Fálkinn


Fálkinn - 06.12.1961, Side 29

Fálkinn - 06.12.1961, Side 29
9 dayAinA Önn Innbrotsþjófur - eöa hvað? Kæru lesendur! Þeir ykkar, sem komnir eru á fullorðinsár, munu án efa vera mér sammála í því, að fátt sé betra í þessum vonda heimi okkar, en að ganga til rekkju syfjaður og þreytt- ur. og hverfa á vit draumadísarinnar. Svo mun ykkur líka finnast fátt verra eða ergilegra, en að vera vaktir upp með skarkala á miðri nóttu. Oftast munduð þið þá verða úrillir yfir rask- inu, en það kann þó að koma fyrir, að svefninn sé truflaður af slíkum hljóð- um, að ótti og hræðsla verði reiðinni yfirsterkari. Svoleiðis var með mig um daginn. Ég hrökk upp á miðri nóttu við skark- ala framan úr stofunni. Hávaðinn var því líkastur, að einhver, ,sem væri að paufast í myrkri, ræki sig á borð og felldi það um koll. Hræðsla eyddi því fljótlega reiðinni hjá mér. Ég sperrti eyrun og var sem festur upp á þráð, og næmari en radarskermur. Ekkert heyrðist þó meira, en ég ályktaði, að þjófurinn hefði án efa orðið hræddur líka, yfir óhappi sínu, og þyrði ekki að hræra sig á eftir, af ótta við það, að íbúarnir hefðu vaknað upp. Þegar ég gat aftur hreyft mig eftir hræðslustífelsið, hnippti ég í konu mína, sem ekki hafði rumskað. Er mér hafði tekizt að vekja hana, sá hún ekki ástæðu til að óttast það, þó ég vekti hana upp, svo hún brá eðlilega fyrir sig úrillskunni. Ég sagði henni grun minn að þjófur væri í stofunni, en hún gaf strax þá dagskipan, sem þúsundir eiginkvenna hafa gert á undan henni: „Fram úr með þig, maður, og gómaðu hann!“ Ég læddist skjálfandi fram og kveikti ijós í ganginum. Hjartað barðist, er ég kveikti í stofunni. Það sem ég sá, var ekki fallegt, og ég óskaði mæstum held- ur. að það hefði verið þjófur. Stóra blómið okkar hafði dottið á hliðina og á sófaborðið, og allt um koll. Konan kom á eftir og leit á vegsum- merkin eins og æfður leynilögreglu- maður: „Jæja, trúir þú mér núna, eftir að þú hefur drepið blessað blómið?“ Þið botnið líklega ekkert í þessu ein- kennilega samtali okkar hjóna, svo ég verð að gefa skýringu. Fyrir mörgum árum gaf ég konunni lítið blóm, er Diefenbaker nefnist. Þetta var fallegt blóm, eins konar pálmi, sem óx hratt og var stolt heimilisins. Nú var það orðið rúm mannhæð að stærð og mjög fagurt. Fyrir tveimur mánuðum dundi svo ógæfan yfir. Við fundum stærðar skor- dýr í moldinni. Þetta voru margfætlur, sem lifðu í moldinni og nöguðu rætur blómsins. Mörgu kvöldi eyddi ég við að eyða þessum rándýrum, sem nöguðu ræt- urnar á okkar heittelskaða Diefenbaker. En það var sama þótt ég veiddi yfir 20 dýr á kvöldi, alltaf virtist nóg af þeim. Við leituðum ráða hjá sérfræðingum, en þeir sögðu útilokað að skipta um mold á þessum tíma árs. Einnig sögðu þeir vont að finna eitur til að vökva með, sem ekki mundi líka drepa blómið. Við stóðum því uppi ráðalaus og brátt fóru að koma brúnir blettir í blöð- in á blóminu. Ég fylltist hatri í garð skordýranna og skipulagði hefndar- aðgerðir. Þegar ég sá eitthvert þeirra voga sér upp úr moldinni, tendraði ég eldspýtu og lagði að, hviss, en ekkert dugði, því annað kom strax í staðinn. Að lokum fór ég til kuklara, þegar hinir útlærðu kunnu engin ráð. Reynd húsmóðir ráðlagði mér að vökva með veikri salmíaksupplausn, og önnur kvað grænsápuvatn duga bezt. Konan mín var á móti aðferðunum báðum, og sagði þær mundu drepa blómið alveg. Ég hafði aftur á móti tröllatrú á þessum meðulum, svo að ég fékk mitt fram. Ég vökvaði um kvöldið, fyrst með salmíakinu. en á eftir með grænsápu- vatninu. Konan sagðist þvo hendur sínar af þessu morði, og horfði á mig með vanþóknun. Ég sat aftur á móti hróðugur yfir blóminu, og skemmti mér við að horfa á skaðræðisdýrin spretta alls staðar upp úr moldinni og engjast sundur og saman í hinum ban- væna vökva. Svo fórum við að sofa, og ég var hinn kokhraustasti. Ég sagði, að að morgni mundu öll skordýrin dauð, og blómið frelsað. Það var því ekki að undra, að ég yrði sleginn, þegar ég stóð yfir vesl- ings blóminu okkar þar sem það hafði hnigið til gólfs og lá í andarslitrunum ofan á sófaborðinu, en á gólfinu lá ösku- bakkinn, sem ég hafði gefið konunni á jólunum í fyrra, brotinn. Konan fyrirgefur mér víst seint þetta óhappaverk, og ég hefi líka ákveðið að skipta mér ekki framar af veikindum blómanna. Dagur Anns. FALKIN n 29

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.