Fálkinn - 08.06.1964, Page 32
HVAD GERIST j NÆSTU VIKU ?
HrútsmerlciÖ (21. marz—20. apríl).
Þegar erfiðir timar fara í hönd Þá er um að
gera að missa ekki móðinn og reyna að standa
sig. Þér ættuð að reyna að gæta jafnvægis í þess-
ari viku. Betri timar framundan.
NÝJASTI BRJÖSTHALDARINN
MEÐ TEYGJUHLÍRUM
Vinsœll. þœgilegur og fallegur
BiðjiS um tegund 2 8 0 írá L A D Y
Nautsmerkiö (21. avríl—21. mai).
Kapp er bezt með forsjá og þess ættuð þér að
gæta þegar líða tekur á vikuna. Þér ættuð ekki
að færast of mikið I fang en reyna að halda þvi
sem áunnist hefur. Sunnudagurinn verður nokkuð
sérstæður.
Tvíburamerlciö (22. mai—21. júní).
Þótt einhverjir erfiðleikar kunni að vera uppi á
teningnum hvað viðkemur vinnustað ættuð þér að
gæta þess vel að láta yður ekki henda neina vit-
leysu því hún gæti orðið yður mjög afdrifarík.
KrabbamerkiÖ (22. iúní—22. iúlí).
Þér ættuð að sinna heimilinu sem mest i þessari
viku og eyða tíma yðar sem mest innan þess.
Fyrri hluti vikunnar verður yður ef til vill hag-
stæður hvað viðkemur fjármálum.
Ljónsmerkiö (23. iúlí—23. áaúst).
Fyrir þá sem fæddir eru í júlí verður þessi
vika fremur róleg og tilbreytingarlítil, að minnsta
kosti framan af. Þeir sem fæddir eru i ágúst geta
hins vegar búist við skemmtilegri viku og miklum
önnum.
Jómfrúarmerlciö (2í. áciúst—23. sevt.).
Það getur verið mikill vandi að sjá út hvenær
hin réttu tækifæri gefast og þér munuð verða
mjög var við það í þessari viku. Þess vegna skuluð
þér yfirvega aðstöðuna mjög gaumgæfilega áður
en þér aðhafizt nokkuð.
Voaarskálarmerkiö (21,. sevt.—23. olct.).
Þér ættuð ekki að tefla í tvísýnu í þessari viku
því afstöðurnar eru ekki heppilegar og málin gætu
snúist í höndunum á yður. Þess vegna ættuð þér
að fara mjög gætilega.
tivorödrekamerkiö (21,. okt—22. nóv.i.
Ekki mun þessi vika reynast yður eins þægileg
og þér bjuggust við en hins vegar verður hún
ekki óþægileg heldur mjög róleg og þér ættuð
að hvíla vður sem bezt.
LADY h.f. I íf stykkf averkssm iftja
Laugavegi 26. Sími 10-11-5
Söluumboð DAVÍÐ S. JÓNSSON & CO.
Boaamannsmerkiö (23. nóv.—21. des.).
Ef þér hafið ekki gert neinar ráðstafanir varð-
andi sumarleyfið ættuð þér að fara að gera það.
Þér ættuð ef þess er kostur að fara í ferðalag
og reyna að hvíia vður og njóta þægilegheitanna.
Steinaeitarmerkiö (22. des.—20. ianúar).
Þér ættuð ekki að leggja út í tvísýnu í þessari
viku heldur að biða átekta og sjá hvað setur.
Fyrri hluti þessarar viku verður mjög róman-
tiskur einkum fyrir þá. sem fæddir eru i desem-
ber.
Vatnsberamerkiö (20. ianúar—18. febrúar).
Leggið ekki eyrun við þeim sögum, sem þér
kunnið að heyra urn náinn ættingja eða vin. Látið
slíkar sögu sagnir sem vind um eyrun þjóta og
kynnið vður málið af eigin raun.
Fiskamerkiö (19. febrúar—20. marz).
Samband yðar við ákveðna persónu, sem þér
hafið umgengizt mjög að undanförnu með breyt-
ast mjög til batnaðar í þessari viku yður til mikill-
ar ánægju. Seinni hluti vikunnar verður skemmti-
legur.
32
FÁLKINN
® o@@oo