Fálkinn - 21.08.1963, Blaðsíða 23
Fylltir tómatar.
6 stórir tómatar
2 dl hrísgrjón
Vatn, salt
4 laukar
50 g smjörlíki
1 dl soð
200 g kjötafgangur
Steinselja
Salt. pipar
2 eggjarauður
Rifinn ostur
2 msk. smjör.
Skerið lok af tómötunum,
takið innan úr þeim, og
hvolfið þeim í sigti, svo sígi
úr þeim.
Sjóðið hrísgrjónin laus.
Hreinsið laukinn, skerið
hann smátt sjóðið hann gul-
brúnan í potti í smjörlíki.
Setjið soðið út og kjötaf-
gangana, sem eru saxaðir
smátt og smátt, hrísgrjón og
saxaða steinselju. Kriddað
með salti og pipar.
Hrærið eggjarauðurnar
með salti, hrærið öllu saman
við þær. Setjið þetta deig í
tómatana, raðið þeim í smurt
eldfast mót, stráið miklu af
rifnum osti ofan á.
Sjóðið það sem kom
innan úr tómötunum með
dálitlu smjöri, kryddað. Hell-
ið þessari sósu kringum
tómatana.
Sett inn í heitan ofn, þar
til tómatarnir eru meyrir og
osturinn er fallega gulur.
Tómatbuff
6 tómatar
brauðmylsna
Salt, pipar
8 baeonsneiðar
Rifin piparrót.
Skerið tómatana í þykkar
sneiðar, veltið þeim upp úr
brauðmylsnu, sem í er bland-
að salti og pipar. Steikið
baconsneiðarnar. Steikið síð-
antómatana í sömu feiti, sé
hún ekki nóg er bætt smjöri
á pönnuna. Raðið tómatbuff-
unum á fat, leggið baconið
yfir, stráið piparrót þar
ofan á.
Borið með hrærðum kart-
öflum.
Tómatterta.
250 g hveiti
150 g smjörlíki
ögn af salti
1 eggjarauða
1 msk. rjómi
1 msk. kalt vatn
12 baconsneiðar
5—6 tómatar
rifinn ostur.
Hveiti og salti sáldrað á
borð, smjörlíkið saxað saman
við með hníf. Vætt í með
eggjarauðu, rjóma og ísköldu
vatni. Deigið hnoðað. Látið
bíða um stund. Þekið innan
lausbotna tertumót með deig-
inu. Bylgið kantinn með
fingrunum. Stingið botninn
með gaffli. Bakað við 200°.
Klippið baconið smátt,
harðsteikið það, merjið tó-
matana þegar skelin er bök-
uð er baconið látið í botn-
inn, þar ofan á tómatmauk-
ið. Miklu af rifnum, bragð-
sterkum osti stráð ofan á.
Sett inn í ofn í nokkrar mín-
útur, eða þar til osturinn er
bráðnaður. Tekið úr mótinu,
borðað heitt.
Tómat-gúrkusalat.
150 g tómatar
% gúrka
2 msk. saxaður laukur
1 msk. edik
3 msk. matarolía
Vé tsk salt
ögn af pipar og
hvítlauk.
Tómatar og gúrka skorið
f þunnar sneiðar. Raðað á
fat. Tómatsneiðar í hring
gúrkusneiðar í miðjunni.
Stráið söxuðum lauknum
yfir tómatana.
Hristið saman edik, olíu,
salt, pipar og hvítlauksduft.
Hellið sósunni yfir grænmet-
ið á fatinu.
BHD