Fálkinn - 20.01.1964, Side 7
Furðulegt bréf.
Kæri Fálki.
Um daginn sá ég dálítið
furðulegt bréf í Pósthólfinu
(mig minnir að það hafi verið
frá manni sem hét Jón Ólafs-
son) frá manni sem endilega
vildi sjá nafn sitt á prenti.
Menn taka upp á' ýmsu en er
þetta ekki einum of mikið af
því góða? Ber þetta áðurnefnda
bréf vott um heila geðsmuni?
Ég held ekki. Og ég held að
menn geti farið aðrar leiðir til
þess að fá nafnið sitt birt á
prenti en þessa.
Með vinsemd og virðingu.
Davíð Ólafsson.
Svar:
EruS þið Jón bræðurf
Furðuleg forsíða á jólablaði.
Háttvirta blað.
Satt að segja olli forsíðan á
jóla blaði ykkar mér nokkurri
furðu. Ég hef ekki vanist því
að áfengi væri notað sem tákn
jólanna heldur væri það nokkuð
sem bæri að forðast neyslu á
yfir þessa hátíð. Ég veit að
fleirum en mér hefur fundist
þetta ósmekklegt.
Sig.
Svar:
Þetta vín sem þú skrifar um er
óáfengt, svokallaO vínlílci og er
ákaflega vinsœlt af þeim sem ekki
neyta liins raunverulega. Vonandi
taka vínlíkismenn umkvörtun sína
til ath ugunar.
Phaedra.
Kæri Fálki.
í sumar sem leið voruð þið
með framhaldssögu sem hét
Phaedra og sögðuð að þegar
henni lyki í blaðipu yrði kvik-
mynd gerð eftir henni sýnd í
Tónabíó. Nú er sagan hjá ykk-
ur búin en ekki bólar enn þá
á myndinni. Getur þú ekki gert
svo vel og sagt mér hvenær
hún verður tekin til sýningar.
Mér þætti vænt um ef það
væri hægt.
Með beztu kveðjum,
K. L.
Svar:
Þessi mynd, Pliaedra, veröur
væntanlega tekin til sýningar næst
á eftir jólamynd Tönabíós sem
verður West' Side Story. Verður
myndin nánar kynnt í kvikmynda-
þættinum síðar.
Hvað var það?
Kæri Fálki.
Þegar maður fer í verzlun
til að verzla er það ekki óal-
gengt ávarp sem maður verð-
ur fyrir eitthvað á þessa leið:
Hvað var það? Ég kann þessu
ávarpi illa. í fyrsta lagi vegna
þess að mér finnst það nokkuð
hryssingslegt. Því ekki að
spyrja: Hvað get ég gert fyrir
yður? Nú er það svo að sumir
vilja ekki láta þéra sig en það
verður að hafa það. Ég hygg
að þetta ávarp Hvað get ég
gert fyrir yður muni falla
mönnum miklu betur í geð en
hitt sem ég gat fyrr um.
Með beztu kveðjum.
Olli.
Öllum svarað í hálfkæringi.
Kæri Fálki.
Það er einn hlutur í sam-
bandi við blaðið, sem ég er
að velta fyrir mér um þessar
mundir. Hvernig stendur á því
að mér finnst eins og öllum sé
svarað í hálfkæringi í Póst-
hólfinu? Ég held að þið ættuð
ekki að vera að slíku heldur
vera einlægir í svörum við þá
lesendur sem nenna að skrifa
ykkur.
Með kveðju.
Siggi.
Svar:
Við þökkum þér kærlega fyrir
bréfið þitt, Siggi minn og vonum
aö við fáum bréf frá þér fljótlega
aftur. Viö svörum ekki í hálf-
kæringi aö minnsta kosti ekki
bréfum frá þér.
Bréfaskrift.
Ungur maður hefur snúið sér
til Fálkans og óskað eftir því
að komast í bréfasamband við
pilta og stúlkur á aldrinum
20—30 ára. Hann heitir Guð-
mundur E. Guðmundsson 29
ára að aldri. Heimilisfangið er
Grettisgata 64 í Reykjavík.
Sonny Liston.
Kæri Póstur.
Getur þú ekki gert svo vel
að birta heimilisfang eða dval-
arstað Sonny Listons.
Með fyrirfram þökk.
O. V. F.
Svar:
Því miður vitum viö hvorki
heimilisfang eöa dvalarstaö þessa
sómamanns. Þú skalt bara fylgjast
meö livar hann verður rotaöur
næst og skrifa þangaö.
Forsíðan með Kennedy.
Kæri Fálki,
Eg þakka ykkur kærlega
fyrir blaðið með myndinni af
Kennedy á forsíðunni. Að mínu
viti var þessi forsíða vel heppn-
uð og ég setti hana í ramma.
Með þökk fyrir
K. L.
— Auðvitað veiði ég ekkert, ég er bara
að gá að því, hvort nýja úrið þitt sé vatns-
þétt.
— Konan mín vill fá skilnað-
I I | l J
f I 1.T3
Pl I D
— Nú — og svo kom það í ljós, að
ég var ekki eini búðalögreglumaðurinn,
sem fyrirtækið hafði í þjónustu sinni . . .
— Ég geri þetta barasta af því ég geng
á fyrirsætunámskeið. Þetta er sko eins konar
heimalestur!
FÁLKIMN
7