Fálkinn - 06.12.1961, Side 6
stærðir
Listskautar
á hvítum skautaskóm nr. 35 — 41
Verö kr. 767,oo
Hockey - skautar
á svörtum skautaskóm nr. 37 — 46
Verð kr. 729,oo
6 FALKINN
• ■ Bréf úr Eyjum.
Vestmannaeyj., 19. nóv. 1961.
Til vikublaðsins Fálkans.
Ég sendi ykkur hér með 3
krossgátulausnir á kortum, nú
tími ég ekki að vængstýfa
Fálkann, vegna lausnanna, því
að nú er ég farinn að safna
honum eins og í gamla daga.
Þetta er alveg príma brot á
honum fyrir band. Kunningi
minn, sem safnar krossgátum
útvegar pappírinn fyrir kortin,
3 stk. á viku, eitt fær hann, eitt
- sendist Fálkanum og einu held
ég eftir — og svo sendi ég
ykkur að gamni mínu mynd af
fyrstu krossgátu Fálkans með
skýringum. Er þetta ekki
- fyrsta krossgátan, sem prent-
uð er í íslenzku blaði? Þá voru
þær ætlaðar börnum til dægra-
dvalar, en nú er öldin önnur.
Ég þekki mætan mann, sem
lagði dag við nótt yfir kapli,
hann kunni líka alla heimsins
kapla. Hann hefur nú skipt yf-
ir og er kominn með krossgátu-
dellu. Hann telur þær einna
beztar í Fálkanum, en vildi þó,
að þeim yrði breytt í líkingu
við þær I danska Hjemmet.
, Hann taldi líka, að Fálkinn
mætti ekki vera of háfleygur í
þessu. Það væru ekki allir, sem
hefðu Leksikon við hendina.
Hann, sem annars er fróður ,
vel, vissi ekkert um hina aftur-
gengnu Anastasiu um daginn
fyrr en hann fletti upp í Leksi-
kon. Svo sendi ég ykkur líka
mynd af fyrstu getraun Fálk-
ans: „Þekkirðu landið þitt“,
sem allir þekktu, eins og svona
getraunir eiga að vera. Mér
datt í hug þeir mörgu, sem ætl-
uðu að fá myndavélina frá
Petersen um daginn, en þeir
gátu ekki orðið þátttakendur
af því að þeir þekktu ekki fjár-
, '.L mörk í einhverri Hafravatns-
rétt. Þetta voru nú meiri ó-
myndirnar hjá ykkur. Hann er
vel að því kominn sá, sem
hlýtur hnossið, þegar dregið
verður. Þetta megið þið ekki
láta endurtaka sig, því að þetta
er fyrir neðan allar hellur,
nema fyrsta myndin, sem var
frá Rvíkurhöfn, fyrir utan ó-
skýrleikann voru myndirnar
ekki eins kopieraðar og fyrir
utan þessa 5 hluti, sem voru
skyggðir, vantaði að minnsta