Fálkinn


Fálkinn - 20.01.1964, Qupperneq 40

Fálkinn - 20.01.1964, Qupperneq 40
ár lét hún ekkert frá sér heyra. Hún bjó með elskhuga sínum og það var fyrst eftir á — ári eftir að mér var sleppt úr fang- elsinu — að ég fékk bréf frá henni. Og bréfið skrifaði hún daginn sem hún framdi sjálfs- morð. Elskhuginn var orðinn leiður á henni og þess vegna gat hún ekki lifað lengur! — Ó, Johriny, sagði ég og leit á nann full samúðar — saklaus í fangelsi öll þessi ár •— glötuðu ár. — Glötuðu? endurtók hann og brosti dapurlega, — Nei ekki glötuðu. Ég hef aldrei fengið jafn góðan tíma til að hugsa og einmitt þessi ár .... ég fékk nóg að hugsa um, endurtók hann hugsandi á svip. — Mig renndi grun í hugs- anir hans öll þessi ár. Hefnd. Hann vildi hefna sín á hin- um manninum. Hefna sín á elskhuga Kathys. Mig tók sárt að hugsa til þess. Það þjónaði engum til- gangi að hefna sín, en þó gat ég svo hæglega skilið tilfinn- ingar hans. — Hver var þessi maður, Johnny? — Það skiptir engu máli, sagði hann stuttaralega og það var á honum að heyra að hon- um fyndist hann hafa sagt of mikið. — Ég veit það hlýtur að vera hryllilega erfitt, en þú verður að reyna að gleyma. Nú er svo langt um liðið að þú getur varla hatað nann lengur . ... ? — Og þetta geturðu sagt, eft- ir að hafa séð Melissu? Það var eitthvað í röddinni serri skaut mér skelk í bringu. Það var ekki aðeins hryggð Og beiskja og hatur sem hafði búið um sig í sál hans. Það var eitthvað annað að auki og ég fann að ég varð að leysa hann úr þessum álögum. Ég varð að fá hann til að beina huganum •ð einhverju öðru en hefnd. — Heimsækirðu Melissu oft? spurði ég. Þetta var það eina sem mér datt í hug á stundinni að gæti hjálpað. Hann unni dóttur sinni. En nú varð hann ofsareiður, snéri sér að mér og næstum því hreytti út úr sér: — Já, ég geri það! Og fer með hana á kaffihúsið og kaupi þar ís handa henni. Hún ber ekki skynbragð á annað hér í heimi. Mig þekkir hún ekki einu sinni aftur.Ertu nú ánægð? Hefurðu fengið að vita nóg? Loksins hefur þér tekizt að grafa það upp hvar ég var á miðvikudag og með hvérjum! 40 FÁLKINN Hann æpti að mér en í augna- ráðinu lýsti sér örvilnun og ég óskaði þess af heilum hug að ég gæti hjálpað honum. Allt sem ég gat gert var að strjúka yfir handarbakið á honum. Og stuttu síðar varð hann ögn ró- legri og við ókum þögul aftur til London. Ég hélt hann mundi aka mér heim, en þess i stað stefndi hann að „Þrem Akurlendum". Rökkur var hnigið yfir byggðina áður en við náðum áfangastað og Johnny lét það verða sitt fyrsta verk að kveikja upp í arninum. Meðan hann var að bjástra við það fékk ég tóm til að virða hann nánar fyrir mér. Svipurinn á andlitinu var óráðin gáta og hann virtist eiga í sálarstríði. Mér þótti viturlegast að mæla ekki orð af vörum en sat og horfði eins og í leiðslu á gráð- ugar eldtungurnar sem læstust um birkilurkana. Johnny hafði uppi á vín- flöskum og tveimur glösum sem hann setti á borð við stól- ana framan við arininn og kveikti á standlampa. Þama ríkti friður og ró og ég vonaði með sjálfri mér að það hefði sefandi áhrif á Johnny. Hann stóð uppréttur með glasið í hendinni og horfði í eldinn. Skyndilega snéri hann sér að mér. — Karen .... ég þarf að fara til Parísar í nokkra daga, en fyrst .... langaði mig að spyrja þig að dálitlu. Hann varð skjálfraddaður og dró djúpt að sér andann áður en hann sagði: — Karen .... viltu giftast mér? Framh. í næsta blaði. Eimskip 50 ára Framhald af bls. 38. áfram fundum sínum og boð- uðu fleiri menn til fundanna. Höfðu þeir þann hátt á, að bæta mönnum við í smáhóp- um og sýndu með því þá var- kárni og gætni sem einkenndu stofnun Eimskipafélags íslands og áttu sinn þátt í, hversu giftusamlega hún tókst, þrátt fyrir óhöpp á fyrstu árum og óvild voldugra aðila. Hinn 21. febrúar var hald- inn fundur um málið í Hótel Reykjavík og málin skýrð, eftir athugun nefndar. Á þessum fundi var kosin fyrsta bráða- birgðastjórnin og áttu í henni sæti þeir Thor Jensen, Sveinn Björnsson, Eggert Claessen, Jón Björnsson og Jón Þorláks- son. Skömmu síðar skipti stjórn- in með sér verkum og var Thor Jensen formaður, Eggert Claes- sen gjaldkeri og Sveinn Björns- son ritari. Síðar