Fálkinn


Fálkinn - 08.06.1964, Side 26

Fálkinn - 08.06.1964, Side 26
KVIKMYNDA ÞÁTTUR TÓNABÍÓ SÝAIB: KONAIM ER SJALFRI SÉR LÍK Það er talað um „nýja stefnu“ í frönskum kvikmyndum. Af þesari nýju stefnu eru sprottnar myndir eins og Hiro- sima, Elskendurnir, Vinirnir, Hrópaðu ef þú getur, Ást- mærin, Orfeo Negro og Ungi flóttamaðurinn. Þótt talað sé um að þessar myndir tilheyri þessari nýju stefnu eru þær allar næsta ólíkar bæði að efnismeðferð og tæknilegum vinnubrögðum. Það eina sem þær eiga sameiginlegt er að leikstjórarnir sem að þeim standa hafa farið nýjar leiðir og oft á tíðum nýstárlegar. í sumar munum við sjá nokkrar myndir sem sprottnar eru af þessari nýju stefnu. Bæjarbíó mun sýna myndina Jules og Jim en leikstjóri hennar er Francois Truffaut. Þá mun Tónabíó sýna aðra mynd eftir þennan sama leik- stjóra en hún heitir Skjóttu á píanistann. Við höfum áður séð viðbrögð Truffaut en það var hann sem gerði myndina Ungi flóttamaðurinn sem sýnd var í Bæjarbíó við miklar vinsældir. Þá mun Tónabíó sýna tvær aðrar myndir, Ástarleikurinn og myndina sem við kynnum í þessum þætti Konan er sjálfri sér lík, en leikstjóri hennar er Jean-Luc Godord. Hinar myndirnar verða einnig kynntar hér í þess- um þætti þegar þar að kemur. Við skulum aðeins víkja lauslega að efni þessnrar mynd- ar Godard. Emile og Angéla eru ógift en búa hamingjusöm í lítilli og þægilegri íbúð, og hafa ekki hugsað sér að giftast í bráðina. Emile vinnur í bókabúð og aðaláhugamál hans er sport þó einkum hjólreiðar. Angéla er nektardansmær í næturklúbbnum Le Zodic. Þau eiga einn heimilisvin og sá heitir Alfred. Hann keppir við Emile um ástir Angéla og reynir að vinna hana af honum en gengur ekki sem bezt. Einn dag tilkynnir Angéla Emile að hún vilji eignast

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.