari týndi bæði kórónunni og lífinu. Nú varð Katrín keisari og Orloff „persónulegur aðstoðar- foringi11 hennar. Þau skiptu völdunum á milli sín, en Katrín gerði enga undantekningu hvað það snerti, að því leyti að stjórnmálin annaðist hún ein, en hann fékk að njóta valda- sælunnar á þann hátt, að hann mátti eyða og svalla eins og hann vildi. Og vilji hans í því efni var mikill. En stjórnmál- unum mátti hann ekki koma nærri fremur en hinir tólf friðlar aðrir, sem Katrín hafði. Katrín átti Orloff mikið upp að vinna, því að segja mátti að hún fengi völdin úr hans hendi. Og hún unni þessum svola af öllu hjarta. En honum var annað betur gefið en fara í launkofa með tilfinningar sínar. Hann fór svo hrotta- lega með drottninguna að öllum ásjáandi, að það vakti óhugn- að. Þegar hann var drukkinn •— og það var hann að öllum jafnaði — stærði hann sig af því við hvern sem hafa vildi, að hann væri friðill Katrínar og raunverulega hæstráðandi Rússlands. Og þegar það bar við, að Katrínu var sagt frá þessu, þá hló hún og var ekki annað að sjá en henni þætti heiður að þessu. Hún var ævintýramanneskja, eins og skálkurinn Orloff. Það var ævintýrablóðið í æðum þeirra beggja, sem tengdi þau saman, fífldirfskan, öfgaþorstinn, fyrirlitningin á al- menningsálitnu, hófleysið og ástríðurnar. I mestu ástarvím- unni lét Katrín þó tilfinningarnar aldrei hlaupa með sig í gönur, hvað stjórnmálin snerti. Hún stjórnaði landi og þjóð með snilldarlegri forsjálni og engum leyfðist það að leggja orð í belg. Áræðið var mesti styrkur Orloffs, því að hugmyndaflug hafði hann ekkert né heldur dómgreind eða skilning á fram- tíðinni. Hann var maður líðandi stundar, naut andartaksins, og þegar Katrín fæddi honum son, steig metnaðurinn hon- um til höfuðs. Orloff hafði aðrar frillur og fór síður en svo dult með það. Og Katrín hefndi sín stundum með því „að bregða á leik“ með einhverjum friðlinum, sem varð á vegi hennar. Þetta var talin eins konar bending til Orloffs um að ef til vill væri hann ekki eins fastur í sessi og hann vildi vera láta. En Orloff kærði sig kollóttan, þótt Katrín þjónaði öðr- um herrum, meðan það hjó ekki nærri valdastöðu hans. í fyrstu var það valdagræðgi og ástríða, en síðar hégómagirnd og kænska, sem laðaði hann að henni. Og ekki má gleyma því, að hún var honum sístreymandi tekjulind. Auk þess, sem hún gaf honum peningagjafir, fékk hann fleiri en eitt og fleiri en tvö feit embætti, sem hann þurft ekki einu sinni

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.