Fálkinn


Fálkinn - 20.01.1964, Page 12

Fálkinn - 20.01.1964, Page 12
ÞÆTTIR UR ÆVI JOHNS F. KENNEDYS II. ÆSKUÁR Frá Boston fluttust Joe og Rose Kennedy búferlum til Riverdale í New York. Börn þeirra voru þá orðin sjö, auk drengjanna tveggja, fjórar dæt- ur og sonur, Rosemary, Kathe- leenn, Eunice, Patricia og Ro- bert. Nokkru síðar fæddist þeim dóttir, Jean, og loks 1932 yngsta barn þeirra, sonur Ed- ward Moore. Rose Kennedy tók nær sér að hverfa úr átthögunum, frá fjölskyldu og vinum. Þrátt fyrir barneignir var Rose Ken- nedy ungleg kona. Orð fór af klæðaburði hennar. Síðar var hún oftast dætrum sínum betur heima í Parísartízkunni. Þegar hún var kynnt fyrir tengdasyni Franklin D Roosevelt, varð hon- um að orði: „Loksins get ég trúað sögunni um storkinn." í Boston höfðu Kennedy- hjónin oft farið með börnin í heimsókn á sunnudögum til Pats, sem þá var kominn á sjö- tugsaldur. Þá urðu drengirnir tveir að sitja á strák sínum, því gamli maðurinn leit ærsl óhýru auga. Fitzgerald var aftur á móti mildur á manninn. Hann hafði gaman af að rifja upp at- burði liðinna daga í Boston, brunann 1872 viðræður þeirra Ralph Waldo Emerson, Henry Wadsworth og James Russel Lowell í The Old Corner Book- shop; og flug sitt yfir Boston 1911 með Graham-White. Fitz- gerald tók Jack, fimm ára gamlan, með sér á kjörstaðina, þegar hann var í framboði í ríkisstjórnarkosningunum 1922. Er Franklin D. Roosevelt kom til Boston á kosningaferðalagi tók hann Jack með sér á fund hans. Roosevelt hrópaði upp, þegar hann sá Fitzgerald: „E1 Dulce Adelino." á ferð um Suður-Ameríku þá fyrir skömmu hafði Fitzgerald sung- ið „Sweet Adelino á spænsku. Það hafði borizt Roosevelt til eyrna. í Boston höfu Joe og Jack gengið í einkaskóla, Dexter School. Þeir voru ef til vill einu kaþólsku drengirnir á skólan- um. En í Riverdale gengu þeir á barnaskóla skammt frá heim- ili þeirra. Kennarar Jacks mundu síðar eftir honum sem grönnum, prúðum, iðnum, við- felldnum, en þó skapheitum dreng, sem áhugasamur var um enska sögu. Joe þótti öllum betri námsmaður en Jack og var honum líka stærri og öfl- ugri. Kennedy-fjölskyldan átti, auk húss síns í New York, annað hús, jörð þó öllu heldur, í Hy- annis Port á Cape Cod, en á þeim slóðum eiga margir efna- menn bústaði. Hús fjölskyld- unnar þar var skammt upp af ströndinni. í grennd við það var seglskipalægi. Skömmu síð- ar eignaðist Kennedy-fjölskyld- an þriðja hús sitt á Palm Beach og síðar fleiri. Á sumrin dvaldist Kennedy-fjölskyldan oftast í Hyannis Port. Dreng- irnir lærðu ungir að synda og sigla. „Joe og Jack voru einir úti á sjó að sigla hér í Hyannis Port, þegar þeir voru svo litlir að ekki sá á kollinn á þeim. Af ströndinni sýndust bátarnir vera mannlausir,“ sagði Joe Kennedy einhverju sinni við fréttamann. Ungur eignaðist Jack bát, sem hann nefndi „Victura“. í fjarveru föður þeirra var Joe stoð og stytta móður þeirra við uppeldi barn- anna. Systkinum hans þótti hann harður í horn að taka. Oft kom til áfloga milli þeirra Jacks. Beið Jack þá oftast lægra hlut. „Ekki verður of-

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.