Fálkinn - 12.04.1965, Síða 17
Eigum við ekki að leyfa honum að heyra eitt lag?
ingur úr honum Jóni Ásgeirs-
syni að ég kunni ekkert...
Fálkinn: Voru lögin ekki
samin'með ljóðskáldið í huga?
Jónas: Ég veit ekki. Hjá al-
mennilegu fólki er þessu öðru-
vísi farið. Hammerstein orti
fyrst ljóðin og svo gerði Rod-
gers músíkina við textann.
Þetta er óhæfa hjá honum Jóni.
Jón: Alls ekki. Ég gef þér
tækifæri á að skapa ný ljóð-
form ...
Jónas: Já, það er einmitt það
erfiðasta. Annars tökum við
þetta ekki svo hátíðlega. Mér
hefur alltaf fundizt hugtökin
stíll og skáldskapur vera hrein
ráðgáta...
Jón: Við gerum þetta af
ræktarsemi við forfeðurna ...
Fálkinn: Er ekki erfitt fyrir
bræður að vinna að slíku verk-
efni?
Jónas og Jón: Við komum
okkur saman um í upphafi, að
ef annar strikaði út setningu
hjá hinum, þá skyldi ekki frek-
ar um það rætt. Þess vegna er
formið dálítið laust...
Fálkinn: Þið hafið ekki feng-
ið aðstoð þriðja aðilans ...?
Jón: Við önzum engum
ábendingum. Okkur finnst allar
ábendingar vera til hins verra.
Fálkinn: Og þið sögðust hafa
strikað mikið út?
Jón: Blessaður vertu — það
er fullur kassi af útstrikun-
um...
Jónas: Það má alltaf laum-
ast í það aftur ...
Jón: Við erum búnir að binda
utan um kassann með snæri
og hann er merktur með svörtu
tússi: PRÍVAT.
Jónas: Við eigum fullskapað-
ar persónur á lager og við get-
um jafnvel hlaupið undir
bagga...
Jón: Manstu eftir henni
Dúddí, þessari yndislegu stúlku.
Það var annars leiðinlegt að
að hún skyldi falla frá svona
ung. Dúddí litla, sem alltaf var
að koma inn á sviðið, svo sprell-
fírug og iðandi af lífsfjöri...
Jónas: Já, af öllum listgrein-
um er leikritun erfiðust...
Jón: Þetta sögðu þeir báðir
O’Neill og Shakespeare — í
leikriti má engu vera ofaukið
og ekkert vanta, sem sagt eng-
ar bollaleggingar, eða er ekki
réttara að segja bara bollaleng-
ingar, er það ekki betra, Jónas?
Jónas: Ég vil nota tækifærið
og koma því á framfæri, að
Jón er miklu reyndari á þessu
sviði en ég. Hann lék einu
sinni á Seyðisfirði á móti Brynj-
ólfi Ingólfssyni, ráðuneytis-
stjóra. Hann var góður eins og
fleiri Brynjólfar ...
Fálkinn: Hvenær lukuð þið
við leikritið, eða eigið þið eitt-
hvað eftir?
Jón og Jónas: Við kláruðum
þetta í haust. Við höfum svo
lagfært viss atriði á æfingum.
Þeir gera það víst hinir. Bert-
old Brecht var víst alltaf að
breyta löngu eftir að byrjað
var að sýna stykkið. Og svo
má líka nefna Marx bræður.
Fálkinn: Þetta er mannmargt
stykki?
Jón: Ja, ég yrði ekki hissa
þótt þátttakendur fylli hundr-
aðið fyrir rest...
Jónas: Þessa heims og ann-
ars!
Fálkinn: Eru margar sviðs-
myndir?
Framh. á bls. 48.
Sá sem barði saman lögin.