Fálkinn - 08.06.1964, Blaðsíða 5
reyna aö lcoma þér upp nýjum
Tcvenmanni.
Varöandi seinni liluta bréfsins
er þaö aö segja aö þessi liugmynd
þín er svo sem ágcet en sennilega
nokkuö kostnaöarsöm og mundi
aldrei borga sig fjárhagslega
Skriftin er ágaet
Þrifnaður í borginni.
Kæri Fálki!
Nú á að fara að taka til í
borginni svo um munar. Heil
nefnd sett á laggirnar svo ein-
hver ætti árangurinn að verða.
Og þetta er vegna 20 ára
afmælis lýðveldisins. Fleira
mætti nú hreinsa í þessu bless-
uðu lýðveldi en ruslið á lóðum
Reykvíkinga. Og svo þessi ein-
kennilega árátta að vera sóðar
á milli stórafmæla og komu
þjóðhöfðingja og stór tiltektir
þegar þetta stendur fyrir dyr-
um. Nei þessi þrifnaður á borg-
inni hefur ekki alltaf verið til
fyrirmyndar undanfarin ár og
sum borgarfyrirtækin ættu að
byrja á að taka til hjá sér áður
en þau fara að heimsækja út-
svarsgreiðendur úti í borg. Og
það þýðir lítið að skipa nefnd
í málið og taka til og gera svo
ekkert næstu fimm árin. Það
verður að gera eitthvað milli
þessara afmæla, t. d. að reyna
að kenna borgurunum að ganga
þrifalega um. Gera sektir og
ganga fast fram í að þær séu
greiddar skilvíslega en ekki
láta það vera dauð reiknings-
eyðublöð útfyllt niður í ein-
hverri skrifborðsskúffunni hjá
borgaryfirvöldunum. Nei, um-
gengnin hér í borginni hún er
ekki upp á marga fiska. Man
nú enginn eftir þegar loka varð
jarðgöngunum undir Miklu-
brautina vegna sóðaskapar. Og
hvað var gert í því máli? Göng-
unum lokað. Ekki þrifið til eða
settur vörður til að rannsaka
hverjir stæðu fyrir óþrifnaðin-
um. En það er þó alltaf gott
þegar menn eru vaknaðir til
umhugsunar þótt vegna af-
mælis sé.
Borgari.
Svar:
Viö erum þér sammála i því aö
umgengni hér í borginni er al-
mennt á mjög lágu stigi. Hinu
ber ekki aö neita aö margir ganga
mjög vel um boeöi fyrirtœki og
einstaklingar og eru öörum sötm
fyrirmynd í þessu atriöi.
Svar til Pésa:
Þú skalt ekkert vera aö ganga
eftir þessu viö hann kunningja
þinn ef hann sér eklci sóma sinn
Í því aö skila þessu án þess þú
gangir eftir því. Þð þú veröir af
nokkrum krónum er þaö betra
heldur en aö láta hann hafa högg-
staö á þér og þú veröur alltaf
reynslunni rikari. Svo þökkum viö
þér skemmtilegt bréf og vonum aö
þú sendir okkur línu einhvern
tima seinna.
Ölvun um hvítasunnu.
Kæri Fálki!
Hvítasunnan virðist vera á
leiðinni með að vera ein mesta
óregluhelgi hér hjá okkur og
væri sönnu nær að kalla hana
Bakkusarhelgi. í fyrra var ó-
fögnuðurinn í Þjórsárdal en að
þessu sinni í Borgarfirði að því
er sagt er. Og hvað var gert.
Jú, nokkrir lögreglumenn voru
sendir á staðinn til að taka vín
af unglingunum annað ekki.
Engin ferð skipulögð, og ekk-
ert gert til þess að reyna að
koma í veg fyrir áfengisneyzlu
unglinga. Það er ekki lögregl-
unnar að sjá um að unglingar
drekki ekki vín um hvítasunn-
una né aðrar helgar eins og
sumir vilja vera láta. Það eru
allt aðrir sem eiga að koma í
veg fyrir þetta. Það eru þeir
sem fara með uppeldis- og
menningarmálin í landinu. Það
eru þeir sem fyrst og fremst
bera ábyrgðina. Það urðu ekki
svo lítil læti í fyrra út af þessu
fylliríi í Þjórsárdalnum. Allt
ætlaði af göflunum að ganga.
En það var eftir að vitleysan
hafði átt sér stað. Hvar voru
þeir sem áttu að sjá um að þessi
mál væru í lagi? Og hvað lærð-
um við af þeirri reynslu? Jú,
það að um Verzlunarmanna-
helgina var skipulagt skemmt-
anahald í Þórsmörk. Og hver
var útkoman úr því. Jú, miklu
minni drykkjuskapur heldur en
áður hafði tíðkast á þeim stað
um þessa helgi. En hvað skeður
svo í Borgarfirði. Ekkert var
gert til þess að reyna að hafa
ofan af þessum unglingum
sem vitað var þó löngu áður
að mundu leggja þarna leið
sína. Hvar var nú fengin
reynsla? Fáliðaðir lögregluþjón-
ar voru sendir á staðinn og þeir
áttu að kippa 1 lag með því að
taka áfengisflöskur af ungling-
um því sem hinir höfðu gleymt
að sjá um. Nei, við verðum að
taka þessi mál mun fastari tök-
um heldur en gert hefur verið
hingað til. Hér duga engin vett-
lingatök því heill og framtíð
þjóðarinnar eru í húfi.
P. T.
Svar:
Þaö er rétt þessi mál veröur aö
taka föstum tökum en talsvert
hefur nú áunnist því ástandiö i
Borgarfiröi var lwergi nærri eins
slœmt og í Þjórsárdal í fyrra.
Félagsprentsmiðjan h.f.
SPÍTALASTÍG 10 (við Óðinstorg)
SÍMI 11640.
Prentnn
Á BÓKUM — BLÖÐUM
TÍMARITUM
ALLS KONAR
EYÐUBLAÐAPRENTUN.
Strikun á verzlunarbókum og
lausblöðum.
Vandað efni ávallt fyrirliggjandi.
Gumstimplar
afgreiddir með litlum fyrirvara,
Leitið fyrst til okkar.
Félagsprefttsmiðjan ti.f.
Spítalastíg 10. — Síml 11640.
KÍNVERSKIR, HANDSAUMAÐIR PÚÐAR, MYNDOFNIR
OG VÍROFNIIR.
ENDURNÝJUM SÆNGUR OG KODDA.
FLJÖT AFGREIÐSLA.
HÖFUM EINNIG EINKASÖLU Á REST-BEST KODDUM.
DÚN- 0G FIÐURHREINSUNIN
VATNSSTÍG 3 (örfá skref frá Laugavegi). Sími 18740.
FÁLKINN 5