Fálkinn


Fálkinn - 30.08.1961, Page 12

Fálkinn - 30.08.1961, Page 12
 W/7 q j ”5) — }Q w b d) b : U — !>Ú reynir svo að haga þér sómasam- lega, meðan Friðrik verður hér, svo að ég þurfi ekki að skammast mín fyrir þig. Lára leit strengilega á ágætt sýnis- horn lífsgleðinnar, sem hringaði sig í sófanum á móti henni. „Sýnishornið11 geispaði og teigði úr sínum blóðheita skrokk. — Verði þér að góðu að giftast presti. Ekki vildi ég það. Verð ég kannski að ganga í pokakjól, meðan hann verður hérna, svo að ég æsi ekki óheilagar til- finningar með honum? Hún andvarpaði af sannri tilfinningu og stóð á fætur. Spegillinn andspænis veitti henni sannanir fyrir því, að hún var orðin eins brún og hvít manneskja getur frekast orðið. Hún vissi ekki, hvort hún átti að hlæja eða gráta, þegar hún virti fyrir sér hárið, sem var venjulega ljóst, en nú var það næstum hvítt að framan og myndaði sérkennilega mót- setningu við dökkt andlitið. Hún bar á sig ljósan varalit af í’ælni og gekk út a þrepið fyrir utan dyr sumarhússins. Létt rökkur sumarnæturinnar var að síga yfir, og loftið var þrungið ilm af kjarrinu og íynginu 1 hlíðunum, þessum ilm, sem verkaði eins og áfengi og hafði komið henni til þess að fremja mörg heimskupör. Og þó! Hún brosti með sjálfri sér. Það höfðu að minnsta kosti verið skemmtileg heimskupör! En nú virtist ekki vera nein hætta á, að hún gæti gert neitt slíkt. Hún leit gremjulega á lokaða gluggana á sumar- húsunum í kring. Það bólaði hvergi á nokkrum einasta manni. Eina fólkið, sem sást voru bændurnir á bæjunum í grenndinni, og þeir voru ekki beinlínis augnayndi. Og svo var einstaka bíll, sem fór eftir veginum, sem lá eins og hvítt band yfir grænar hæðirnar. Glaðlegum andlitum brá fyrir og hendi var veifað í kveðjuskyni. Á eftir fannst henni hún enn þá meira einmana en áður. Hún gekk letilega að snúrunni, þar sem sund- bolurinn hennar hékk, en svo snerist henni hugur. Hvað átti hún við sund- bol að gera? Það sæi víst enginn, hvort hún væri í honum eða ekki, og ef svo ólíklega vildi til, að einhver karlmaður léti sjá sig, þá . . . Hún brosti með sjálfri sér og gekk ofan að vatninu. Greinar og lyng stungu hana í berar iljarnar, og hún naut þeirrar snertingar við gróð- urinn og sumarið. Vatnsflöturinn var dimmur í rökkrinu og hólminn út á miðju vatninu eins og dökkur skuggi, og það var allt hijótt nema þegar einstaka fugl lét til sín heyra. Hún fleygði kjólnum, sem var eina flíkin sem hún var í, og óð út í vatnið. Hún var búin að synda lengi og var farin að hugsa um að halda heim, þeg- ar hjartað tók snöggan kipp í barmi hennar og henni hitnaði allri af eftir- væntingu. Það stóð bíll utan vegarins hinum megin vatnsins. Kfún synti nær og skimaði um eftir tjaldi, en það var ekkert tjald sjáanlegt og enginn maður sást neins staðar. Hún hrökk við, þegar hún varð vör við hreyfingu í vatninu rétt hjá sér. En ótti hennar hvarf fljótt og hún upp- götvaði dásamlega staðreynd: Það var karlmaður á sundi rétt hjá henni og honum virtist ekki bregða minna við að sjá hana! Hún synti nær ákveðnum sundtökum. Hann horfði á hana dol- fallinn og virti fyrir sér glaðlegan og forvitnisvipinn á sólbrúnu andlitinu og blautt hárið, sem lá niður með vöngun- um. Hann leit dálítið neðar og hún reisti sig dálítið upp í vatninu um leið, svo að brjóstin blöstu við í sinni sak- lausu nekt. Hann saup kveljur og skelf- ingarsvipur kom á andlitið og hann sneri við í ofboði og synti í átt til lands. Hún hló mjúkum dillandi hlátri, sem kom hrolli niður eftir hrygglengjunni á honum. Hann herti sundið, en til lítils gagns, því að hún fylgdi honum fast eftir. Hann stanzaði, þegar hann kom að grynningunum, nálgaðist bakkann og sneri vandræðalega andlitinu að henni. Hún hló, þegar hún sá, að hann var ung- ur og fallegur með augu, sem voru dimm eins og vatnsflöturinn í vorrökkrinu og munn, sem vakti með henni sterkar kenndir. Hann virti hana fyrir sér gegn vilja sínum og reyndi að vera ákveðinn: — Ég verð að segja yður eins og er. Hún sá ekki betur en hann roðnaði. Hún leit á hann ljómandi augum: — Ég ekki heldur. Hún kom nær honum, svo að hann fann beran líkama hennar strjúkast við handlegg sinn. Hann færði sig skelfd- ur undan. — Þér ættuð að fara burt, svo að ég geti farið upp úr og klætt mig. — Hvers vegna ætti ég að vera að því, spurði hún ögrandi og færði sig upp á grynningarnar. Hún settist á stóran stein og dæsti: — Ég er búin að vera á sundi í óra- tíma. Hann horfði eins og dáleiddur á fagr- an líkama hennar, sem blasti bjóðandi við honum og titraði undir augnaráði hans. Með lágri stunu sneri hann sér við og synti aftur út á vatnið. Hún kast- aði sér út í vatnið á eftir honum, og nú hló hún ekki lengur. Mótstaða hans var úr sögunni, þegar hún synti upp að hlið hans. Þegar þau nálguðust hólmann, greip hann hana í fang sér og óð með hana í land. — Hafmeyjan mín, tautaði hann blíð- lega, þegar hann lagði hana niður undir runna og féll í votan faðm hennar ... ★ Hún skildi við hann um sólarupprás, þegar kliður fuglanna fyllti loftið. Þau fóru sitt í hvora áttina, þakklát fyrir dásamlega nótt. Henni var hrollkalt, þegar hún kom heim, og fór beint í rúm- ið hamingjusöm og með frið fullnægj- unnar í hverri taug. Lára vakti hana um miðjan dag og bað hana að kveðja Friðrik, sem hafði komið um morguninn, áður en hann færi. Hann gat ekki stanzað eins lengi og ákveðið hafði verið. Hún var örg yfir því að þurfa að fara á fætur, en for- vitnin réði úrslitum. Hún hafði aldrei séð þennan imnusta systtur sinnar. Aum- ingja Lára, hugsaði hún meðan hún Frh. á bls. 28 Hiín var búin að synda lengi og var farin að hugsa uni að halda heim, þegar hjartað tók snöggan kipp í barmi hennar... SMÁSAGA EFTIR MÖGNU LÚÐVfKSDÓTTUR 12 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.