Fálkinn


Fálkinn - 20.01.1964, Side 19

Fálkinn - 20.01.1964, Side 19
Gamli Gullfoss siglir fánum prýddur inn á Reykjavíkurhöfn í fyrsta sinn. Hvað var svo um að vera? Klukkan tólf á hádegi var fundur settur í Iðnaðarmanna- húsinu. Fundinn setti Jón Gunnarsson, samábyrgðarstjóri, en hann var varaformaður í bráðabirgða- og undirbúnings- stjórn félags þess, er þarna skyldi stofnað. Formaðurinn, hinn landskunni athafnamaður Thor Jensen, var erlendis og gat því eigi mætt á fundinum. Fundarstjóri var kosinn í einu hljóði Halldór Daníelsson, yfir- dómari. Og félagið, sem var stofnað þennan fagra janúar dag fyrir fimmtíu árum, var Eimskipafélag íslands, „Óska barn þjóðarinnar“ eins og það réttilega oft hefur verið nefnt. Stofnun Eimskipafélagsins átti sér langan aðdraganda. Sjálfsagt er erfitt að segja hversu langan, hvar draga á markalínuna. Beztu sonum þjóðarinnar hafði um aldir verið Ijóst, hver nauðsyn lands- mönnum var á því að sigling- ar til landsins væru reglulegar, og hve mikið fé var dregið út úr landinu í óhóflegum flutn- ingsgjöldum útgerðarmanna, sem ekki hugsuðu um neitt nema að maka sinn eigin krók. Þó var sjálf hugmyndin um stofnun íslenzks gufuskipa- félags alls ekki gömul og skal nú nokkuð greint frá aðdrag- anda að stofnun félagsins pg er þar stuðzt við 25 ára af- mælisrit Eimskipafélags ís- lands, sem Guðni Jónsson, nú prófessor, tók saman. Árið 1778 hófust fyrst reglu- bundnar póstskipaferðir milli íslands og Kaupmannahafnar. Fram að því hafði allur póst- flutningur farið fram með skip- um einokunarkaupmanna, en sá flutningur var mjög óhent- ugur, því þau skip komu ekki til Kaupmannahafnar fyrr en í ágústmánuði og var það óþægilegt fyrir stjórnina, að fá engan póst og skjöl frá íslandi fyrr, hvað þá fyrir landsmenn sjálfa, en vafalaust hafa þeirra hagsmunir þó ekki verið þar þyngstir á metunum. Ekki voru þessar áætlunar- ferðir örar fyrst í stað, ein ferð með seglskipi árlega, og hélzt það fyrirkomulag lengi. Síðasta seglskipið í póstferðum hingað hét Sölöven. Það var 108 smá- lestir að stærð og hóf ferðir sínar árið 1852. Ferðirnar voru þá orðnar 3 á ári milli Kaup- mannahafnar og fslands og auk þess ein ferð fram og til baka milli Reykjavíkur og Liverpool að vetrinum. Afdrif þessa skips urðu þau, að það fórst með allri áhöfn nálægt Lóndröng- um á Snæfellsnesi síðast í nóv- ember árið 1857 í ofsaveðri á útsiglingu frá Reykjavík. Nú horfði ekki byrlega með samgöngur til landsins, en þá kemur til sögunnar einn helzti forvígismaður Dana um sigl- ingar á þeim tíma, C. P. A. Koch. Hann hóf starfsemi sína árið 1845 og jók hana hröðum skrefum og veitti forstöðu ýms- um skipaútgerðarfyrirtækjum, þar á meðal Koch & Hender- son og „Hinu almenna danska gufuskipafélagi“, sem hann stofnaði 1856. Og sama árið og „Sölöven“ fórst gerði Koch ríkisstjórninni tilboð fyrir hönd skipafélags síns um að koma á föstum áætlunarferðum gufu- skipa milli íslands og Kaup- mannahafnar. Bauðst hann til þess að láta skip sín sigla 6—8 ferðir á ári, gegn nokkrum styrk. Stjórnin leitaði álits al- þingis um tilboð þetta og var þingið því mjög hlynnt, enda fór svo að samningur var gerð- ur við fyrirtæki Kochs um 6 ferðir á ári. Fyrsta skipið, sem Koch & Henderson létu í þess- ar íslandsferðir var Arcturus, 472 brúttólestir að stærð, ný- legt skip. Það kom fyrst til Reykjavíkur 27 apríl 1858, fyrsta póstgufuskipið, sem til íslands hafði komið, og má með sanni segja, að þá hafi verið brotið blað í samgöngu- sögu íslendinga. Samningarnir við Koch & Henderson voru endumýjaðir lítið breyttir þar til árið 1867, Framh. á bls. 40, Emil Nielsen, fyrsti framkvæmdastjóri Guðmundur Vilhjálmsson, framkvæmda- Óttar Möller, núverandi framkvæmda- Eimskipafélags íslands. astjóri í 32 ár. stjóri Eimskipafélagsins. FÁLKINN 19

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.