Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1965, Side 42

Fálkinn - 26.07.1965, Side 42
FLOGIÐ STRAX FARGJALD GREITT SÍÐAR g Danmörk - Búlgaria 14.8.-2.9. 20 daga ferB % Y///S/. Fgrarstjóri: Gestur Verb:13.500 001 Þorgrímsson. ////fa 14. ágúst: Flogið til Kaupmannahafnar og dyalist þar í 3 daga. 17. ágúst: Flogið til Sofia, en þaðan farið til Sólarstrandarinnar við Svartahaf. Nessebur og dvalist þar í hálfan mánuð. Farið þaðan aftur til Sofia og flogið 30. ágúst til Kaupmannahafnar og dvalist þar í 3 daga. 2. september: Fiogið til Keflavíkur Búlgaría er eitt þeirra landa sem ferðamanna- straumurinn á síðastliðum árum hefur aukist íil í ríku mæli entía eru baðstrendur þar sfst lakari en í Rúmeníu og náttúrufegurð mikil. Búlgarar hafa byggt fjöldann allan af nýtízku hótelum; undanfarin ár og verðlag er þar mjög gott. Búlg arar skipuleggja ferðir til nágrannalandanna eins og Rúmenar t.d. til Istanbul með skipi og er verð þar mjög gott. Sömuleiðis er um fjölda ferða að ræða innanlands á mjög hagkvæmu verði. Enginn vafi er á að íslendingar eiga eftir. að auka komur sínar til Búlgaríu á næstu árum enda eru viðskipti landanna í örum vexti. Hafið samband við okkur sem fyrst. LAN □ S a N ^ FERÐASKRIFSTOFA Skólavörðustía 16. II. hæð • Hestamannamót Framh. af bls. 13. Snemma næsta dag, eða i kringum hádegið, skreið þorri manna úr tjöldum sín- um, og hestamenn tóku óð- um að undirbúa sig fyrir kappreiðarnar, sem áttu að hefjast klukkan tvö. Tók nú fyrir alvöru fólksfjöldi að streyma að, og myndarlegar hestsveitir frá hinum og 42 þessum hestafélögum þeystu inn á svæðið. Kappreiðarnar fóru vel fram og allt það, nema veðrið var óheppilegt, rigning og suddi. Afrek hest- anna verða ekki skráð hér, og því síður afrek knapanna, en hins vegar má vitna til ríkjandi rigningar, ef ein- hver vill spyrja nánar. Kappreiðunum lauk síðar seinni hluta dagsins. Þá mátti sjá breiðfylkingar hestamanna þeysa út og suð- ur frá fornum sögustað, bændurnir fóru aftur í sveit- irnar en Reykvíkingar til síns heima ... • Ungbörn til sölu Framh. af bls. 32. þér sjálfar. Og peningana fáið þér eftir að fæðingin er um garð gengin og þér hafið undir- ritað yfirlýsingu um að þér af- salið yður öllum rétti á barn- inu. Blaðakonan hélt Betty Baker uppi á snakki og snúningum um tíma. Að viku liðinni var hún orðin óþolinmóð og bað hana um að líta til Benson, hann vildi alltaf sjá stúlkurnar öðru hvoru. Þess vegna fór hún til Ben- sons. — Þér lítið vel út, eruð sól- brenndar og fallegar. En mér finnst ég þvert á móti vera al- veg að niðurlotum kominn. Ég vinn sjö daga í viku. Ég held ég taki mér frí yfir helgina og fari til Palm Spring. Blaðakonan ákvað nú að reyna hjartagæzku lögfræðings- ins. Hún sagði því: — Nú hef ég fengið vinnu, en ég fæ ekki útborgað fyrr en á laugardag. Ég á ekki eftir nema 4 dali. Ekki gætuð þér lánað mér tíu dali? — Því miður er ég blankur, sagði Benson. — Jæja, en samt ætlið þér til Palm Spring. — Viljið þér vera með? — Auðvitað. — Og eruð þér samt alveg vissar um að þér séuð vanfær- ar? Hvernig vitið þér það? — Læknirinn minn í New York hefur skoðað mig. Benson velti málinu fyrir sér um hríð. Svo ákvað hann að þau skyldu borða saman eitt kvöldið heima í íbúðinni hans og blaðakonan átti að matreiða. Hann vildi vita hvort þsð borg- aði sig að hafa með sér félaga til Palm Spring. Svo bauð hann henni út á veitingahús. — Hann flutti sig stöðugt nær, segir konan, og það fór ekki á milli mála hvað hann vildi. Ég lét einhver orð falla um óléttar símavændiskonur. En hann tók mig strax á orð- inu og bauð mér samning við vændiskvennahring sem starf- aði þar í borginni. — Þér getið unnið fyrif 20— 100 dölum á kvöldi, sagði hann. Og svo getið þér haldið áfram eftir að barnið er fætt. Það var því hans verk að sjá um allt þetta. Nokkru seinna flaug blaðakonan heim til New York aftur. + KONUR FENGNAR TIL AÐ FRAMLEIÐA BÖRN. Það er ekki til nein miðstöð fyrir barnaverzlunina, og fyrir því er erfiðara að komast fyrir ósómann. Hér er um að ræða einstaka menn í undirheimum stórborganna, og þeir hafa sam- band við ýmsa svokallaða góða borgara, lækna, lögfræðinga og hjúkrunarkonur. Það er einnig miklum erfið- leikum bundið að fá nokkrar upplýsingar um foreldrana sem börnin taka. Þau eru dauð- hrædd um að börnin verði tek- in af þeim. Það mundi ekki verða gert. En dæmi eru um að fósturforeldrarnir verði að þola það að móðirin reyni að kúga út úr þeim peninga. Það er rétt að barnasalar eru í sambandi við hringa síma- vændiskvenna og stundum stjórna þeir slíkum hringum. Og þess eru dæmi að barnasal- ar hafi fengið mæður til að eiga fyrir sig börn til þess að geta selt þau, þ. e. í rauninni barna- framleiðsla. Svartamarkaður á börnum er ekki takmarkaður við Ame- ríku. Börn eru send frá öðrum löndum til Ameríku. Fyrrum einkum frá Ítalíu, en nú aðal- lega frá Grikklandi. Theresa L. Heath segir frá því að fjórar persónur eigi það yfir höfði sér að verða dæmdar fyrir að hafa selt 85 börn frá Grikklandi og þegið fyrir það 204 000 dali. Þetta gerðist allt á hálfu öðru ári. Og þessi viðskipti eru ekki bundin við New York. Á sama tíma voru 300 önnur börn flutt til ýmissa staða 1 Bandaríkjun- um. Þetta er í rauninni barna- innflutningur. * MEST FRÁ GRIKKJUM. Frá lokum síðari heimsstyrj- aldar hafa 22 724 börn verið flutt til Bandaríkjanna og ætt- leidd þar. Frá Þýzkalandi komu 1156, frá Ítalíu 2908, frá Japan 3180, frá Grikklandi 3361, og frá Kóreu 4594. Grikkland hef- ur því vinninginn að tiltölu við fólksfjölda. Athyglisvert er það með Ítalíu sem lengi var hæst á listanum að eftir því sem lífs- kjörin bötnuðu minnkaði barna- útflutningurinn. Grikkland er enn fátækt land. En það er ekki hægt að varpa sökinni á fátækt land. Washington Star spurði lesend- ur sína nýlega: ,,Er ekki eitthvað alvarlegt úr lagi gengið þegar menn geta látið hafa sig til að kaupa börn á svartamarkaði?“ falkinn

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.