Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1964, Qupperneq 22

Fálkinn - 08.06.1964, Qupperneq 22
Á einn vegginn er teygður feldur af hvítabirni, í einu horninu stendur vatna- bátur upp á endann með öllum útbún- aði, hauskúpa af sauðnauti starir á mann holum tóftum og fullbúið segl- skip siglir seglum þöndum á bókahill- unni út í blámóðu ímyndunaraflsins. Og þarna er fjölbreytilegt vopnabúr og ýmis konar viðleguútbúnaður, skíði og þrúgur, á öllu sést að hér hefur búið um sig maður sem ekki unir kyrrsetu né inniveru. Jóhannes Snorrason hefur dregist á að segja mér eitthvað frá skíðafluginu til Grænlands, þó hann eigi stopular frístundir og gefist oft lítið tóm til að stunda áhugamál sín, veiðimennsku, fjallgöngur og skíðaferðir. Þegar Jó- hannes hefur opnað tvo freyðandi Carls- berga í sumarhitanum, sagði hann mér lítillega frá tildrögum skíðaflugsins og gangi þess. Það var seinni hluta vetrar 1963 að Flugfélag íslands hóf þessa einstæðu starfsemi fyrir beiðni Hins konunglega grænlenzka verzlunarfélags. Ýmsar hafnir á norðanverðri austurströnd Grænlands þar sem Eskimóar búa og Danir hafa bækistöðvar eru mikinn hluta ársins lokaðar vegna ísa og undir hælinn lagt að skip komist þangað með vistir. Þessar stopulu samgöngur hafa valdið ýmsum trafala og óþægindum eins og nærri má geta, örðugt um alla aðdrætti, óvissa um afkomu og loks hafa menn verið tregir að ráðast til starfa í þessum heimskautabyggðum þar sem þeir eiga á hættu að dveljast mánuðum lengur en skyldi vegna sam- gönguleysisins. Allt varð þetta til þess að Grænlandsverzlunin sneri sér til Flugfélags fslands og bað um að félagið gerði tilraun til skíðaflugs á þessar slóð- ir. Það var uppi fótur og fit í Scoresbysund, þegar íslenzka flugvélin kom þangað. Ekki var eftirvæntingin hvað minnst hjá ungu kynslóðinni. Þegar Þorgeir ók inn í þorpið með farangur sinn á hunda- sleða, fylgdust börnin vel með ferðxmi hans. — Enginn okkar hafði nokkra reynslu í skíðaflugi, segir Jóhannes en við vor- um strax til með að freista gæfunnar. Eg hafði að vísu nokkrum sinnum lent litlum flugvélum vestur í Kanada á skíðum en hér var þörf á Douglas-vél. Við fengum plastskíði frá Bandaríkj- unum, nýjustu gerð og frá Kanada feng- um við allar nákvæmustu upplýsingar sem völ var á um skíðaflug. Plastskíðin reyndust afbragðs vel, á þeim festist ekki snjór eins og gömlu tréskíðunum en það varð mönnum helzt til trafala áður fyrr. — Hvaða hafnir fljúgið þið á? — Þær eru aðallega þrjár, Daneborg, Danmarkshavn og Scoresbysund. Alls staðar er lent á snjólagi á ís og hefur það tekist mæta vel. Víðast er þetta harðbarinn snjór og hefur alltaf gengið eins og í sögu við lendingar og flug- tak. Nokkrum sinnum höfum við þó lent í djúpum snjó en það hefur ekki sakað, skíðin eru það þung. Við höfum eitt sinn lent í hnédjúpum snjó og þá gekk nokkuð þunglega að koma vél- inni á loft aftur, en það tókst þó. Enda hefði það ekki sakað, við hefðum getað létt hana eftir því sem þurfti. Höfðum sem sagt engar áhyggjur. — Og flytjið hvað? — Það er nú sitt af hverju tagi. Við höfum flutt vistir og matvæli, bygging- arvörur, timbur og ótal margt annað. Og þessir flutningar gengu betur heldur en nokkum óraði fyrir svo við höldum þeim áfram þetta árið. Danir eru hæst ánægðir með árangurinn. — Flugið sjálft hlýtur að vera erfið- leikum bundið á þessum auðnarslóðum. Eru nokkrir radíóvitar á ströndinni? — Nei, við fljúgum eingöngu sjón- flug, svarar Jóhannes, áttum okkur bara Jóhannes flugstjóri lætur ekki hjá líða að taka myndir, ef skemmtilegt „mótív“ ber fyrir augu. Og Þorgeir fannst ágætt „mótív“ að sjá Jóhannes taka mynd af þessum hundum. i I I

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.