Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 14

Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 14
TEHERAN í maí. Þegar ég var heima í Reykjavík fyrir um tveim mánuðum að leggja á ráðin við fyrrverandi skólabróður minn, Magnús Bjarnfreðs- son blaðamann, hvað hann ætti að sjá í Teheran í ferð sem SAS flugfélagið var að bjóða honum og öðrum ís- lenzkum blaðamanni til, grunaði mig ekki, að ég myndi sjálfur innan skamms tíma vera kominn enn að nýju, í fjórða sinn, til þess- arar „austlægustu Evrópu- borgar“, eins og hún mun einhvern tíma hafa verið nefnd, vegna þess hversu hún er um sumt lík ýmsum evrópskum borgum. Líklega myndi mér þó enn síður hafa nokkru sinni til hugar komið, að ég ætti eftir að rekast á landa í flugvél þeirri, sem ég tók mér far með hingað til Te- heran frá Rómaborg. Vélin var fullskipuð farþegum til Tel-Aviv, en þaðan var hún nær tóm, farþegar aðeins ör- fáir. Fyrir tilviljun tókum við tal saman. Mér hafði áður dottið í hug, að þar væri Norðmaður á ferð og urð- um við báðir meira en lítið hlessa og glaðir, er við kom- umst að raun um hvaðan ættir okkar lágu. Björn Sig- urbjörnsson hét maðurinn og starfar við Kjarnorkustofn- un Sameinuðu þjóðanna í Vín og var að sækja fjögurra daga ráðstefnu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ, sem halda skyldi í Teheran. Svona geta tilviljanir ver- ið undarlegar. Enn ósenni- legra hafði þó borið við, er ég var síðast á ferð um Te- heran, en það var í október síðastliðnum á leið frá ír- akska Kúrdistan, en þá staldraði ég aðeins við hér í borg í tæpa sextán tíma. I það skipti gekk ég til póst- hússins, þar sem ég bjóst við að eiga bréf eftir útiveruna með Kúrdum, hvað ég og átti. En meira átti ég í því pósthúsi, því að á bréf mitt var klemmdur miði, sem á var ritað á íslenzku, að ég ætti blessaður að líta inn. Um leið var gefið upp sími og heimilisfang í Teheran og skrifað undir: Halldór Vil- hjálmsson. Sjálfur hafði Halldór, sem annars er við nám í Þýzka- landi, en var þarna í leyfi í boði persneskra vina, einn- ig átt nýlega bréf þarna, og þá séð þar eitt, sem á var ritað íslenzkt nafn og þá viðhaft áðurnefnd viðbrögð. Flugvél okkar Björns hélt í norðurátt frá Tel-Aviv, en ekki í austurátt eins og við hefði mátt búast. Þannig hagar nefnilega málum, að arabísku ríkin neita þeim flugvélum að fljúga yfir lönd sín, sem til eða frá ísra- el fara. Vélar á þessari leið verða því að taka á sig stór- an krók og fljúga norður til Tyrklands, sem veitti ísrael fulla viðurkenningu fyrir allmörgum árum Aröbum til mikillar gremju. Síðan er flogið eftir endilöngu tyrk- neska Kúrdistan fyrir norð- an landamæri Sýrlands og íraks, unz komið er yfir ír- anska jörð og beygt í suð- austur í áttina að Teheran. Feginn var ég að þurfa ekki að ferðast um arabisk lönd í þetta sinn. Vogaði mér satt að segja ekki lengur til Bagdad vegna tengsla minna við Kúrda í írak, á hverra fund ætlun mín var að kom- ast. Stríðið var nefnilega hafið á nýjan leik í írakska Kúr- distan í þriðja sinn á fjórum árum, en nú eftir árs vopna- hlé. Er samningar höfðu far- ið út um þúfur sl. sumar, stofnuðu Kúrdar eigið þing og heimastjórn eins og ég hef áður ritað um hér í Fálkann. Þá heimastjórn vildu íraksk- ir Arabar aldrei viðurkenna og í apríl síðastliðnum lagði her þeirra enn að nýju til atlögu við liðssveitir Kúrda, og flugher þeirra tók upp fyrri aðferð sína, að hella niður sprengjum yfir kúrd- íska byggð. Á vegum Daily Telegraph Engar áreiðanlegar fréttir hafa enn borizt af þessum átökum og Daily Telegraph, sem ég hafði fyrstur náð í fréttir fyrir af stofnun heimastjórnarinnar, vildi nú vita sannleikann um síðustu atburði. Þýzkt sjónvarps- fyrirtæki, sem hafði séð mynd mína úr áðurnefndri ferð, lét mig svo, strax og ég minntist á fyrirhugaða ferð, hafa kvikmyndatöku- vél, sem kostar á við nýjan Volkswagen. frönsk áritun var síðan fengin á einum degi í Róm og haldið flug- leiðis af stað sama dag. En ferð til írakska Kúr- distan er, að kílómetrunum undanteknum, hvergi nærri hálfnuð í Teheran. Þar þarf að grafa upp fulltrúa Kúrda og síðast en ekki sízt, helzt að fá leyfi persnesku örygg- islögreglunnar til ferðarinn- ar að landamærunum, en það er allt annað en auðfengið, þótt einstaka blaðamanni hafi tekizt að fá það upp á síðkastið fyrir milligöngu sendiráða og stórblaða, en þó engum nú eftir að stríðið var byrjað aftur á nýjan leik. f þau tvö skipti, sem ég hafði komizt til írakska Kúr-

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.