Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1965, Qupperneq 7

Fálkinn - 26.07.1965, Qupperneq 7
AGFA umboðið og vikublaðið Fálkinn efna I sam- einingu til glæsilegrar ljósmyndasamkeppni, sem skipt er niður í þrjá flokka. Frestur til að skila inn mynd- um er til októberloka, en ekki er unnt að segja til um það nú hvenær úrslitin verða birt, en sennilega verður það í desemberbyrjun eða í janúarbyrjun, allt eftir því live dómnefndinni gengur vel að vinna sitt verk. Ekkert verður til sparað að vinna og prenta myndirnar sem við birtum úr keppninni, eins vel og kostur er. í 1. flokki hafa verið valdir fimm þekktir ljósmynd- arar til að glíma innbyrðis við verkefnið „Frá hinni hliðinni séð.“ Þeir senda inn eina svarthvíta mynd hver um sig, stærð 18X24 eða 24X30, límda á karton. Veitt verða ein verðlaun, kr. 5.000,00. f 2. flokki er verkefnavalið frjálst, og þar geta allir aðrir en fimmmenningarnir í 1. flokki tekið þátt. Senda skal svarthvítar myndir, stærð 18X24 eða 30X40, límd- ar á karton. Veitt verða þrenn verðlaun, kr. 3.000,00 í peningum og kr. 2000,00 og kr. 1.000,00 í vöruúttekt hjá Ijósmyndavöruverzluninni TÝLI í Austurstræti. í 3ja flokki á að senda inn litfilmur, sem eingöngu má taka á litfilmuna AGFA COLOR CT 18 (pósitív) og þar er verkefnið bundið við landslagsmyndir eða myndir úr atvinnulífi. AGFA umboðið setur skilyrði eingöngu í þessum flokki — í hinum flokkunum ráða menn hvaða Ijósmyndaefni þeir nota. Vinningar eru þeir sömu og í 2. flokki. Allir mega taka þátt í þessum flokki, einnig þeir sem taka þátt í 1. og 2. flokki. 1. flokkur. í honum taka þátt Oddur Ólafsson, Rafn Hafn- fjörð, Guðmundur Vilhjálmsson, Ingimundur Magnússon og Guðmundur Hannesson. Þeir glíma innbyrðis við verkefnið „Frá hinni hliðinni séð“ og senda inn eina mynd hver. Veitt verða ein verðlaun, kr. 5.000,00 í peningum. 2. flokkur. Svarthvítar myndir, stærð 18X24 eða 30X40, frjálst verkefnaval. Veitt verða þrenn verðlaun, kr. 3.000,00 í peningum og kr. 2000,00 og kr. 1.000,00 í vöruúttekt hjá ljósmyndavöruverzlun- inni Týli. 3. flokkur. Litfilmur (allar stærðir). Nota skal AGFA COLOR CT (pósitív) og verkefnið er bundið við landslags- eða atvinnulífsmyndir. Veitt verða sams konar verðlaun og í 2. flokki. Dómnefndin. í dómnefndinni eiga sæti Björn Th. Björnsson, listfræðingur, Hjálmar R. Bárðarson skipaskoð- unarstjóri og Jón Kaldal ljósmyndari. Dómnefnd- in mun gera grein fyrir störfum sínum þegar úr- slitin verða birt og ræða almennt myndirnar, sem sendar verða til keppninnar. SKILYRDI AGFA umboðið setur þau skilyrði að myndirnar liafi ekki verið birtar áður og ennfremur er birtingarréttur eða sýningarréttur áskilinn á öllum myndum sem ber- ast til keppninnar. Þátttakendur eiga að merkja myndir sínar dulnefni, en nafn og heimilisfang skal fylgja með í lokuðu umslagi merktu með sama dulnefni og á mynd- inni. Litfilmurnar skal merkja á sama hátt og skal vel um þær búið, helzt að senda þær í glerrömmum. Myndirnar skulu sendar til ritstjórnar Fálkans, Grettis- götu 8, pósthólf 1411, fyrir októberlok. Starfsfólk Fálk- ans og AGFA umboðsins tekur ekki þátt í keppninni. FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.