Fálkinn - 08.06.1964, Page 4
Ganga um nætur.
Kæri Fálki!
Það eru margir sem skrifa
Pósthólfinu og leita ráða í ýms-
um efnum og þess vegna datt
mér í hug að fara þær leiðir
ef vera mætti að þið gætuð
rétt mér einhverja hjálparhönd.
Þannig er mál með vexti að
ég bý í gömlu húsi í Vestur-
bænum. Þetta er gamalt og
vinalegt hús en nokkuð hljóð-
bært. Það er tvær hæðir og ris
og allur umgangur og stund-
um samtöl heyrast mjög a
milli hæðanna. Ég bý á efri
hæðinni og fyrir ofan herberg-
ið mitt er kvistur á risinu og
þar býr maður nokkur sem i
seinni tíð hefur gert mér lífið
brogað. Ég þekki þennan mann
ekki nokkurn skapaðan hlut og
veit satt að segja ekki hvað
hann gerir. Þó veit ég að hann
fer stundum til vertiðarvinnu,
annað hvort á Suðurnes ellegar
þá til Vestmannaeyja. Hann fer
venjulega eftir áramótin og
kemur svo ekki fyrr en undir
miðjan maí. Þá sest hann að í
þessu herbergi sínu og heldur
þar til allt sumarið fram undir
miðjan september en þá hverf-
ur hann venjulega um tveggja
mánaða skeið. Mér er sagt að
þá fari hann að heimsækja ein-
hverja ættingja sína úti á landi
og þangað mun hann einnig
fara um jólin. Þannig hefur
þetta gengið til þau þrjú ár,
sem hann hefur átt heima í
þessu húsi.
í raun og veru gerir þessi
maður mér ekki nokkurn skap-
aðan hlut. Þetta er hægur mað-
ur og rólegur í hvívetna, snyrti-
legur í klæðaburði, og býður af
sér góðan þokka. En þó hefur
hann einn sið sem ég á ákaf-
lega erfitt með að venjast og
sætta mig við og sem raun-
verulega gerir mér lífið mjög
brogað. Á hverju kvöldi kemur
þessi maður heim einhvers stað-
ar utan úr bæ. Ég veit ekki
hvaðan. Hann kemur venjulega
um níuleytið og fer upp á kvist-
inn sinn. Maður heyrir ekki i
honum næstu tvo tímana eða
svona fram undir ellefu. Þá
fer hann að ganga um gólf og
gengur mikið og lengi. Þetta
varir oft á tíðum allt fram
undir eitt og stundurn langt
gengin tvö. Ef veður er gott fer
hann stundum út og kemur
ekki aftur fyrr en eftir svona
tvo til þrjá tíma það er að segja
svona á fjórða eða fimmta tím-
anum. Og þegar hann er kom-
inn heim á hann það til að fara
að ganga um gólf að nýju.
Þetta er ákaflega hvimleitt og
veldur mér svefnleysi og hvers
konar óþægindum. Ég get
ómögulega sofnað fyrr en hann
er hættur að ganga um gólf.
Og ef hann fer út vakna ég
þegar hann fer og þegar hann
kemur og ef hann fer þá að
ganga um get ég ómögulega
sofnað aftur fyrr en seint og
síðar meir. Stundum vakna ég
þegar hann fer út og get ekki
sofnað fyrr en hann er kominn
inn aftur vegna þess að ég
hugsa svo mikið um þetta. Og
þetta er að verða mér mjög
óbærilegt. Hvað á ég að gera
í þessu leiðinda máli. Mér
finnst mjög gott að búa þarna
og þess vegna er ég þarna enn.
Vinsamlegast gefið mér ein-
hver ráð og það sem allra fyrst.
Kær kveðja.
Maður.
Svar:
Þaö er margt sem kemur til
greina í þessu máli. Þú getur t. d.
farið út aö ganga meö þessum
vini þínum eina nóttina og gert
þaö reglulega eöa bara einu sinni
og þá beöiö hann aö hœtta þessu.
Þú getur líka oröaö þaö viö hann
livort ekki vœri álveg eins gott
aö hann flytti niöur en þú upp.
Þaö kemur til greina aö þú farir
til sálfrœöings eöa hlutist til um aö
þessi á kvistinum veröi sendur til
sálfrceöings. Þú gcetir keypt þér
segulband og tekiö upp á þaö
tryllta bítla músikk og sett þaÖ
af staö þegar þú ferö aö lieiman
á morgnana þegar hinn fer aö
sofa. Þú getur flutt úr húsinu og
fengiö þér inni annars staöar. Þú
getur hlutast til um aö hinum
veröi sagt upp húsnæöinu og fleira
og fleira. Þaö er bara um aö gera
aö fara friösamlega aö öllu saman,
og gera hvergi neina vitleysu.
Skriftin þin er mjög góö.
Svar til X:
Þaö er vel skiljanlegt aö þér
finnist þetta leiöinlegt. Flestum
mundi þykja svonalagaö leiöinlegt
og sumir hafa gripiö til mjög
róttœkra ráöstafana. Þú skalt
samt ekki gera neitt svoleiöis held-
ur láta sem þér standi alveg á
sama. Þú skalt ekki hugsa um
ciö hefna þín því sú hefnd gœti
mistekist og þá er ver fariö en
heima setiö. Þú skalt bara taka
þessu meö ró hugleiöa máliö og ef
þú sérö einliverja sniöuga lausn
þá koma henni l framkvœmd en
ef svo er ekki þá skaltu bara láta
sem ekkert hafi komiö fyrir og