bættust í stjórnina þeir Jón Gunnarsson, sem áður er getið og Ólafur G. Eyjólfsson, kaupmaður. Var nú tekið að undirbúa hlutafjár- útboð og voru valdir menn um allt land til þess að standa fyrir hlutafjársöfnun, og jafn- framt var ákveðið að skrifa málsmetandi íslendingum _ í Danmörku og Vesturheimi. Út- sendingunni lauk 20. marz og undir hlutafjárútboðið skrifuðu 65 menn í Reykjavík; meiri hlutinn var kaupmenn. Áætlað var að safna hlutafé að upphæð 385.000 krónur, og gert var ráð fyrir því að kaupa tvö skip, annað 1200 smálest- ir, er hefði farþegarými og gengi 12 mílur á vöku og yrði í förum milli útlanda og Reykjavíkur og Vestfjarða og hitt 1100 smálestir að stærð, eins útbúið og stærra skipið, nema hvað farþegarými var nokkuð minna, hraði 11 míl- ur á vöku og átti þetta skip að vera í förum milli útlanda og í kringum landið. Verð fyrra skipsins var áætlað 475.000 krónur, en verð minna skipsins 350.000 krónur. Hlutafjárútboðinu var tekið betur en hinir bjartsýnustu höfðu gert sér vonir um. Málið hlaut svo almennan stuðning, að sumumi fannst nóg um. Töldú sumir það vart geta góðri lukku stýrt, að öll póli- tísku blöðin urðu allt í einu sammála og kepptust um að styðja málefnið og töldu slíka samstöðu jafnvel ills fyrirboða! Einna fegurstur er þó þáttur Vestur-íslendinga í þessu máli. fslendingum hér heima var það brýnt hagsmunamál, að hið nýja félag kæmist á fót. Það fé, sem lagt var í félagið myndi skila sér aftur. En ís- lendingar vestanhafs áttu þar engra hagsmuna að gæta. Þeir lögðu fé sitt í áhættu; lögðu það í félag, sem vitað var að myndi eiga í harðvítugri sam- keppni við öfluga andstæðinga. Þeim kom það eitt til að sýna ættrækni sína og þjóðrækni í verki, og það gerðu þeir ósvikið. Þeir söfnuðu miklu hlutafé og hafa allt til þessa dags átt fulltrúa í stjórn Eim- skipafélagsins. En stofnun Eimskipafélags- ins var ekki alls staðar jafn vel séð. Sameinaða gufuskipa- félaginu leizt ekkert á þetta brambolt. Forsvaramenn félags- stofnunarinnar ákváðu að leita til alþingis um nokkurn styrk í upphafi, svo og að bjóða landssjóði að gerast hluthafi í félaginu. Þingmenn vildu í fyrstunni binda þetta því skil- yrði, að félagið tæki þegar að sér strandferðir við landið, en til þess treystust Eimskipa- félagsmenn ekki strax. Stóð í allmiklu þófi um þetta atriði um hríð, en þó náðist að lokum samkomulag, þar sem farinn var nokkur millivegur. En á meðan umræður fóru fram á alþingi, árið 1913, barst ráð- herra svohljóðandi símskeyti frá Sameinaða gufuskipafélag- inu: „Til þess að varna mis- skilningi er yðar hágöfgi hér með tilkynnt, að tilboð vort um strandferðir 1914—1915 verður tekið aftur, svo framarlega sem alþingi samþykkir að styðja millilandaferðir Eim- skipafélags fslands með hluta- töku eða landssjóðsstyrk." Vafalaust hefur þetta skeyti átt að skjóta þingmönnum skelk í bringu og koma í veg fyrir það að þeir þyrðu að styrkja hið unga félag. En þar fór á annan veg. Þessi kúgunar- tilraun vakti svo almenna gremju, að menn tóku kipp og hlutafjársöfnunin gekk betur en nokkru sinni fyrr og víða bættu menn við sig mörgum nýjum hlutum. Alþingi bárust áskoranir úr öllum áttum um að veita Eimskipafélaginu sem allra ríflegastan styrk. Og svo fór, að alþingi gerði samninga við annað erlent skipafélag um að taka að sér strandferðir hér við land um sinn! Lauk þar með strandsiglingum Samein- aða gufuskipafélagsins hér við land. Þegar sýnt var, hve vel hlutafjársöfnunin gengi, ákvað bráðabirgðastjórnin að stofn- fundur félagsins skyldi haldinn í Reykjavík 17. janúar 1914. Fundurinn var boðaður í öll- um blöðum landsins í lok sept- embermánaðar árið 1913 og skorað var á menn að greiða hlutafé sitt að fullu fyrir 15. desember það ár. f október var sent út um allt land, svo og til Kaupmannahafnar og Vest- urheims, lagafrumvarp fyrir félagið, sem þeir Sveinn Björns- son og Eggert Claessen höfðu samið. Hér hefur verið drepið á nokkur atriði í undirbúningn- um að stofnun Eimskipafélags íslands, en aðeins stiklað á þeim stærstu. Eins og sjá má var vel til alls vandað og starf- að af þeirri gætni og varkárni, Framhald á bls. 42,

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.