Fálkinn - 24.01.1966, Side 30
Það er stolt skipv: ;ma, að Lagarfo. líti vel út.
TEXTI: STEII\IUI\il\l S. BRIEIVI
IUYMDIR: SIGURJÓM JÓHAMMSSOM
hálftíma til klukkutíma eftir
að ég kem í land. Ég kann vel
við mig um borð, sérstaklega
hérna á Lagarfossi þar sem and-
inn er góður og allt ósköp
heimilislegt, og hvergi finnst
mér þægilegra að sofna en í
kojunni minni þegar skipið
vaggar mátulega.“
Því miður aldrei sjóveikur.
Á næstu hæð fyrir neðan
Hörð býr skipstjórinn, Birgir
Thoroddsen, en sá ágæti maður
er nú kapítuli út af fyrir sig —
þrír kapítular reyndar; sjá sein-
ustu þrjú hefti Fálkans. Þar er
einnig aðsetursstaður fyrsta
stýrimanns, Guðna Hákonar-
sonar. Hvort sem það eru
áhrif frá yfirboðaranum eða
ekki hefur Guðni enga ást á
sjónum.
„Nei, því miður hef ég aldrei
verið sjóveikur,“ segir hann.
„Þá hefði ég líklega ekki lent í
þessu.“ Og hann rennir augun-
um til mynda af konu og börn-
um. „Það er sök sér meðan
maður er einhleypur, en það er
leiðinlegt að sjá ekki meira af
fjölskyldunni. Blessuð börnin
þekkja mann varla, og þegar
þau voru yngri, voru þau hálf-
feimin við þennan ókunnuga
mann sem kom þarna í heim-
sókn einu sinni í mánuði eða
svo.“
„Hvað ertu búinn að vera
lengi á sjónum?“
„Ég byrjaði á Súðinni árið
1944 sem viðvaningur, vildi
prófa hvernig þetta væri: nú,
svo fer maður að asnast í skól-
ann og tekur sín próf og verð-
ur fastur í þessu. Jæja, þetta er
svo sem ágætisvinna í sjálfu
sér, það er ekki það, og alltaf
getur maður hlakkað til að
'mma heim “
IVfc"in!andið skemmtilegast.
Sigurður Eyjólfsson bátsmað-
HANN er sjö hœSir, jaínhár
og Hótel Borg ef hann stendur
á þurru landi, en þaS er nú
ekki hans rétti staSur. ÞaS er
m/s Lagarfoss sem um er að
rœSa. Skipverjunum þykir
vœnt um hann, og þeir snur-
fusa hann í sífellu, skafa og
mála. svo að hann beri af öSr-
um skipum og viShaldi œsku-
fegurS sinni i lengstu lög. RyS-
blettir eru fjarlœgSir af þrot-
lausri elju, og baráttan viS
salt og slit er í fullum gangi
nótt og dag að heita má. „Það
er okkar stolt. að hann líti vel
út”, segir Reynhard timbur-
maður og hamast við að skafa
hurS. „A3 minnsta kosti ekki
verr en aSrir fossar á hans
aldri". Og einn af hásetunum
talar með fyrirlitningu um út-
litið á ónefndu skipi sem þeir
mœttu nýlega. „Maður hefði
nú skammazt sín fyrir að til-
heyra skipshöfninni þar".
Eitthvað sem togar.
Á efstu hæð býr Hörður
Ágústsson loftskeytamaður.
Hann er búinn að vera tuttugu
og sex ár á sjónum og líkar
starfið vel. „Þegar ég er heima
í fríum kann ég ágætlega við
mig í landi,“ segir hann, „en
eftir svona mánuð fer mig að
langa aftur á sjóinn. Það er
eitthvað sem togar í mann,
ferðaþráin líklega. Mér finnst
alltaf gaman að koma út, mað-
ur sér ýmislegt nýtt í hvert
skipti, kynnist góðu fólki, fer
að skoða fallega staði og lærir
sitt af hverju.“
„Hvert viltu helzt koma?“
„Uppáhaldsstaðurinn er Kaup-
mannahöfn, það er eins og að
koma heim til sín. Mér líkar
prýðilegd við Dani. Næstbezt
finnst mér England, og yfirleitt
hef ég alltaf gaman af að koma
í stórborgir. Finnland er lika in-
dælt land. Maður er orðinn svo
vanur þessum ferðalögum, að
Evróputúrarnir eru eins og að
hringsóla svolítið í strætó og
En þeir þurfa ekki að skamm-
ast sín fyrir Lagarfoss. Hann
er hreinn og fínn og fágaður
eins og telpa að fara í barna-
boð. Lífið um borð rennur á-
fram létt og snurðulaust, það er
unnið á vöktum allan sólar-
hringinn, og svo vel er starfið
skipulagt, að það er eins og allt
gerist af sjálfu sér. Þótt skips-
höfnin sé yfir þrjátíu manns er
hvergi nein kös af fólki, og i
fljótu bragði virðist þetta vera
hálfgert draugaskip mannað
ósýnilegum andaverum. En þeg-
ar betur er að gáð leynast bráð-
lifandi skipverjar á víð og
dreif um farkostinn, sumir of-
an í undirdjúpunum, aðrir hátt
yf’r úfnnm haffletinum.
Hörður Agústsson loftskeytam.
stoppa á öðru hverju götuhorni,
en Ameríkutúrarnir eins og að
skreppa út úr bænum."
„Hefurðu aldrei verið sjó-
veikur?“
„Nei. það het ég alveg sloppið
við, en ég hef alltaf sjóriðu
ur er á sama máli um, að sjó-
mennskan henti betur einhleyp-
ingum en fjölskyldumönnum.
Þó að hann sé ekki nema rúm-
lega þrítugur hefur hann verið
fastur starfsmaður hjá Eimskip
í tuttugu ár, byrjaði sem send-
ill á skrifstofunni og fór tveim
árum síðar á gamla Brúarfoss
sem messadrengur. „Það var
ævintýraþráin,“ segir hann.
„Þá var erfiðara að komast til
útlanda en núorðið, og þetta
var bæði spennandi og tilbreyt-
ingarríkt. Ég hef alltaf kunnað
ágætlega við mig á sjónum og
heldur leiðzt í landi, en það
breytist þegar maður stofnar
heimili.“
„Hvenær giftirðu þig?“
„Fyrir þremur árum. Og þá
fór mig að langa til að vera
meira heima.“
„Hvað eigið þið af börnum?“
„Son og dóttur sem er ný-
fædd. Fyrstu árin sér maður
stóran mun á börnunum þegar
maður kemur heim með mán-
aðar millibili, og þá er synd að
geta ekki verið meira með þeim
og fylgzt með þeim vaxa.“
Sigurður Eyjólfsson bátsmaður
stendur við stýrið þegar farið
er að og frá bryggju.
30
FALKINN